Fréttablaðið - 03.03.2018, Side 32
Það besta og flottasta af stærstu
snjallsímaráðstefnu heimsins
Risarnir á snjallsímamarkaði komu saman í Barcelona í vikunni til að kynna nýjustu vörur sínar og hugmyndir um
framtíðina á ráðstefnunni Mobile World Congress. Ódýrir símar, ný flaggskip og loforð um innleiðingu 5G farsíma-
nets voru áberandi á ráðstefnunni. Nokia var áberandi á flestum sviðum og kynnti til leiks annan nostalgíusíma.
Frá því 4G farsíma
net var innleitt
víðast hvar hefur
snjallsímanotkun
breyst. Hægt er að
streyma háskerpu
myndböndum
og spila tölvuleiki
án þess að vera á
heimilisnetinu enda
er hraði 4G farsíma
nets umtalsverður. Það
verður því fróðlegt að
sjá hvernig notkunin
breytist enn frekar þegar
5G farsímanet verður
loks innleitt.
Líkt og á flestum tækni
ráðstefnum undanfarinna
missera var mikið rætt um
5G tæknina. Intel tilkynnti
að fyrirtækið ynni með
Spreadtrum að því að þróa 5G
farsímanet og á þeirri vinnu að vera
lokið í lok 2019. Þá er Intel jafnframt
að vinna með Dell, HP, Lenovo og
Microsoft að því að undirbúa næstu
kynslóðir snjallsíma og fartölva
undir 5G farsímanet.
Huawei varð fyrsta fyrirtækið
til þess að kynna 5G beini. Sagði
fyrirtækið a beinirinn myndi virka
bæði með 4G og 5G neti þegar það
yrði loks innleitt og hélt því fram að
prufur fyrirtækisins sýndu fram á að
niðurhalshraði 5G netsins væri tví
tugfaldur á við 4G netið.
Þá tilkynnti ástralska fjarskipta
fyrirtækið Telstra um að 5G far
símanet þess færi í loftið á næsta ári.
Kínverski framleiðandinn ZTE sagðist
vonast til þess að geta boðið upp
á 5G síma fyrir árslok 2018 og hið
bandaríska Spring sagðist ætla að
innleika 5G farsímanet í sex banda
rískum borgum í apríl næstkomandi.
Búið ykkur undir 5G farsímanet
Google tilkynnti í maí síðastliðnum
um að stýrikerfið Android Go væri
væntanlegt. Go er einfaldað af
brigði af Android, sérstaklega gert
til þess að hámarka afköst ódýrari
síma. Þessi tilkynning fór vel í
framleiðendur og voru allnokkrir
ódýrir Android Go símar tilkynntir
í vikunni.
Með því að bjóða upp á ódýra
snjallsíma, sem keyra vel á Gostýri
kerfinu, vilja framleiðendur höfða
til fátækari neytenda til þess að há
marka útbreiðslu snjallsíma. Flestir
þeirra síma sem kynntir voru munu
því kosta um eða undir 10.000
krónum.
Alcatel 1X er innlegg franska
framleiðandans Alcatel í þetta
kapphlaup. Frakkarnir kynntu
reyndar allnokkra ódýrari síma á
ráðstefnunni en 1X er sá ódýrasti
og mun hann kosta um 100 evrur.
ZTE Tempo Go er
annar og Nokia 1
þriðji. Þeir munu
kosta um 80 evrur
hvor.
Enginn þessara
síma er útbúinn
fingrafaraskanna,
vinnsluminni
þeirra er lítið og
örgjörvarnir kraft
litlir miðað við
flaggskipin. Hins
vegar mun stýri
kerfið sjá til þess
að símarnir verði
ákjósanlegur
valkostur fyrir þá
efnaminni.
Höfðað til fátækari
ríkja heims með Go
Á MWC á síðasta ári kynnti Nokia
til leiks uppfærða og nútímalega
útgáfu af gömlu meistaraverki,
Nokia 3310. Nú ákvað fyrirtækið
að leika sama leik og er von á
uppfærðri útgáfu af banana
símanum svokallaða, Nokia
8110. Síminn er einna þekkt
astur úr Matrixmyndunum.
Þótt ekki sé um hefðbund
inn snjallsíma að ræða býr
þessi gamaldags takkasími
yfir mörgum þeirra nútíma
þæginda sem nútíma
maðurinn hefur vanist.
4G farsímanettenging
er í símanum sem og
forrit fyrir Facebook og
Google Maps. Þá á raf
hlaðan einnig að end
ast mun lengur en
rafhlöður snjallsíma
nútímans. Öfugt
við flesta síma nú
tímans er takkaborð
á 8110, skjárinn er lítill
og síminn sjálfur úr plasti.
Í þokkabót verður hann talsvert
ódýrari en meðalsnjallsíminn.
Aftur til fortíðar
Nokkrir símar voru kynntir á MWC í
ár sem eru sérstaklega hannaðir fyrir
þröngan markhóp. Tveir þeirra koma
frá breska fyrirtækinu Bullitt og eru
þeir smíðaðir annars vegar fyrir
vinnuvélaframleiðandann CAT og
hins vegar bifreiðaframleiðandann
Land Rover.
