Víkurfréttir - 06.07.2017, Page 14
14 fimmtudagur 6. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
Eva Margrét stefnir á Ólympíuleikana
S J Á Ð U H V E N Æ R Þ Ú G E T U R I N N R I TA Ð
Þ I G Á W W W. K E FA I R P O R T. I S/ S N E M M A
M Æ T T U F Y R R
Í F R Í I Ð
Stærsta ferðamannasumar Íslands til þessa er hafið. Við ætlum að hafa opið frá
miðnætti í sumar svo þú getir mætt fyrir álagstíma og minnkað líkurnar á að þurfa
að standa í biðröð. Í samstarfi við WOW, Icelandair og Primera geta farþegar
í morgunflugum þessara flugfélaga mætt í innritun frá miðnætti.
Mættu tímanlega á Keflavíkurflugvöll — við tökum vel á móti þér.
Á Æ T L A Ð I R Á L A G S T Í M A R Í I N N R I T U N
06
.0
0
07
.0
0
08
.0
0
09
.0
0
10
.0
0
11
.0
0
12
.0
0
13
.0
0
14
.0
0
15
.0
0
16
.0
0
17
.0
0
18
.0
0
19
.0
0
20
.0
0
21
.0
0
22
.0
0
23
.0
0
00
.0
0
01
.0
0
02
.0
0
03
.0
0
04
.0
0
05
.0
0
Það eru ekki bara betri sæti
í boði, heldur líka minni líkur
á að þurfa að standa í röð.
Það skiptir Heiðu máli að byrja
fríið vel. Þess vegna mætir hún
snemma á flugvöllinn.
17
-
1
5
01
—
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
G E F U R G U L L
Í M U N D
M O R G U N D S T U N D
Ísak Ernir í sumardeild NBA
●● Fyrsti●íslenski●dómarinn●sem●fær●boð●á●námskeið●NBA
Keflavíkingurinn Ísak Ernir
Kristinsson er staddur í Banda-
ríkjunum þar sem hann kemur
til með að dæma í sumardeild
NBA deildarinnar í körfubolta
sem fram fer í Las Vegas. Hann
mun taka þátt í Global Camp
fyrir efnilega dómara í Banda-
ríkjunum ásamt því að dæma
einhverja leiki, en Ísak hefur
í dag stimplað sig sem einn
fremsti dómari á Íslandi.
Í samtali við Víkurfréttir segir Ísak
þetta vera frábært tækifæri fyrir sig.
„Þetta boð er einnig mikill heiður
fyrir mig og íslenskan körfubolta.
Íslenskir körfuboltadómarar leggja
mikla vinnu á sig til að verða betri
og er þetta sönnun þess að við
erum að gera eitthvað rétt. Ég er
fullur tilhlökkunar að takast á við
þetta verkefni og er ég staðráðinn
í að koma heim sem betri dómari.“
Leikir Suðurnesjaliða í knattspyrnu
Grindavík sigraði annan deildar-
leikinn í röð
Grindavík sigraði Hauka 2:1 í Hafna-
firði í fyrrakvöld í Pepsi-deild kvenna.
Fyrsta markið kom á 12. mínútu og var
það Marjani Hing-Glover sem skoraði
markið fyrir Hauka. Rilany Aguiar
Da Silva jafnaði fyrir Grindavík á 44.
mínútu og Berglind Ósk Kristjánsdóttir
gerði sigurmarkið á 57. mínútu. Það
reyndist vera lokamarkið og því var
niðurstaðan 2:1, Grindavík í vil. Þetta er
annar sigur Grindavíkur í röð. Þær eru
komnar í 7. sæti deildarinnar.
Keflavík í annað sætið eftir góðan
útisigur
Keflavík vann Gróttu 1:0 á Seltjarnar-
nesi í Inkasso deildinn í síðustu viku.
Það var Adam Árni Róbertsson sem
skoraði mark Keflavíkur á 60. mín-
útu eftir frábæra fyrirgjöf Sigurbergs
Elíssonar. Keflavík er komið í 2. sæti
deildarinnar.
