Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.01.2018, Blaðsíða 29

Víkurfréttir - 25.01.2018, Blaðsíða 29
29ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg. „Fótboltinn er mitt helsta áhugamál“ Knattspyrnukonan Dröfn Einarsdóttir var valin íþróttakona Grindavíkur árið 2017, en hún leikur með knattspyrnuliði Grindavíkur og hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands. Dröfn segir að fótboltinn hafi verið sitt helsta áhugamál frá unga aldri og svo sé fé- lagsskapurinn skemmtilegur. Titilinn segir Dröfn hafa komið sér á óvart en hún er afar stolt með nafnbótina. Grindvík- ingum gekk ágætlega í Pepsi-deildinni í sumar en stelpurnar komu mörgum á óvart þar sem þeim var spáð falli af ýmsum spekingum. Þær enduðu í sjöunda sæti deildarinnar. „Landsliðsverkefnin með U19 ára landsliðinu standa upp úr á árinu hjá mér ásamt ágætu gengi okkar í Pepsi-deildinni. Sigurinn á Íslands- meisturum Þór/KA er sætasti sigur sumarsins en við unnum þær á heimavelli 3-2,“ segir hún. Dröfn er fædd og uppalin í Grindavík og hefur alla sína tíð spilað með heimaliðinu sínu. „Það er mjög gott að æfa í Grindavík, mórallinn í liðinu okkar er góður og stelpurnar eru frábærar.“ Hún segist vera farin að velta framtíðinni aðeins fyrir sér og að heimurinn sé alltaf að opnast meira í kvennaknattspyrnunni en margar stelpur hafa farið til Bandaríkjanna í nám og stundað knattspyrnu samhliða. „Stelpur er farnar í atvinnumennsku í Evrópu og er Ingi- björg Sigurðardóttir, sem lék á sínum yngri árum með Grindavík, farin til dæmis að leika með Djurgården. Hún er góð fyrirmynd fyrir ungar stelpur hér.“ Það kostar mikla vinnu og eljusemi ef maður ætlar að ná í íþróttum og segir Dröfn að svefn sé mjög mikilvægur ef maður ætli sér að ná langt. „Mataræðið skiptir líka máli, svo er það aukaæfingin sem skapar meistarann.“ „Við stefnum á gullið“ Ólafur Ólafsson var kjörinn íþróttamaður ársins hjá Grindavík árið 2017, en hann spilar körfubolta með meistaraflokki karla í Grinda- vík og er fæddur og uppalinn Grindvíkingur. Ólafur segir það mikinn heiður að hafa fengið þessa nafnbót og að þetta hafi verið góður endir á árinu. Enginn bjóst við okkur í úrslitum Þegar Ólafur er spurður hvað standi upp úr á síðasta ári segir hann það vera árangurinn sem liðið náði en Grindavík komst í úrslit í körfunni og lék við KR um það hvort liðið stæði uppi sem Íslandsmeistari. „Við náðum að koma öllum á óvart og það var geðveikt að fara svona langt. Hjá mér stendur líka upp úr að hafa verið valinn í úrvalslið KKÍ, það var mikill heiður, en fyrst og fremst var það árangur okkar í körfunni sem stóð upp úr og þetta var hrikalega skemmti- legur vetur.“ Einn dagur í einu Ólafur segir það alltaf gaman að æfa og spila fyrir uppeldisklúbbinn sinn og hann hefur sett sér þá reglu að taka bara einn dag í einu því hann veit ekkert hvað gerist á morgun hjá sér. „Ég sé það líka fyrir mér á næstu árum að ég verði betri útgáfa af sjálfum mér með hverjum deginum sem líður, en ég tek eitt skref í einu.“ Leikur þrjú í DHL höllinni á móti KR í úrslit- unum segir Ólafur hafa verið sætasti sigurinn ásamt leik tvö í fjögurra liða úrslitunum gegn Tindastóli. Gull en ekki silfur Grindavík stefnir á gullið í vor eða Íslands- meistaratitilinn í körfu, en Ólafur segir lykilinn af góðum árangri vera sá að æfa vel. „Æfa meira en aðrir, fá góðan svefn, borða hollan og góðan mat og vera tilbúinn að skuldbinda sig.“ Alltaf jafn skemmtilegt í körfubolta Ólafur hefur æft körfu frá unga aldri og segir það alltaf jafn skemmtilegt. „Ég veit ekki hvað það er sem heillar mig helst við körfuna en mér finnst þetta bara svo ógeðslega skemmti- legt. Bara það að koma inn í íþróttahúsið og fara inn í klefa og hitta strákana er eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Ég gæti ekkert í körfubolta ef ég hefði ekki gaman af honum og hefði gaman með þeim sem eru með mér í liði.“ rannveig@vf.is ÚTBOÐ Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið ” Heiðargerði – Gatnagerð og lagnir – Endurgerð götu ”. Verkið er fólgið í endurgerð götunnar Heiðargerði í Vogum sem er íbúðagata í grónu og fullbyggðu hverfi. Um er að ræða; uppúrtekt í götu og fyrir lögnum, fyllingar í götustæði og yfir lagnir, söndun og lagningu lagna, tengja lagnir við núverandi lagnir, útlagning jöfnunarlags undir malbik, malbikun, steypa kant- stein, helluleggja gangstétt og annað það sem kemur fram á uppdráttum, í verklýsingu og magnskrá. Helstu magntölur eru u.þ.b: Uppúrtekt 1200 m³ Fyllingar 1220 m³ Malbik 605 m² Fráveitulagnir 118 m Vatnslagnir 92 m Verklok skulu vera eigi síðar en þremur mánuðum eftir að verk hefst skv. sam- þykktri verkáætlun, þó aldrei síðar en 30. september 2018. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti. Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 25. janúar 2018. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en miðvikudaginn 14. febrúar 2018, kl. 11:30 og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. ÚTBOÐ Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið ”Miðsvæði – Gatnagerð og lagnir –2. áfangi” Verkið er fólgið í gatnagerð í nýju íbúðahverfi á Miðsvæði í Vogum; uppúrtekt fyrir götum og lögnum, fyllingar í götustæði og yfir lagnir, söndun og lagningu lagna, leggja lagnir vegna götulýsingar, reisingu ljósataura, útlagning jöfnunar- lags undir malbik, malbikun, tengja lagnir við núverandi lagnir og annað það sem kemur fram á uppdráttum, í verklýsingu og magnskrá. Helstu magntölur eru u.þ.b: Uppúrtekt 2600 m³ Fyllingar 4700 m³ Malbik 4500 m² Fráveitulagnir 700 m Vatnslagnir 425 m Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2018. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti. Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 25. janúar 2018. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en miðvikudaginn 14. febrúar 2018, kl. 11:00 og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.