Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.08.2017, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 03.08.2017, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 3. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR ■ Ratsjárstöð Varnarliðsins í Rockville á Miðnesheiði var byggð árið 1953. Hún var starfrækt til ársins 1997, þegar henni var lokað og ný stöð opnuð skammt frá. Það eru því 20 ár um þessar mundir frá lokun stöðvarinnar. Í dag er fátt sem minnir á tilvist rat- sjárstöðvarinnar. Fáein grenitré vekja athygli þegar horft er til svæðisins úr fjarska, tré sem uxu í skjóli húsa sem síðar voru rifin en um áratugur er síðan Rockville var jafnað við jörðu. Þegar Rockville var og hét voru þar um 20 hermannaskálar, mötu- neyti, pósthús og íþróttahús. Á staðnum voru einnig áberandi tröll- vaxnar hvítar kúlur. Inni í þeim voru ratsjár sem höfðu það hlut- verk að fylgjast með flugumferð og þá helst véla frá Sovétríkjunum. Íslendingar sóttu í klúbbana Í Rockville var einnig bar eða klúbbur, sem naut mikilla vinsælda. Íslend- ingar sóttu m.a. klúbbinn í Rock- ville mjög stíft. Í Víkurfréttum árið 1996 er greint frá því í nóvember að Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli, sem var sérstakt lögregluembætti, hafi stöðvað stóran hóp Íslendinga sem voru á leið á skemmtun í klúbbi Varnarliðsins í Rockville. Hluti hóps- ins var kominn inn á klúbbinn og fóru lögreglumenn inn á staðinn og vísuðu fólkinu út. Nálægt eitthundrað manns voru á gestalista og ætluðu á staðinn en fengu ekki inngöngu. Þorgeir Þorsteinsson, þáverandi Sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, sagði í samtali við Víkurféttir á þeim tíma að þetta næði ekki nokkurri átt. Klúbbar varnarliðsins eru fyrst og fremst fyrir varnarliðsmenn og gesti þeirra og að það gengi ekki að stórir hópar Íslendinga væru að sækja varnarliðsklúbba. Helst áttu lögregluyfirvöld erfitt með að hafna Íslendingum inngöngu sem boðið var í klúbbana í varnarstöðinni í gegnum alþjóðleg félög eins og Lions og Kiwanis en þessir klúbbar voru starfandi á Keflavíkurflugvelli. Þorgeir sagði fulla ástæðu til að taka í taumana gagnvart Rock- ville-klúbbunum en þar höfðu nokkrar „íslenskar“ skemmtanir farið fram þá um haustið. Jafnvel kom til greina að loka alveg á heim- sóknir Íslendinga í Rockville. Veitingamenn á Suðurnesjum fundu mikið fyrir Íslendinga- veislunum í klúbbum kanans. Það væri erfitt að keppa við klúbbana á Vellinum og í Rockville en marg- falt lægra vín- og bjórverð var sögð ástæða þess að Íslendingar sóttust eftir því að komast í klúbbana. Ári eftir að Sýslumaðurinn á Kefla- víkurflugvelli vísaði Íslendingunum út úr klúbbnum í Rockville var stöð- inni lokað og starfsemin flutt. Þá varð Rockville að draugabæ um nokkurt skeið eða þar til Byrgið gerði samning við utanríkisráðuneytið um afnot af húsakosti í Rockville fyrir með- ferðarstöð. Byrgið var með starfsemi í Rockville í nokkur misseri eða þar til í júní 2003 að þeim var gert að yfirgefa staðinn. Byrgið flutti í uppsveitir Ár- nessýslu, Rockville varð aftur drauga- bær og nokkrar byggingar urðu eldi að bráð. Byggingar þar höfðu svo vart verið rifnar þegar tilkynnt var um brottför Varnarliðsins frá Íslandi. Fátt sem minnir á gamla tíð Eins og áður segir þá er það trjá- gróður á svæðinu sem er það eina sem minnir á gömlu rat- sjárstöðina þegar horft er til svæðisins úr fjarska. Þegar nær er komið þá má ennþá upplifa malbikaðar götur og sökkla þeirra bygginga sem þarna stóðu. Víkurfréttir settu flygildi á loft á svæðinu til að sýna lesendum sem best það umhverfi sem þar er. Fráveita er frá Rockville með útrás í Leirunni. Þá er stutt í raf- magn