Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.08.2017, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 03.08.2017, Blaðsíða 20
20 fimmtudagur 3. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR mannahelgin til þessa? Af hverju? „Fyrsta þjóðhátíðin mín var árið 2014 með vinkonum mínum. Það var ótrú- lega gaman og gleymist seint. Þjóðhátíð 2015 skemmtum við Kristrún vin- kona mín okkur konunglega og margar skemmtilegar og fyndnar minningar frá þeirri þjóðhátíð með henni.“ Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina? „Mér finnst nauðsynlegt að njóta, skemmta sér vel með vinum og fjöl- skyldu, nýta þessa fríhelgi eins vel og maður getur, þ.e.a.s. ef maður er í fríi.“ Hvað ertu búin að vera að gera í sumar? „Ótrúlega lítið annað en að vinna. Ég fór í útilegu í Úthlíð með nokkrum vinum fyrr í mánuðinum sem var ótrúlega gaman. Ég er búin að liggja í sólbaði, líklega eins og hver annar Íslendingur, þegar sólin lætur sjá sig. Ég er búin að fara á helling af fótboltaleikjum hjá kær- astanum og á leiki hjá Breiðablik sem tengdó hefur náð að draga mig með á.“ Hvað er planið eftir sumarið? „Eftir sumarið ætla ég að taka við nýrri stöðu sem yfirþjálfari hjá fimleikadeild Keflavíkur sem ég er mjög spennt fyrir. Það verður örugglega brjálað að gera í því þar sem ég verð með alla hópana og að sjá um mót og svona. Ætli ég reyni samt ekki að troða einni útlandaferð inn í vetur, að heimsækja pabba til Noregs eða eitthvað álíka.“ Skyndiákvörðun til Eyja og sleppir stressi KRISTJANA VIGDÍS INGVADÓTTIR Hvað ætlarðu að gera um Versl- unarmannahelg- ina? „Ég ætla að fara á Þjóðhátíð þetta árið.“ Er t u v anafö st um Verslunar- mannahelg ina e ð a b re y t i rð u reglulega til? „Ég myndi ekki segja að ég væri vana- föst þegar kemur að Verslunarmanna- helginni. Ég hef yfirleitt verið að vinna þessa helgi og fyrir 18 ára aldur fór ég alltaf á Unglingalandsmót með körf- unni. En það mætti segja að ákvörðunin um að kaupa miðann til Eyja núna hafi verið skyndiákvörðun eins og þær gerast bestar.“ Hver er eftirminnilegasta Verslunar- mannahelgin til þessa? Af hverju? „Ég hugsa að það hafi bara verið árið 2015 þegar ég fór í fyrsta skiptið á Þjóð- hátíð. Stemningin í dalnum, blysin, brekkusöngurinn og margt fleira er eitt- hvað sem ég hugsa að ég gleymi aldrei og þess vegna langar mig aftur. Ég man einnig mjög vel eftir Verslunarmanna- helginni 2016 þegar ég var í Reykjavík og keypti mér tvær rosa fínar flíkur á götumarkaði. Það var rosa fín stemning þá í bænum.“ Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina? „Eins væmið og það hljómar þá er bara mikilvægast að njóta með vinum og/ eða fjölskyldu og ekki stressa sig of mikið yfir umferðinni ef maður ætlar að ferðast eitthvað.“ Hvað ertu búin að gera í sumar? „Ég er að vinna á Þjóðskjalasafninu og hef verið að nýta helgarnar mjög vel í að ferðast um landið. Ég fór hringinn í maí og hef svo farið hingað og þangað í leit að góðu veðri. Lengst keyrði ég norður á Akureyri yfir helgi til þess að finna sólina og það var alveg þess virði.“ Hvað er planið eftir sumarið? „Ég fer aftur í háskólann að klára síðasta árið í sagnfræðinni og samhliða því ætla ég að sinna þeim félagsstörfum sem ég er búin að skuldbinda mig í.“ Vanafastur um Versló og drekkur bjór AROWN FANNAR RÚNARSSON Hvað ætlarðu að gera um Verslunar- mannahelgina? „Ég er að vinna auka í þetta skiptið.“ Ertu vanafastur um Verslunarmanna- helgina eða breytirðu reglulega til? „Ég hef farið síðustu fimm skipti á Þjóð- hátíð, þannig ég er frekar vanafastur með það.