Víkurfréttir - 25.01.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg.
19. MARS 2014
SAMIÐ UM RAFORKUFLUTNINGA
FYRIR KÍSILVER Í HELGUVÍK
Forstjóri Landsnets undirritaði sam-
komulag við United Silicon hf. um raf-
orkuflutninga vegna kísilvers í Helgu-
vík. Áætluð aflþörf verksmiðjunnar
er 35 megavött (MW). Samkomulag
United Silikon við Landsnet miðast við
að orkuafhending hefjist í febrúar árið
2016 og að starfsemin verði komin á
fullt tveimur mánuðum síðar.
9. APRÍL 2014
FJÁRFESTINGARSAMNINGUR
GERÐUR VIÐ UNITED SILICON
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra undirritaði fjár-
festingarsamning við United Silicon hf.
vegna fyrirhugaðs kísilvers félagsins í
Helguvík á Reykjanesi. Um er að ræða
nýfjárfestingarverkefni sem hljóðar
upp á 74 milljónir evra, eða tæplega 12
milljarða íslenskra króna.
Áætluð ársframleiðsla kísilversins er
21.000 tonn af kísli og 7.500 tonn af
kísilryki. Gert er ráð fyrir að 60 starfs-
menn komi til með að vinna við verk-
smiðjuna og starfsmenn við byggingu
hennar verði allt að 200. Miðað er við
að framleiðsla hefjist á árinu 2016 og
að fullum afköstum verði náð 2017.
27. ÁGÚST 2014
FJÖLMENN SKÓFLUSTUNGA
TEKIN AÐ KÍSILVERK-
SMIÐJU Í HELGUVÍK
Skóflustunga að nýrri kísil-
málmverksmiðju United Sili-
con í Helguvík á Suðurnesjum
var tekin við hátíðlega athöfn.
Magnús Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri United Silicon,
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
viðskipta- og iðnaðarráð-
herra, Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, forsætisráð-
herra, Anna Lóa Ólafsdóttir,
forseti bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar, Doron Sanders,
stjórnarformaður United Sili-
con og Karl Þráinsson frá ÍAV
tóku fyrstu skóflustungurnar að
verksmiðunni. Athöfnin fór fram
á lóð félagsins að Stakksbraut 9 þar
sem kísilverksmiðja United Silicon
mun rísa.
10. JÚLÍ 2015
RISAOFN HÍFÐUR FRÁ
BORÐI Í HELGUVÍK
„Það eru stór tímamót
að ofninn sé kominn
til landsins. Það er
búið að vinna í þessu í
tæpt ár frá því skrifað
var undir samninga.
Við hófum svo fram-
kvæmdir á svæðinu í
september. Það er búið að teikna og
hanna en menn hafa ekki almennilega
séð hvernig afraksturinn verður fyrr
en núna þegar búnaðurinn kemur,“
segir Helgi Björn, yfirverkfræðingur hjá
United Silicon. Stórt skref var stigið í
byggingu kísilverksmiðju þegar félagið
tók á móti 32 megavatta ofni á mánudag
fyrir fyrsta áfanga verksmiðjunnar.
Ofninn, sem er frá Tenova Pyromet,
mun framleiða um 21.500 tonn af kísli
á ári en framleiðsla mun hefjast á vor-
mánuðum á næsta ári. Kísilverið verður
36 metrar á hæð og mun mest sjást í
lofthreinsibúnaðinn, sem verður um
18 metrar.
10. SEPTEMBER 2015
FRAMLEIÐSLA HEFST
Í MAÍ Á NÆSTA ÁRI
Kísilver United Silicon rís hratt þessa
dagana í Helguvík. Fyrsti ofn kísil-
versins hefur verið settur saman og
nú er unnið að því að setja saman stál-
grind verksmiðjuhússins. Fyrirtækið
er að ráða til sín starfsmenn og munu
nokkrir hefja störf á næstu vikum en
fleiri um áramót.
10. OKTÓBER 2015
LANDSNET VER EINUM OG
HÁLFUM MILLJARÐI Í HELGUVÍK
Landsnet fjárfestir á
Suðurnesjum fyrir um
einn og hálfan milljarð
króna á þessu ári í því
að leggja jarðstreng
frá Fitjum að Helguvík
og í byggingu tengi-
virkis í Helguvík.