CATsíminn, CAT S61, er útbúinn
tækni sem meðalmaðurinn þarf
varla á að halda í sínu daglega lífi.
Auk þess að vera einstaklega sterk
lega byggður er hann meðal annars
útbúinn FLIRhitamyndavél, leysi
geisla til mælinga og loftgæðamæli.
Myndavélin skynjar hitastig þess
sem henni er beint að, allt frá 20
til 400 gráða. Hægt er að streyma
upptökunni beint á Facebook. Þá
er leysigeislinn notaður til þess að
mæla vegalengdina frá símanum
og að því sem geislanum er beint
að. Loftgæðamælirinn mælir svo
loftgæði á hálftíma fresti og varar
eiganda símans við ef hættuleg efni
finnast í skaðlegu magni í andrúms
loftinu.
Land Roversíminn, Land Rover
Explore, er sömuleiðis afar sterk
byggður. Samkvæmt TechCrunch
virðist hann sérsniðinn að útivistar
fólki. Rafhlöðuendingin þykir stór
kostleg og þá er hann útbúinn tækni
sem gerir símanum kleift að tengjast
farsímaneti þar sem aðrir símar
gætu það síður.
Öfugt við Bullittsímana tvo er
nýi síminn sem Sikur kynnti, Sikur
Phone, ekki sniðinn að iðnaðar
mönnum eða útivistarfólki. Sikur
vildi þess í stað einbeita sér að
gagnaöryggi og rafmyntum. Er
síminn því með innbyggðu raf
myntaveski auk þess sem hann
dulkóðar skilaboð og gögn.
Halda Sikurmenn því fram
að ekki verði hægt að hakka
símann til að stela gögnum.
Kínverska fyrirtækið Vivo
kynnti síma að nafni Apex.
Þó er ekki um væntan
lega söluvöru að ræða,
einungis hugmynd. Var
sýnieintakið á MWC
meðal annars útbúið
tvöföldum fingrafarask
anna og sjálfumyndavél
sem smellur upp úr
efsta hluta símans
svo hægt sé að nota
alla framhliðina undir
skjáinn.
Sérsniðnir, sérstakir og einkar vel útbúnir
Dýrustu og best búnu snjallsímar
hvers fyrirtækis eru í daglegu tali
vestan hafs nefndir flaggskip. Tvö
slík vöktu einna mesta athygli
á MWC í vikunni, annars vegar
Samsung Galaxy S9 og S9+ og hins
vegar Nokia 8 Sirocco.
S9, og þar af leiðandi S9+ líka,
er afar vel búinn. Öflugur örgjörvi,
þrjár myndavélar, háskerpuskjár
sem þekur alla framhliðina og svo
framvegis og svo framvegis. Hann
fylgir helstu straumum í snjall
símatækni í dag, hefur nýtt nærri
allt pláss á framhliðinni undir
skjáinn og losað sig við heyrnar
tólatengið.
Helsti munurinn á vélbúnaði
símans er líklegast fólginn í
myndavélunum. Trusted Reviews
komst svo að orði að þær breyt
ingar væru það eina sem greindi
símann frá öðrum sambærilegum
símum. Í staðinn fyrir að ljósopið
sé alltaf eins stillt er hægt að velja
stillingu. Þá er önnur myndavélin
á bakhliðinni sérstaklega til þess
gerð að hægt sé að auka aðdrátt
svo um munar.
Til að elta Apple, sem býður
upp á svokallaða Animoji í iPhone
X, býður Samsung notendum
sínum upp á svokallaða AR Emojis.
Skannar síminn þá andlit þitt og
breytir í teiknimynd sem hermir
eftir hreyfingum þínum svo þú
getir brugðist við skilaboðum og
stöðuuppfærslum vina og vanda
manna á skemmtilegan hátt.
Eftir að hafa rutt sér til rúms á
farsímamarkaðinum á ný á síðasta
ári ætlar fallni finnski risinn Nokia
nú að setja stefnuna á toppinn.
Því var vel við hæfi að fyrirtækið
kynnti nýtt flaggskip, Nokia 8
Sirocco. Síminn er að mestu
svipaður og flaggskip helstu
keppinautanna og útbúinn sama
innvolsi að mestu.
Sérstaða 8 Sirocco er þó fólgin í
tvennu. Annars vegar keyrir síminn
á hinu nánast sótthreinsaða
Android One stýrikerfi. Eru því
einungis örfá forrit, fæst þeirra
gagnslaus, innbyggð í símann, mun
færri en þau mörgu gagnslausu
forrit sem koma til að mynda með
símum frá Samsung.
Þá á síminn einnig að vera
sérstaklega sterkbyggður. Kallast
það á við fortíð finnska risans
sem þekktur var hér áður fyrr fyrir
nánast óbrjótandi síma á borð við
Nokia 3310.
Flaggskipin áberandi eins og venjulega
AR Emoji er ein af nýjungum Galaxy S9. NoRdicphotoS/AFp
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
5G farsímanet er á leiðinni og verður mun hraðara en 4G. NoRdicphotoS/AFp
S61
síminn frá CAT er meðAl
AnnArs með hiTAmyndA-
vél og leysigeislA
3 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-9
A
E
8
1
F
1
D
-9
9
A
C
1
F
1
D
-9
8
7
0
1
F
1
D
-9
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K