og bæði heitt og kalt vatn. Ekki öryggisfangelsi - en smáhýsabyggð? Landsvæðið sem var undir ratsjár- stöðinni í Rockville er í Sandgerði. Árið 2011 samþykkti bæjarráð Garðs að sveitarfélögin Garður, Sandgerði og Reykjanesbær standi saman að þátttöku í útboði ríkisins vegna byggingar öryggisfangelsins og að öryggisfangelsins myndi rísa þar sem Rockville stóð áður. Skemmst er frá að segja að fangelsins reis á Hólmsheiði ofan Reykjavíkur. Í aðalskipulagi fyrir Sandgerðisbæ er landsvæði merkt Rockville skipu- lagt sem blönduð landnotkun, sem gæti verið iðnaðarsvæði, verslunar- og þjónustusvæði og athafnasvæði. Samkvæmt því er ekki gert ráð fyrir íbúðabyggð á svæðinu en þar gæti risið hótel. Fordómar fyrir smáhýsum? Blaðamaður Víkurfrétta kannaði hug fólks til uppbyggingar á smá- hýsabyggð í Rockville. „Hvernig tekur fólk í hugmynd um að leyfa þar „hjólhýsagarð“ eða „smáíbúðir“ til að leysa bráðan íbúðavanda á svæðinu? Þurfum við ekki að hugsa út fyrir boxið? Grjótaþorp á Miðnesheiði?,“ var það sem blaða- maður skellti í loftið á fésbókinni. „Þetta þykir ekki nógu fínt. Svo er lítið á þessu að græða fyrir verktaka og sveitarfélög. Allt snýst, jú um pen- inga,“ sagði einn um málið. Annar hafði áhyggjur af að horft yrð á smá- hýsabyggð eins og braggabyggðina í Reykjavík á eftirstríðsárunum. Skipuleggja þyrfti byggðina vel svo ekki rísi bara ghettó. Ein skrifaði við færsluna: „Sem sagt hverfi fyrir efna- minni? Við þurfum einhverstaðar að vera,“ og bætti svo við hjarta. „Auðvitað á fyrir löngu að vera búið að koma upp svona byggð. Svona byggð myndi leysa meiri vanda en hún skapar og við eigum ekki alltaf að vera föst í einhverri forræðis- hyggju og vera að eyða tíma okkar í að hafa vit fyrir fólki. Svona byggð væri kjörin fyrir efnaminna fólk og fólk sem kýs að búa svona. En til að svona gæti orðið að raunveruleika þá þarf fólk að yfirstíga ákveðna for- dóma og kreddur en til þess þarf þroska,“ sagði einn góður Sand- gerðingur og annar bætti við: „Mér finnst þetta frábær hugmynd sem ætti að henda í framkvæmd sem allra fyrst. Ég ætla þá að vera sú fyrsta sem skrái mig á biðlistann eftir húsi“. Sandgerðingar kaupa smáhýsi Það liðu ekki margir dagar frá því þessari umræðu var varpað á sam- félagsmiðla þegar fréttir bárust af því að Sandgerðisbær ætlaði að ráðast í kaup á fjórum smáhýsum. Smáhýsin eru innréttuð í staðlaðar gámaeiningar. Þau verða sett niður á steyptan sökkul við Þekkingar- setrið í Sandgerði til að leysa bráðan húsnæðisvanda í Sandgerðisbæ. Samskonar steyptir sökklar eru í Rockville. Þar væri hægt að setja niður smáhýsabyggð eða svona gámaeiningar með stuttum fyrir- vara til að leysa bráðan húsnæðis- vanda á svæðinu. Það er hins vegar á valdi bæjaryfirvalda í Sandgerði að ákveða hver framtíð Rocville verður. hilmar@vf.is 20 ÁR FRÁ LOKUN ROCKVILLE Smáhýsagarður eða iðnaðarsvæði á Miðnesheiði? „Stopp á kanaklúbba“ var fyrirsögn sem tók alla forsíðu Víkurfrétta í nóvember 1996. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli stöðvaði um 100 Íslendinga á leið í partý í kanaklúbbi í Rockville. Starfsemi var hætt í Rockville ári síðar. Rockville á Miðnesheiði í júní 2003 þegar þar var rekin meðferðarstöð Byrgisins. Myndin er tekin daginn sem Byrgið yfirgaf Rockville. Þremur árum síðar var allur húsakostur rifinn í burtu. Yfirlitsmynd yfir Rockville eins og svæðið er í dag. Þar má sjá malbikaða vegi, og undirstöður þeirra húsa sem þar stóðu. Nokkur tré standa enn en þau uxu á sínum tíma í skjóli undir húsvegg. Margfalt lægra vín- og bjórverð var sögð ástæða þess að Íslend- ingar sóttust eftir því að komast í klúbbana.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.