Verkefnið sem um ræðir er lagning 132
kV strengs milli Fitja og Helguvíkur en
strengurinn ásamt tengivirkinu Stakki
í Helguvík, sem Landsnet er líka að
láta byggja, eru liðir í því að uppfylla
samning Landsnets um flutning raforku
til kísilvers United Silicon sem verið er
að reisa í Helguvík. Á tengingin að vera
tilbúin 1. febrúar 2016.
19. OKTÓBER 2015
Á ANNAÐ HUNDRAÐ
STARFSMENN VIÐ BYGGINGU
KÍSILVERS UNITED
Á annað hundrað manns starfa nú við
framkvæmdir hjá United Silicon kísil-
verinu í Helguvík.
„Þetta hefur gengið ágætlega, nokkurn
veginn samkvæmt áætlun. Við erum
kannski örlítið á eftir en ætlum að vinna
það upp. Við stefnum að því að hefja
hér framleiðslu í maí næsta vor eins og
upphafleg plön gerðu ráð fyrir,“ sagði
Magnús Garðarsson, framkvæmda-
stjóri og aðaleigandi United Silicon
fyrirtækisins en það reisir nú kísilver
í Helguvík.
31. MAÍ 2016
FYRSTA HRÁEFNIÐ FYRIR
KÍSILVINNSLU Í HELGUVÍK
KOMIÐ
Fyrsti farm ur inn af hrá efni fyr ir nýtt
kís il ver United Silicon í Helgu vík er
kominn til landsins. Um var að ræða
tæp lega sex þúsund tonn af kvars sem
er stein teg und og meðal grun nefna sem
notuð eru við kís il vinnsl una. Í næsta
mánuði munu send ing ar af öðrum hrá-
efn um ber ast og í lok júní er gert ráð
fyr ir að próf an ir á kísilverinu hefj ist.
15. JÚLÍ 2016
ÍAV OG UNITED SILICON DEILA
UM FRAMKVÆMDIR Í HELGUVÍK
Íslenskir Aðalverk-
takar hættu fram-
kvæmdum við kísil-
ver United Silicon í
Helguvík á hádegi í
gær. Að sögn Sigurðar
R. Ragnarssonar, for-
stjóra ÍAV, var það
vegna ógreiddra skulda sem slaga
hátt í milljarð. Ekki er öll upphæðin
þó gjaldfallin. Hins vegar segir Magnús
Garðarsson, framkvæmdastjóri United
Silicon, að fyrirtækið hafi rift samningi
við ÍAV vegna ýmissa vanefnda, til að
mynda við skil á verkinu sem hann segir
hafa tafist. Þá hafi ÍAV innheimt hærri
upphæð en samið var um. „Við fengum
þau skilaboð að United Silicon ætli ekki
að greiða neitt af þessari upphæð og
því var þessi ákvörðun tekin,“ segir
Sigurður.
29. JÚLÍ 2016
EINA STÓRIÐJA LANDSINS
ÁN SÉRKJARASAMNINGA
Kristján Gunnarsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennis, segir það mikil vonbrigði að
United Silicon og Samtök atvinnulífsins
muni ekki ætla að gera sérkjarasamn-
inga við starfsmenn kísilverksmiðj-
unnar sem er að rísa í Helguvík. Fyrir
vikið verði verksmiðjan eina stóriðjan
á Íslandi sem ekki gerir slíka samninga
við starfsfólk sitt. Hann gerir ráð fyrir
því að erfitt verði að manna verksmiðj-
una nema með erlendu vinnuafli.
11. OKTÓBER 2016
BYRJAÐ AÐ KYNDA UPP
OFNINN Í KÍSILVERINU Í
HELGUVÍK
Tímamót urðu í starfsemi kísil-
vers United Silicon í Helguvík
skömmu fyrir hádegi þegar eldur
var kveiktur í fyrsta ofni kísil-
versins. Eldurinn þarf að loga í 60
klukkustundir áður en bræðsla á
kísli hefst í kísilverinu.
Eldurinn sem kveiktur var í
morgun er til að herða kísilofn-
inn en í eldinum verður brennt
timbur sem safnast hefur upp á
framkvæmdatímanum í Helugvík.
