Fréttablaðið - 03.03.2018, Page 65
Skrifstofustjóri
Laust er til umsóknar 100% starf skrifstofustjóra hjá
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Helstu verkefni
• Stýrir daglegum rekstri Miðstöðvarinnar í umboði
forstjóra
• Gerir rekstraráætlanir, tekur þátt í mótun stefnu og
markmiða Miðstöðvarinnar
• Ber ábyrgð á innkaupum fyrir rekstur svo og á
hjálpartækjum.
• Ber ábyrgð á bókun reikninga og eignaskráningu.
• Hefur umsjón með tölvubúnaði og tölvukerfum.
• Umsjón með beiðnum og greiðslum dagpeninga og
uppgjörum vegna ferða.
• Samskipti við Fjársýslu ríkisins varðandi mannauðsmál
og launauppgjör.
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun
á háskólastigi er æskileg.
• Reynsla af rekstri, stjórnun, innkaupum svo og teymis-
vinnu er mikilvæg.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er
heppileg.
• Metnaður og vilji til að ná árangri.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulags-
hæfni.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum og
þjónustulund.
• Skapandi, gagnrýnin og sjálfstæð hugsun.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra
og viðkomandi stéttarfélags. Umsókn skal fylgja ítar-
leg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Miðstöðin
hvetur jafnt karla sem konur til að sækja um þessa stöðu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og
viðtölum við umsækjendur.
Umsóknarfrestur er til og með 21. mars 2018 og þarf
viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst eða skv. nánara
samkomulagi.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á netfangið margretmaria.
sigurdardottir@midstod.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðstöfun starfsins liggur fyrir. Miðstöðin áskilur sér rétt að
hafna öllum umsóknum. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá
lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veitir Margrét María Sigurðardóttir í
síma 545 5800.
Staða leikskólastjóra við leikskólann Steinahlíð
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Steinahlíð lausa til umsóknar.
Steinahlíð er þriggja deilda leikskóli við Suðurlandsbraut í Reykjavík, stofnaður árið 1949 og er því einn af elstu leikskólum borgar-
innar. Einkunnarorð leikskólans eru virðing, vellíðan og sköpun og áhersla er lögð á frjálsræði barna og samvinnu. Útivera og um-
hverfismennt skipa stóran sess í starfi Steinahlíðar. Leikskólinn hefur yfir að ráða stóru og fallegu landsvæði sem býður upp á marga
möguleika til náms og leikja þar sem börnin fá tækifæri til að kynnast og fylgjast með fjölbreyttu dýra- og plöntulífi. Skoðunar- og
rannsóknarleiðangrar skipa stóran sess í starfinu þar sem börnin fá að upplifa og njóta náttúrunnar og virkja öll skilningarvit sín.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt
leikskólastarf í Steinahlíð.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2018. Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2018.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111.
Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra
og starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans
og umbótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Umhverfismiðstöð Akureyrar óska eftir að ráða drífandi
einstakling í fjölbreytt starf verkstæðisformanns á vélaverk-
stæði Umhverfismiðstöðvarinnar.
Umhverfismiðstöð sér um rekstur strætisvagna, ferlibíla
og gatna- og garðyrkjumál. Verkstæðið er til húsa við
Rangárvelli og þar eru almennar viðgerðir á bifreiðum,
vélum og tækjum ásamt fjölda annarra verkefna.
Helstu verkefni eru:
• Verkstjórn á verkstæði
• Viðhald á bifreiðum, vélum og tækjum sem eru í eigu
Umhverfimiðstöðvar
• Viðhald malbikunarstöðvar
• Ábyrgð á innkaupum og rekstri verkstæðisins
• Tilfallandi verkefni fyrir Umhverfismiðstöð
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistararéttindi í bifvélavirkjun, vélsmíði eða vélvirkjun.
• Meirapróf og rúturéttindi
• Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði vinnubrögðum og frumkvæði í starfi
• Gerð er krafa um vammleysi umsækjanda
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2018
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um
rafrænt.
Verkstæðisformaður
Umhverfismiðstöðvar
Akureyrar
Spennandi störf í boði hjá traustu fyrirtæki
Söluráðgjafi á landbúnaðarsviði
Lífland óskar eftir öflugum söluráðgjafa til starfa á land-
búnaðarsviði fyrirtækisins. Um er að ræða skemmtilegt og
fjölbreytt starf sem felur m.a. í sér sölu á fóðri og öðrum
landbúnaðarvörum til bænda.
Starfssvið:
• Ráðgjöf og sala til viðskiptavina
• Undirbúningur söluferða
• Heimsóknir til viðskiptavina
• Áætlanagerð
• Eftirfylgni
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi, búfræðimenntun
er kostur
• Þekking á íslenskum landbúnaði er kostur
• Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góðir söluhæfileikar og eldmóður
• Öguð og vönduð vinnubrögð
• Góð almenn tölvuþekking og þekking á Navision er kostur
Starf í fóðurverksmiðju Líflands
Lífland leitar að öflugum og handlögnum manni til að
sinna ýmsum verkefnum í fóðurverksmiðju Líflands á
Grundartanga. Um er að ræða dagvinnustarf og
tilfallandi afleysingar á vöktum.
Starfssvið:
• Umsjón með hráefnalager
• Sekkjun í smásekki og stórsekki
• Þrif á verksmiðju
• Ýmis tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Vinnuvélaréttindi æskileg
• Tölvukunnátta æskileg
Verktaki í tækjadeild - Norðurland
Vegna aukinnar sölu leitar Lífland að verktaka (rafvirkja og/
eða vélstjóra) fyrir tækjadeild fyrirtækisins með starfsstöð
á Norðurlandi.
Starfssvið:
• Viðhald, eftirlit og viðgerðir á búnaði sem Lífland selur
• Framkvæmd þjónustuskoðana á GEA mjaltaþjónum
• Vinna við uppsetningar á búnaði
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf eða sambærileg menntun
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð tölvukunnátta
• Þekking á PLC-stýringum er kostur
• Þekking á kælikerfum er kostur
Meiraprófsbílstjóri
Lífland óskar eftir að ráða meiraprófsbílstjóra með
C og CE réttindi í fullt starf.
Sumarstörf hjá Líflandi
Lífland leitar að starfsmönnum í sumarafleysingar. Um
er að ræða meiraprófsbílstjóra (með C og CE réttindi),
afleysingar í fóðurverksmiðju á Grundartanga og í verslanir
Líflands á höfuðborgarsvæðinu.
Umsóknarfrestur starfanna er til og með 11. mars nk.
Nánari upplýsingar um störfin veitir
Rannveig Hrólfsdóttir í síma 540-1119
eða rannveig@lifland.is.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda
umsókn og ferilskrá á atvinna@lifland.is.
Vinsamlegast takið fram hvaða starf sótt er um.
Við hvetjum bæði konur og karla að sækja um
störf hjá Líflandi.
Sala og ráðgjöf www.lifland.is Reykjavík Akureyri Borgarnes Blönduós Hvolsvöllur
Sími 540 1100 lifland@lifland.is Lyngháls Óseyri Borgarbraut Efstubraut Ormsvöllur
ATVINNUAUGLÝSINGAR 19 L AU G A R DAG U R 3 . m a r s 2 0 1 8
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-E
9
E
8
1
F
1
D
-E
8
A
C
1
F
1
D
-E
7
7
0
1
F
1
D
-E
6
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K