Njarðvík sigraði KV í markaleik
Njarðvík sigraði KV 6:4 á KR-vell-
inum í 2. deild karla í knattspyrnu á
þriðjudagskvöldið. Fyrsta mark Njarð-
víkur kom strax á 3. mínútu og var þar
Arnar Helgi Magnússon sem skoraði
það. Njörður Þórhallsson jafnaði fyrir
KV á 26. mínútu. Njarðvíkingar skor-
uðu þrjú næstu mörkin og þar voru
á ferðinni Stefán Birgir Jóhannesson,
Styrmir Gauti Fjeldsted og Arnar Helgi
Magnússon með sitt annað mark. Júlí
Karlson skoraði mark fyrir KV á 47.
mínútu og Davíð Birgisson skoraði
annað mark fyrir KV á 52. mínútu.
Næstu tvö mörkin komu frá Njarð-
víkingum og voru það þeir Theodór
Guðni Halldórsson og Arnar Helgi
Magnússon með sitt þriðja mark. Loka-
tölur í þessum mikla markaleik voru
6:4 fyrir Njarðvík.
Víðir í fjórða sæti eftir jafntefli
Víðir gerði 1:1 jafntefli við Aftur-
eldingu í 2. deild karla í Garðinum
á þriðjudagskvöldið. Það var Aleks-
andar Stojkovic sem skoraði fyrsta
markið fyrir Víði á 32. mínútu. Gre-
gory Thomas Conrad jafnaði fyrir
Aftureldingu 40. mínútu. Þetta reynd-
ist vera lokamarkið og því endaði
leikurinn 1:1 jafntefli. Víðir er með
sextán stig í 4. sæti í deildarinnar.
Þróttur úr Vogum gerði jafntefli
Þróttur Vogum gerði 1:1 jafntefli við
Vængi Júpiters í þriðju deild karla í
knattspyrnu um síðustu helgi. Leikur-
inn fór fram á heimavelli Þróttar. Það
var Admir Kubat sem skoraði fyrir
Þrótt á 61. mínútu. Hjörleifur Þórð-
arsson jafnaði fyrir Vængi Júpiters á
lokamínútuni úr víti. Þróttur er með
tólf stig í 5. sæti deildarinnar.
Reynir í neðsta sæti eftir tap
Reynir tapaði fyrir KFG 5:2 í Garða-
bæ í 3. deild karla um síðustu helgi.
Mörk Reynis skoruðu þeir Rúben
Filipe Vasques Narciso og Bjarki Frí-
mann Helgason. Reynir er í neðsta
sæti 3. deildarinnar.
Eva Margrét hlaðin
verðlaunagripum.
■ Hin tólf ára gamla Eva
Margrét Falsdóttir hefur
æft sund af kappi frá unga
aldri en á dögunum keppti
hún á AMÍ, Aldursflokka-
meistaramóti Íslands, þar
sem hún náði glæsilegum
árangri, en Eva Margrét varð
Íslandsmeistari í öllum þeim
greinum sem hún keppti.
Hún var stigahæst í meyja-
flokki og hlaut svokallaðan
„Ólafsbikar“, en hann hlýtur
sá keppandi sem vinnur mesta
afrekið á mótinu, með tilliti til
aldurs. Systir Evu Margrétar,
Birta María, hefur einnig
hlotið bikarinn.
Eva Margrét æfir alla daga vik-
unnar, fyrir utan sunnudaga,
og skemmtilegast þykir henni
að synda bringusund. Þá
finnst henni erfiðast að synda
flugsund þar sem hún þreytist
fyrr. Henni þykir gaman að
keppa á sundmótum og undir-
býr sig vel fyrir þau. „Maður
gerir erfiðari æfingar fyrir mót
og þegar það eru svona fjórir
dagar í mót byrjar maður að
hvíla. Það er líka mikilvægt að
fara snemma að sofa og passa
hvað maður borðar,“ segir
hún.
Aðspurð um framtíðina og
markmið segist Eva Mar-
grét stefna langt. „Ég ætla að
komast á Ólympíuleikana,
allavega.“