Notaðir voru kyndlar og grill-
vökvi til að kveikja upp í ofninum
en þegar framleiðsla fer í gang á
næstu dögum þá verður eldsneytið
annað og m.a. hleypt rafmagni á
ofninn.
13. NÓVEMBER 2016
KÍSILMÁLMVERKSMIÐJA UNITED
SILICON KOMIN Í GANG
Kísilmálmframleiðsla
hjá United Silicon í
Helguvík var gangsett
í dag. Þetta er fyrsta
kísilmálmverksmiðjan
á Íslandi. Iðnaðar- og
viðskiptaáðherra,
Ragnheiður Elín Ár-
nasdóttir, setti ljósbogaofn verksmiðj-
unnar, sem framleiðir kísilinn, af stað
og var það vel við hæfi þar sem hún tók
fyrstu skóflustunguna að verksmiðjunni
í ágúst 2014.
17. NÓVEMBER 2016
SÚR BRUNALYKT FRÁ
KÍSILVERI PIRRAR BÆJARBÚA Í
REYKJANESBÆ
Samfélagsmiðlar í Reykjanesbæ loga
vegna lyktar sem berst frá kísilveri
United Silicon. Í norðanáttinni berst
megn reykjarlykt frá kísilbræðslunni.
Lyktin er súr viðarbrunalykt en tréflís
er eitt af þeim hráefnum sem notað er
í kísilbræðsluna ásamt kolum.
„Svakalega er vond lykt úti,“ skrifar
bæjarbúi í Reykjanesbæ inn á samfélags-
miðilinn Reykjanesbær - gerum góðan
bæ betri.
Í svari við færsluna segir annar bæj-
arbúi: „Er hægt að bjóða okkur upp á
þetta? Vaknaði með svaka hausverk og
ógeðslega lykt í loftinu! Held að þessi
verksmiðja sé stórhættuleg heilsu allra
hér í Reykjanesbæ“.
17. NÓVEMBER 2016
ÓHREINSAÐUR REYKUR ÚR
KÍSILVERI ÁSTÆÐA LYKTAR
Súra brunalykt frá kísilveri United Sili-
con í Helguvík hefur lagt yfir Reykja-
nesbæ í gær og í dag. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Umhverfisstofnun fékk
stofnunin þær skýringar frá tengiliðum
fyrirtækisins að blásarar fyrir afsog á
reyk úr ofnum og ofnhúsi hafi verið
stilltir á lágan styrk í gærmorgun þar
sem verið var að vinna í síuhúsi fyrir
reykhreinsivirkin. Fyrir mistök var
styrkur blásara ekki stilltur upp aftur
fyrr en í gærkvöld. Af þessum sökum
fór reykur að hluta óhreinsaður út um
dyr verksmiðjunnar í gær, í stað þess að
fara í gegnum reykhreinsivirkin.
25. NÓVEMBER 2016
BÆJARRÁÐ LÝSIR YFIR
ÁHYGGJUM AF REYK- OG
LYKTARMENGUN FRÁ KÍSILVERI
Bæjarráð Reykjanesbæjar lýsti á fundi
sínum í gær yfir áhyggjum af lyktar- og
reykmengun frá kísilveri United Sili-
con í Helguvík en líkt og Víkurfréttir
hafa greint frá fundu íbúar fyrir henni
eftir að verksmiðjan hóf framleiðslu
um síðustu helgi. Bæjarráð Reykjanes-
bæjar hefur falið Kjartani Má Kjartans-
syni, bæjarstjóra, að óska eftir skýrslu
frá Umhverfisstofnun og að fulltrúar
hennar mæti á næsta fund bæjarráðs
þann 1. desember næstkomandi.
28. NÓVEMBER 2016
STARFSMENN UNITED
SILICON KVARTA EKKI UNDAN
ÓÞÆGINDUM
„United Silicon telur rétt að það komi
fram að starfsmenn fyrirtækisins hafa
mætt sérstaklega vel til vinnu og enginn
þeirra kvartað undan óþægindum vegna
reyks eða lyktar. United Silicon er annt
um starfsmenn sína sem og bæjarbúa
alla, heilsa þeirra og öryggi er í for-
gangi“. Þetta kemur fram í nýrri yfir-
lýsingu frá fyrirtækinu til fjölmiðla í
kjölfar umfjöllunar fjölmiðla síðustu
daga um starfsemi United Silicon.