“ Hver er eftirminnilegasta Verslunar- mannahelgin til þessa? Af hverju? „Þjóðhátíð 2014, vegna þess að allt draslið mitt fauk í burtu og það tapaðist á fyrsta kvöldi en maður reddaði sér samt einhvern veginn.“ Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina? „Bjór.“ Hvað ertu búinn að gera í sumar? „Barcelona, Los Angeles, Las Vegas, Te- nerife og vinna.“ Hvað er planið eftir sumarið? „Planið er að ferðast meira og vinna meira.“ Minigolf í Hraun- borgum á meðan aðrir djamma KRISTÍN SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR Hvað ætlarðu að gera um Versl- unarmannahelg- ina? „Ég er í vakta- vinnu og verð því heima að vinna um Verslunar- mannahelgina.“ Er t u v an afö s t um Verslunar- mannahelg ina eða breytiru reglulega til? „Það er misjafnt hvað ég geri. Það fer bara eftir status hjá mér hvert ár.“ Hver er eftirminnilegasta Verslunar- mannahelgin til þessa? Af hverju? „Klárlega í fyrra vegna þess að ég var kasólétt. Við kærastinn áttum góða helgi og skelltum okkur í minigolf í Hraun- borgum á meðan allir aðrir djömmuðu.“ Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina? „Góður félagsskapur.“ Hvað ertu búin að gera í sumar? „Ég kom úr fæðingarorlofi í júní, svo ég er aðalega búin að vera vinna en við fjölskyldan höfum reynt að gera eitthvað skemmtilegt á fríhelgum.“ Hvað er planið eftir sumarið? „Ég ætla að halda áfram að vinna, halda áfram í skólanum og njóta lífsins með fjölskyldu og vinum.“ „Það er klárlega fyrsta þjóðhátíðin mín. Þá var ég ný orðin 17 ára og við fórum nokkrir vinir saman með foreldrum mínum. Það að upplifa brekkusöng- inn og blysin í fyrsta skiptið var alveg magnað. Ég mæli með því fyrir alla sem hafa ekki farið á Þjóðhátíð að skella sér allavega á sunnudeginum til þess að upplifa þessa stund.“ Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina? „Að fara í útilegu í góðum félagsskap.“ Hvað ertu búin að gera í sumar? „Í byrjun sumars tók ég við sem for- stöðumaður Fjörheima og 88 hússins. Ég er einnig yfirflokkstjóri í vinnuskól- anum svo það er búið að vera nóg að gera í vinnunni. Ég legg áherslu á það að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi og finnst æðislegt að nýta góða veðrið í útivist, til dæmis að fara út að hlaupa, hjóla eða fara í fjallgöngu. Ég fer mikið í sund og hef gaman að því að prufa nýjar sundlaugar. Ég hef aðeins ferðast um landið og átt góða daga í höfuð- borginni.“ Hvað er planið eftir sumarið? „Planið er að sinna vinnunni af fullum krafti og halda áfram að lifa heilbrigðum lífsstíl.“ Eltir góða veðrið með vininum Pétri ÆVAR MÁR ÁGÚSTSSON Hvað ætlarðu að gera um Versl- unarmannahelg- ina? „Ég ætla að skella mér í kósý úti- legu með Pétri vini mínum. Við vitum ekki hvert en ætli við eltum ekki bara góða veðrið.“ Ertu vanafastur um Verslunarmanna- helgina eða breytirðu reglulega til? „Ég get nú ekki sagt að ég sé vanafastur. Ég held ég hafi aldrei farið tvisvar á sama stað um Verslunarmannahelgina eftir að ég fór að fara sjálfur.“ Hver er eftirminnilegasta Verslunar- mannahelgin til þessa? Af hverju? „Í fyrra nýtti ég sumarið í að heimsækja mikið af eyjum í kringum Ísland. Yfir Verslunarmannahelgina var ég á Vest- fjörðum og skoðaði Vigur sem er algjör paradís. Annars var þjóðhátíð 2009 líka meiriháttar.“ Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina? „Mér finnst ekkert nauðsynlegt um Verslunarmannahelgina. Bara að njóta og ekki skemmir að hafa rétta fólkið í kringum sig.“ Hvað ertu búinn að gera í sumar? „Í sumar hef ég unnið frekar mikið. Ég sótti reyndar tvö brúðkaup núna í júlí. Það verður ljúft að leggja land undir fót næstu helgi.