Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.01.2018, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 25.01.2018, Blaðsíða 28
28 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg. HALLGRÍMUR HÆTTIR MEÐ NJARÐVÍK Hallgrímur Brynjólfsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í Domino’s- deild kvenna í körfu er hættur með liðið, þetta kemur fram í til- kynningu á Facebook-síðu körfu- knattleiksfélags Njarðvíkur. Þar kemur meðal annars fram að félagið og Hallgrímur hafi komist að samkomulagi um það að Hallgrímur stigi til hliðar sem þjálfari liðsins, hann hafi komið til klúbbsins í byrjun vetrar með miklum eldmóð en að árangur liðsins hafi hins vegar verið undir væntingum, bæði stjórnar og þjálfarans, og var það hugur beggja aðila að tími væri kominn á að slíta samstarfinu. „Stjórn kkd. UMFN vil koma fram þökkum til Hallgríms fyrir störf hans fyrir félagið og þá fagmennsku sem hann hefur sýnt allt til loka samstarfs- ins og um leið óskum honum vel- farnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir næst. Ragnar Halldór Ragnarsson mun stýra liðinu til loka tímabils í það minnsta en Ragnar var aðstoðarþjálfari liðsins á síðasta tímabili. Við bjóðum Ragnar um leið velkomin aftur á hliðarlínuna.“ AÐALFUNDUR MÁNA Framhaldsaðalfundur Hestamannafélagsins Mána verður haldinn þriðjudaginn 13. febrúar 2018 kl. 20.00 í Reiðhöll Mána. Dagskrá: 1. Reikningar 2017 2. Önnur mál Stjórn Mána Störf í boði hjá Reykjanesbæ Byggðasafn – Safnstjóri Hæfingarstöðin – Hlutastarf við ræstingar Hljómahöll – Umsjónarmaður veitinga/verkefnisstjóri Íþróttahúsið við Sunnubraut – Störf í vaktavinnu Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á facebook síðunni Reykjanesbær – laus störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði. Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Sandgerðis verður haldinn í Vörðunni miðvikudaginn 31. janúar kl. 20. Eitt mál er á dagskrá: Sameining sjálfstæðisfélaganna í Sandgerði og Garði. Stjórnin Viðburðir í Reykjanesbæ Bókasafn Reykjanesbæjar - viðburðir framundan Fimmtudaginn 25. janúar: Foreldramorgunn í Bókasafni Reykjanesbæjar kl. 11:00-12:00. Kristín Maríella kynnir RIE uppeldisaðferðina. Föstudaginn 26. janúar: Bókabíó kl. 16:30. Ronja ræningjadóttir eftir sögu Astrid Lindgren verður sýnd. Tilboð í Ráðhúskaffi; kleinuhringur og kókómjólk á 450 krónur. Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir. Þriðjudaginn 30. janúar: Námskeið í síðari hluta Njálssögu kl. 19:30, alls sex skipti. Nauðsynlegt er að skrá sig í afgreiðslu safnsins eða á sofn.reykjanesbaer. is/bokasafn. Verð 5.000 kr.- kaffi og meðlæti innifalið. SMÁAUGLÝSINGAR ÓSKAST Er ekki einhver þarna úti sem vill leigja reglusamri þriggja manna fjöl- skyldu og einum góðum og ljúfum voffa 3–4 herbergja íbúð í Reykja- nesbæ. Öruggar greiðslur, og frábær meðmæli ef óskað er. Nánari uppl í sima: 8655719 og 8985752 Skóli í Bandaríkjunum kemur í ljós á næstu mánuðum AUKAÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN - Thelma Dís Ágústsdóttir var valin íþróttakona Reykjanesbæjar 2017 „Það er ótrúlega gaman að fá viðurkenningar þegar maður er búinn að standa sig vel,“ segir körfuboltakonan Thelma Dís Ágústsdóttir, en hún var valin íþróttakona Reykjanesbæjar 2017 eftir frábært ár. Thelma er einn af lykilmönnum meistaraflokks Keflavíkur en hún varð meðal annars Íslands- og bikarmeistari með flokknum á liðnu ári. Þá var hún einnig valin besti leikmaður deildarinnar á lokahófi KKÍ og körfuknattleikskona Keflavíkur. Thelma var í hópi A-landsliðsins í öllum tilfellum á liðnu ári og hefur nú leikið níu landsleiki. „Ég hef alltaf haft góða þjálfara, alltaf mætt vel á æfingar og æft aukalega. Ef metnaðurinn er til staðar og markmiðin eru skýr er allt hægt,“ svarar Thelma þegar hún er spurð hver lykillinn að svona góðum árangri sé. Hún segist alltaf hlakka til að fara á æfingar með Keflavík því þær séu svo skemmtilegar, en alveg frá því hún var lítil hefur íþróttin heillað hana. „Mamma var í körfubolta svo ég hef í rauninni alist svolítið upp í kringum íþróttina. Það var því aldrei spurning hvort ég byrjaði að æfa körfubolta þó ég hafi gaman að flestum öðrum íþróttum,“ segir Thelma, en móðir hennar er Björg Hafsteinsdóttir, ein af bestu körfuboltakonum í sögu Keflavíkur. Íslands- og bikarmeistatitlarnir stóðu upp úr á árinu hjá Thelmu en þeir voru fyrstu stóru titlarnir hjá henni og flestum stelpunum í liðinu. Sætasti sigur ársins segir Thelma þó hafa verið leikur fjögur á móti Snæfelli þegar Keflvíkingar unnu Íslands- meistaratitilinn. „Birna var í banni, en hún hafði verið mjög góð í leikjunum á undan og við hinar þurftum að stíga upp, sem við gerðum. Húsið var líka troðfullt sem gerði þetta ennþá skemmtilegra.“ Thelma stefnir á það að halda áfram í körfubolta, hvort sem það verði hér á landi eða erlendis. „Ég hef haft hug á því að fara í skóla í Bandaríkjunum og það kemur í ljós á næstu mánuðum.“ solborg@vf.is UTANVALLAR   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.