1. DESEMBER 2016
SETJA UPP LOFTGÆÐAMÆLI
Í HEIÐARHVERFI Í KEFLAVÍK
Loftgæðamælir verður settur upp í
nágrenni við Heiðarskóla til að mæla
mengun frá kísilveri United Silicon.
Þetta er meðal þess sem fram kom í
spjalli Sjónvarps Víkurfrétta við Kjartan
Má Kjartansson, bæjarstjóra Reykja-
nesbæjar og Sigríði Kristjánsdóttur,
teymisstjóra eftirlitsteymis hjá Um-
hverfisstofnun. Sigríður mætti á fund
bæjarráðs Reykjanesbæjar vegna loft-
mengunar frá kísilverinu.
9. DESEMBER 2016
HALDA ÍBÚAFUND VEGNA
MENGUNAR FRÁ KÍSILVERI
UNITED SILICON
Haldinn verður íbúafundur vegna
mengunar frá kísilveri United Sili-
con í Helguvík næsta miðvikudag, 14.
desember klukkan 20:00. Fulltrúar frá
bæjarstjórn Reykjanesbæjar, United
Silicon, Orkurannsóknum Keilis og Um-
hverfisstofnun munu flytja framsögu. Á
fundinum verða pallborðsumræður og
opið fyrir fyrirspurnir úr sal. Fundurinn
verður haldinn í Stapa.
14. DESEMBER 2016
ÍBÚAFUNDUR: EKKI SAMKVÆMT
REGLUM AÐ REYKUR FARI ÚT
UM DYR VERKSMIÐJU
Fulltrúi United Sili-
con, Kristleifur Andr-
ésson, fjallaði í fram-
sögu sinni á íbúafundi
í Stapa nú áðan meðal
annars um myndband
af starfseminni sem
birt var á vef Stundar-
innar á dögunum. Þar sagði hann að þar
hafi starfsmenn verið að gera svokallaða
kísilsæng. Hann sagði aðferðina notaða
víða um heim en að ekki standi til að
nota hana almennt í kísilverinu. Í mynd-
bandinu sést reykur úr framleiðslunni
fara út um dyr verksmiðjunnar og sagði
hann það ekki samkvæmt starfsreglum.
5. JANÚAR 2017
EKKI Í SAMRÆMI VIÐ
STARFSLEYFI AÐ KÍSILRYK
SLEPPI ÚT
Umhverfisstofnun bárust sex kvartanir
um lykt frá kísilveri United Silicon í
Helguvík á gamlársdag og tvær þriðju-
daginn 2. janúar. Að sögn Sigríðar Krist-
jánsdóttur, teymisstjóra eftirlitsteymis
hjá stofnuninni berast kvartanir með
nokkuð jöfnu millibili. Á gamlársdag var
norðanátt og voru nokkrir íbúar sem
tjáðu sig á samfélagsmiðlum um lyktina
sem þeir töldu berast frá kísilverinu.
2. FEBRÚAR 2017
SLÖKKT TÍMABUNDIÐ Á OFNI
KÍSILVERS VEGNA BILUNAR
Búið er að slökkva á ofni kísilvers United
Silicon í Helguvík vegna bilunar. Að
sögn Kristleifs Andréssonar, stjórnanda
öryggis- og umhverfismála hjá United
Silicon, uppgötvaðist leki með einni
af fimm töppunarholum úr ofninum
á mánudag í síðustu viku. Lekinn var
vegna galla í steyptri blokk í holunni
en slíkar töppunarholur eru notaðar til
að hleypa málmi úr ofninum. „Það var
ákveðið að slökkva á ofninum og gera
fullnaðarviðgerð á þessu. Það tekur
nokkra daga að fá bæði blokkirnar og
viðgerðarefni,“ segir hann.
16. FEBRÚAR 2017
58 ÁBENDINGAR UM
LYKTARMENGUN TIL
UMHVERFISSTOFNUNAR
Umhverfisstofun hafa borist 58 ábend-
ingar um lyktarmengun frá kísilveri
United Silicon í Helguvík síðan í gær-
KÍSILANNÁLL UNITED SILICON 2014–2018