“ Hvað er planið eftir sumarið? „Eftir þetta svokallaða sumar okkar er ég að íhuga að fara í fyrstu sólarstrandar- ferðina. Svo stefni ég á aðrar tvær góðar ferðir erlendis.“ Nauðsynlegt að njóta um Verslunar- mannahelgina ERIKA DORIELLE SIGURÐARDÓTTIR Hvað ætlarðu að gera um Versl- unarmannahelg- ina? „Ég ætla að fara á þjóðhátíð í ár.“ Er t u v anafö st um Verslunar- mannahelg ina e ð a b re y t i rð u reglulega til? „Síðustu þrjú ár hef ég verið vanaföst og farið á þjóð- hátíð, en ætli það komi ekki að því að maður breyti til og geri eitthvað annað. Annars er alltaf jafn gaman á þjóhátíð.“ Hver er eftirminnilegasta Verslunar- Forstöðumaður Fjörheima fer á Flúðir GUNNHILDUR GUNNARSDÓTTIR Hvað ætlarðu að gera um Versl- unarmannahelg- ina? „Planið er að fara í útilegu á Flúðir með kærastanum og vinum okkar.“ Er t u v anafö st um Verslunar- mannahelg ina e ð a b re y t i rð u reglulega til? „Ég myndi alls ekki segja að ég væri vanaföst. Mér finnst samt sem áður lykilatriði að fara í útilegu um versl- unarmannahelgina og leitast ég mikið eftir því að fara á einhvern stað þar sem boðið er upp á dagskrá yfir helgina.“ Hver er eftirminnilegasta Verslunar- mannahelgin til þessa og af hverju? Ætlar að gefa lifrinni frí um Verslunar- mannahelgina ÁSDÍS RÁN KRISTJÁNSDÓTTIR Hvað ætlarðu að gera um Versl- unarmannahelg- ina? „Ég verð að vinna um Verslunar- mannahelgina. Ég er ný komin heim ú r d j am m fe rð svo ég ætla gefa l i f r inni minni smá frí.“ Ertu vanaföst um Verslunarmanna- helgina eða breytirðu reglulega til? „Síðustu tvö ár hef ég farið til Eyja og mér finnst það svo gaman að mig langar aldrei neitt annað en að fara á Þjóð- hátíð.“ Hver er eftirminnilegasta Verslunar- mannahelgin til þessa og af hverju? „Fyrir tveimur árum þegar ég og vin- kona mín ákváðum klukkan hálf 4 á föstudagsmorgun að fara til Eyja og vorum mættar í Herjólf klukkan 11 morguninn eftir.“ Hvað er nauðsynlegt að þínu mati um Verslunarmannahelgina? „Það eru góðir vinir, gott grillkjöt og nóg af útilegu gítarstemningu.“ Hvað ertu búin að gera í sumar? „Ég er búin að vinna mikið. Þess á milli hef ég reynt að ferðast um landið, farið út í Viðey, upp á jökla og ég er núna ný komin heim frá Spáni.“ Hvað er planið eftir sumarið? „Eftir sumarið er stefnan sett á nám í mannfræði við Háskóla Íslands og að flytja í borgina.“   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84 Forvarnir með næringu STAPAFELL Hafnargötu 50, Keflavík NÝTT Opið alla daga fram á kvöld LAUS STÖRF Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes- bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykja- nesbær - laus störf. HEIÐARSEL Leikskólakennari HJALLATÚN Leikskólakennarar HJALLATÚN Deildarstjóri NJARÐVÍKURSKÓLI Myndmenntakennari 50% UMHVERFISSVIÐ Sérfræðingur á sviði byggingarframkvæmda Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði. Verslunarmannahelgin Sumarfrí! Vegna sumarleyfa koma Víkurfréttir næst út fmmtudaginn 17. ágúst. Stöndum vaktina á vf.is Fasteignamat hækkar um 8,8% í Garði ■ Fasteignamat mannvirkja í Garði hækkar um 8,8% á næsta ári. Þetta var upplýst á fundi bæjarráðs Garðs. Samkvæmt tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands hækkar heildarmat fasteigna í Íslandi um 13,8% frá yfirstandandi ári. Garðmenn fá hálfa milljón frá Bláa lóninu ■ Sveitarfélagið Garður á hlutafé í Bláa lóninu. Garðmenn fengu á dög- unum arðgreiðslu vegna rekstrar- ársins 2016 frá Bláa lóninu. Í gögnum bæjarráðs Garðs kemur fram að sveitarfélagið fái greiddan arð vegna rekstrar Bláa lónsins árið 2016 að fjárhæð kr. 564.265.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.