Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.01.2018, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 25.01.2018, Qupperneq 17
17MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg. Mikilvægt að vera góður við náungann -Elenora Rós bakaði og seldi kökur fyrir hálfa milljón og styrkti Barnaspítala Hringsins. Frábær fyrirmynd og frumkvöðull. peningur að mínu mati, með skóla og vinnu og öllu því sem ég var þar að auki að sinna.“ Eftir að Elenora opnaði Facebook- síðuna liðu ekki nema um það bil þrjár klukkustundir þar til hún fékk fyrstu pöntunina. „Það var mamma vinkonu minnar, svo hringdi frænka mín í mig og svoleiðis var þetta bara koll af kolli. Ég var með svona þrjár kökur í hverri viku í minnsta lagi og ég var aldrei í fríi um helgar,“ segir hún, en verkefnið fannst henni ótrú- lega skemmtilegt þó það hafi vissulega verið ótrúlega krefjandi. ALLTAF LANGAÐ AÐ VERÐA BAKARI Elenora ver miklum tíma þessa dag- ana í bakaríinu Sandholti á Lauga- veginum, en þar er hún í starfsnámi. Hana hefur alltaf langað til þess að verða bakari. „Ég var staðráðin í því að verða bak- ari þegar ég var lítil. Það er ekkert sem mér finnst leiðinlegt að gera í bakaríinu, nema að skræla epli, ég er voðalega lítið fyrir það,“ segir hún og hlær. Alls kyns kökur og tertur, vínarbrauð og krem þykir Elenoru heillandi og einn daginn stefnir hún á það að opna sinn eigin stað. „Mig langar að geta ráðið öllu og gert allt rosalega huggulegt.“ Hún er þó mjög sátt í starfsnáminu sínu í Sandholti og segir fólkið þar yndislegt og bakaríið flott. „Við gerum allt frá grunni, það er ekkert keypt frosið eða innflutt sem mér finnst skipta rosalegu miklu máli. Það er mikið skipulag á staðnum og mér er hent út í öll verkefni sem er ótrúlega krefjandi en það styrkir sjálfstraustið mitt og mér finnst það skemmtilegt. Ég gæti ekki hugsað mér að gera neitt annað.“ HLEYPUR HÁLFT MARAÞON Elenora bakaði þó ekki einungis kökur til að safna pening fyrir Barna- spítalann heldur hljóp hún einnig í Reykjavíkurmaraþoninu síðastliðið sumar. „Ég hef aldrei verið mikil íþróttamanneskja en þetta var ótrú- lega skemmtilegt. Ég kom heim frá Danmörku fjórum klukkutímum fyrir maraþonið sjálft. Ég vissi ekkert hvað ég var að koma mér út í en ég ákvað þó að skella mér í þetta. Tilfinningin að koma í mark var ótrúleg og stemn- ingin var klikkuð.“ Næsta sumar stefnir Elenora á það að taka þetta ennþá lengra og hlaupa 21 kílómetra. „Sú ákvörðun var rosalega óútpæld en ég er núna búin að kaupa mér kort í ræktina, sem ég held að sé svona fyrsta skrefið, þó ég sé bara búin að mæta einu sinni. Það eru átta mánuðir í þetta og ég held að þetta verði allt í lagi,“ segir hún og hlær. Aðalatriðið sé málefnið, en ekki það að vera fyrst í mark. „Þarna eru allir að styrkja fallegt mál- efni og láta gott af sér leiða. Það eru allir í þessu saman, fullt af fólki á hliðarlínunni að hvetja mann áfram, fólk í heimahúsum að bjóða hlaup- urum upp á vatn að drekka og góð tónlist. Ég er bara spennt fyrir því að fara lengri leið núna og upplifa ennþá meiri stemningu,“ segir hún. STOPPAR ALDREI Það er sjaldan pása hjá Elenoru Rós en henni finnst mikilvægt að vera virk og leiðinlegt að hafa lítið að gera. Hún byrjar flesta morgna á góðum morgunmat og góðri tónlist klukkan sjö og vinnur svo hörðum höndum í bakaríinu frá klukkan átta til sex. „Það er oftast nóg að gera hjá mér frá því ég vakna og þar til ég fer að sofa. Það bíður mín oftast eitthvað verkefni þegar ég klára að vinna. Þessa dagana erum við að setja upp söngleikinn Hairspray í skólanum.“ Þá daga sem Elenora er í fríi nýtir hún vel, en hún segist þó vera örsjaldan í fríi. „Ég finn mér annars alltaf eitt- hvað skemmtilegt að gera.“ HÆGT AÐ LÁTA GOTT AF SÉR LEIÐA Á MARGA VEGU Tilfinningin sem Elenora upplifði þegar hún afhenti Hrings-konum peninginn eftir alla vinnuna segir hún hafa verið afar góða, en Hrings-konur höfðu aldrei áður fengið svona unga manneskju til sín sem safnað hafði jafn hárri upphæð fyrir spítalann. „Þetta er það besta sem ég hef gert í lífinu og það var svo góð tilfinning að labba þaðan út. Ég var í alvöru með tárin í augunum og brosandi út að eyrum.“ Elenora stefnir á það að safna fyrir gott málefni aftur einn daginn, en hvaða málefni verður fyrir valinu er hún ekki viss með. Eftir allt erfiðið og alla vinnuna sem fylgdi því að safna þessum fjár- munum fyrir Barnaspítala Hringsins hlýtur Elenora titilinn „Maður ársins“ sem hún segist þó ekki hafa búist við. „Ég vissi ekki hvort þetta væri einhver brandari. Þetta er ótrúlega góð tilfinning.“ Páll Ketilsson, rit- stjóri Víkurfrétta, sagði þegar hann tilkynnti Elenoru um tilnefninguna að hún væri glæsileg fyrirmynd ungs fólks, léti drauma sína rætast um leið og hún léti gott af sér leiða. El- enora, sem vinnur með uppskriftir alla daga, er sjálf frábær uppskrift að þessari nafnbót, „Maður ársins á Suðurnesjum 2017.“ Það skiptir miklu máli að láta gott af sér leiða að sögn Elenoru, en það þurfi þó ekki að vera á sömu vegu og hún gerði. „Maður þarf ekkert að gefa margar milljónir til að láta gott af sér leiða. Það er bara mikilvægt að vera góður við náungann.“ Sólborg Guðbrandsdóttir solborg@vf.is VIÐTAL Elenora Rós í Sandholti þar sem hún er í starfsnámi í bakaraiðn. Elenora Rós og Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, með kökuna sem hún bakaði. Elenora Rós bauð að sjálfsögðu í kaffi og köku í tilefni af útnefningunni sem Suðurnesjamaður ársins 2017.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.