Víkurfréttir - 25.01.2018, Blaðsíða 17
17MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg.
Mikilvægt að vera góður við náungann
-Elenora Rós bakaði og seldi kökur fyrir hálfa milljón og styrkti Barnaspítala Hringsins. Frábær fyrirmynd og frumkvöðull.
peningur að mínu mati, með skóla
og vinnu og öllu því sem ég var þar
að auki að sinna.“
Eftir að Elenora opnaði Facebook-
síðuna liðu ekki nema um það bil
þrjár klukkustundir þar til hún fékk
fyrstu pöntunina. „Það var mamma
vinkonu minnar, svo hringdi frænka
mín í mig og svoleiðis var þetta bara
koll af kolli. Ég var með svona þrjár
kökur í hverri viku í minnsta lagi og
ég var aldrei í fríi um helgar,“ segir
hún, en verkefnið fannst henni ótrú-
lega skemmtilegt þó það hafi vissulega
verið ótrúlega krefjandi.
ALLTAF LANGAÐ AÐ VERÐA BAKARI
Elenora ver miklum tíma þessa dag-
ana í bakaríinu Sandholti á Lauga-
veginum, en þar er hún í starfsnámi.
Hana hefur alltaf langað til þess að
verða bakari.
„Ég var staðráðin í því að verða bak-
ari þegar ég var lítil. Það er ekkert
sem mér finnst leiðinlegt að gera í
bakaríinu, nema að skræla epli, ég
er voðalega lítið fyrir það,“ segir hún
og hlær. Alls kyns kökur og tertur,
vínarbrauð og krem þykir Elenoru
heillandi og einn daginn stefnir hún
á það að opna sinn eigin stað. „Mig
langar að geta ráðið öllu og gert allt
rosalega huggulegt.“
Hún er þó mjög sátt í starfsnáminu
sínu í Sandholti og segir fólkið þar
yndislegt og bakaríið flott. „Við gerum
allt frá grunni, það er ekkert keypt
frosið eða innflutt sem mér finnst
skipta rosalegu miklu máli. Það er
mikið skipulag á staðnum og mér er
hent út í öll verkefni sem er ótrúlega
krefjandi en það styrkir sjálfstraustið
mitt og mér finnst það skemmtilegt.
Ég gæti ekki hugsað mér að gera neitt
annað.“
HLEYPUR HÁLFT MARAÞON
Elenora bakaði þó ekki einungis
kökur til að safna pening fyrir Barna-
spítalann heldur hljóp hún einnig í
Reykjavíkurmaraþoninu síðastliðið
sumar. „Ég hef aldrei verið mikil
íþróttamanneskja en þetta var ótrú-
lega skemmtilegt. Ég kom heim frá
Danmörku fjórum klukkutímum fyrir
maraþonið sjálft. Ég vissi ekkert hvað
ég var að koma mér út í en ég ákvað
þó að skella mér í þetta. Tilfinningin
að koma í mark var ótrúleg og stemn-
ingin var klikkuð.“
Næsta sumar stefnir Elenora á það að
taka þetta ennþá lengra og hlaupa 21
kílómetra. „Sú ákvörðun var rosalega
óútpæld en ég er núna búin að kaupa
mér kort í ræktina, sem ég held að sé
svona fyrsta skrefið, þó ég sé bara
búin að mæta einu sinni. Það eru átta
mánuðir í þetta og ég held að þetta
verði allt í lagi,“ segir hún og hlær.
Aðalatriðið sé málefnið, en ekki það
að vera fyrst í mark.
„Þarna eru allir að styrkja fallegt mál-
efni og láta gott af sér leiða. Það eru
allir í þessu saman, fullt af fólki á
hliðarlínunni að hvetja mann áfram,
fólk í heimahúsum að bjóða hlaup-
urum upp á vatn að drekka og góð
tónlist. Ég er bara spennt fyrir því
að fara lengri leið núna og upplifa
ennþá meiri stemningu,“ segir hún.
STOPPAR ALDREI
Það er sjaldan pása hjá Elenoru Rós
en henni finnst mikilvægt að vera
virk og leiðinlegt að hafa lítið að gera.
Hún byrjar flesta morgna á góðum
morgunmat og góðri tónlist klukkan
sjö og vinnur svo hörðum höndum
í bakaríinu frá klukkan átta til sex.
„Það er oftast nóg að gera hjá mér frá
því ég vakna og þar til ég fer að sofa.
Það bíður mín oftast eitthvað verkefni
þegar ég klára að vinna. Þessa dagana
erum við að setja upp söngleikinn
Hairspray í skólanum.“
Þá daga sem Elenora er í fríi nýtir hún
vel, en hún segist þó vera örsjaldan
í fríi. „Ég finn mér annars alltaf eitt-
hvað skemmtilegt að gera.“
HÆGT AÐ LÁTA GOTT AF SÉR
LEIÐA Á MARGA VEGU
Tilfinningin sem Elenora upplifði
þegar hún afhenti Hrings-konum
peninginn eftir alla vinnuna segir hún
hafa verið afar góða, en Hrings-konur
höfðu aldrei áður fengið svona unga
manneskju til sín sem safnað hafði
jafn hárri upphæð fyrir spítalann.
„Þetta er það besta sem ég hef gert
í lífinu og það var svo góð tilfinning
að labba þaðan út. Ég var í alvöru
með tárin í augunum og brosandi
út að eyrum.“
Elenora stefnir á það að safna fyrir
gott málefni aftur einn daginn, en
hvaða málefni verður fyrir valinu er
hún ekki viss með.
Eftir allt erfiðið og alla vinnuna
sem fylgdi því að safna þessum fjár-
munum fyrir Barnaspítala Hringsins
hlýtur Elenora titilinn „Maður ársins“
sem hún segist þó ekki hafa búist
við. „Ég vissi ekki hvort þetta væri
einhver brandari. Þetta er ótrúlega
góð tilfinning.“ Páll Ketilsson, rit-
stjóri Víkurfrétta, sagði þegar hann
tilkynnti Elenoru um tilnefninguna
að hún væri glæsileg fyrirmynd ungs
fólks, léti drauma sína rætast um
leið og hún léti gott af sér leiða. El-
enora, sem vinnur með uppskriftir
alla daga, er sjálf frábær uppskrift
að þessari nafnbót, „Maður ársins á
Suðurnesjum 2017.“
Það skiptir miklu máli að láta gott
af sér leiða að sögn Elenoru, en það
þurfi þó ekki að vera á sömu vegu
og hún gerði. „Maður þarf ekkert að
gefa margar milljónir til að láta gott
af sér leiða. Það er bara mikilvægt að
vera góður við náungann.“
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
VIÐTAL
Elenora Rós í Sandholti þar sem hún er í starfsnámi í bakaraiðn.
Elenora Rós og Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, með kökuna sem hún bakaði.
Elenora Rós bauð að
sjálfsögðu í kaffi og köku í
tilefni af útnefningunni sem
Suðurnesjamaður ársins 2017.