Fréttablaðið - 03.03.2018, Qupperneq 84
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Tex-mex er orð yfir matreiðslu sem varð fyrst til árið 1973. Það voru íbúar í Texas sem
eiga rætur að rekja til Mexíkó sem
bjuggu til tex-mex. Frá árinu 1600-
1836 var Texas hluti af Mexíkó. Í
dag er talað um að tex-mex svæðið
sé líka Kalifornía, Arizona og Nýja-
Mexíkó.
Margir réttir eins og chili con
carne, nachos og taco eru í raun
tex-mex réttir. Taco-skeljarnar eru
eiginlega óþekktar í Mexíkó en eru
mjög vinsælar í tex-mex eldhúsinu.
Burritos, fajitas og chimichangas
eru sömuleiðis týpískir tex-mex
réttir. Yfirleitt eru þetta bragð-
miklir en einfaldir réttir.
Taco með rifnu
svínakjöti
Þeir sem hafa nægan tíma geta
útbúið sínar eigin tortilla-kökur
en svo er alltaf hægt að spara sér
tíma og kaupa tilbúið. Maður
getur valið um það að nota litlar
Tex-mex með
Söngvakeppninni
Taco er vinsæll matur hjá öllum aldri.
Guacamole passar með alls kyns tex-mex mat.
Fljótlagaður kúrekaréttur fyrir svanga sem vilja hafa lítið fyrir matnum.
Tex-mex matur
er gríðarlega vin-
sæll. Það er hægt
að gera marga
skemmtilega rétti
með tortilla eða
taco-skeljum.
Mörgum finnst
æðislegt að hafa
svona mat á
föstudags- eða
laugardagskvöld-
um. Hentar til
dæmis vel með
Söngvakeppninni
í Sjónvarpinu.
tortilla-kökur í eftirfarandi rétt eða
taco-skeljar.
Það er reyndar æðislegt að búa
til sitt eigið taco. Mexíkósk tort-
illa er bæði glútenlaus og auðvelt
að útbúa. Pulled pork eða rifið
svínakjöt er mjög gott með ásamt
góðu grænmeti. Hægt er hægelda
svínakjöt yfir nótt í þennan rétt
eða kaupa kjötið tilbúið í góðum
kjötverslunum. Uppskriftin miðast
við fimm.
550 g rifið svínakjöt (pulled pork)
Maískaka
180 g maísmjöl
1 tsk. salt
2 msk. mjúkt smjör
1 ½ dl vatn
Salat
½ haus af til dæmis kínakáli eða
jöklasalati
1 rifin gulrót
1 mangó, skorið í þunna strimla
1 dl sýrður rjómi
2 msk. majónes
1 msk. sítróna
1 msk. sykur
1 msk. smátt skorin engiferrót
½ tsk. salt
¼ tsk. pipar
Steinselja
Hnoðið saman maísmjöl, salt og
smjör í skál. Bætið vatni saman við
og blandið vel svo úr verði frekar
blautt deig. Deilið deiginu í 10
parta. Bleytið hendurnar og mótið
bollur. Leggið hverja bollu á bök-
unarpappír og fletjið þær aðeins
út með höndunum. Setjið síðan
plastfilmu yfir og notið kökukefli
til að fletja þær meira út. Þær eiga
að vera um 3 mm á þykkt. Reynið
að hafa allar kökurnar jafnstórar.
Steikið kökurnar á heitri og þurri
pönnu á báðum hliðum eins og
pönnukökur. Leggið þær síðan inn
í viskastykki svo þær þorni ekki.
Blandið saman sýrðum rjóma,
majónesi, sítrónusafa, sykri og
engifer. Bragðbætið með salti og
pipar. Setjið grænmeti og mangó
saman við sósuna.
Hitið kjötið ef þarf. Setjið græn-
metisblönduna á tortilluna og
síðan kjötið. Dreifið steinselju yfir.
Það er ekki nauðsynlegt að hafa
svínakjöt heldur má nota hvaða
kjöt sem er í þennan rétt.
Nachos með nautahakki
Þetta er æðislegur réttur þegar
maður nennir eiginlega ekki að
elda en langar að hafa það kósí.
Uppskriftin miðast við tvo en það
má stækka hana að vild.
300 g nautahakk
½ laukur
½ ferskur chili-pipar
1 poki taco-krydd + vatn eins og
segir á umbúðum
1 poki tortilla-nasl
½ dós niðursoðnar brúnar baunir
1 krukka salsa-sósa
½ blaðlaukur
1 dl rifinn ostur
Steikið hakkið ásamt lauk og
chili. Bætið taco-kryddinu og
vatninu út í. Látið malla smástund.
Setjið naslið í eldfast mót og síðan
hakkið, baunirnar og salsa sósuna.
Rifinn ostur fer yfir allt saman.
Hitið ofninn í 225°C og bakið rétt-
inn þar til osturinn er bráðnaður,
5-8 mínútur.
Það má skipta hakkinu út fyrir
kjúkling eða bara grænmeti eftir
smekk.
Gott guacamole
Það er eiginlega nauðsynlegt að
hafa guacamole með tex-mex
réttum. Lárperur (avocado) þurfa
að vera vel þroskaðar og mjúkar
að utan.
2 lárperur
2 msk. límónusafi
1 ½ tómatur
½ rauður chili-pipar, mjög smátt
skorinn
2 msk. kóríander, smátt skorinn
Salt og pipar
Skerið lárperur til helminga. Takið
steininn úr með því að setja hníf
í hann og snúa. Ekki halda á lár-
perunni þegar þetta er gert. Mörg
handarslys verða þegar fólk reynir
að ná steininum úr. Maukið lár-
peruna með límónusafa.
Skerið tómatana í báta og takið
fræin úr. Þá eru þeir skornar í
smærri bita. Blandið saman lár-
peru, chili og tómatbitum, meiri
límónusafa, salti og pipar. Setjið
kóríander í að lokum. Geymið á
köldum stað.
Guacamole er gott með mexí-
kóskum réttum og tortilla-nasli.
Fljótlagaður
kúrekaréttur
Hér er spennandi réttur án kjöts
sem mjög fljótlegt er að gera.
Rétturinn heitir Huevos
rancheros. Uppskriftin miðast við
fjóra.
1 dós chili baunir
2 tómatar
2 ½ dl salsa sósa
4 egg
2 vorlaukar
4 msk. ferskt kóríander
4 hveiti-tortillur
1 ½ dl sýrður rjómi
Hitið ofninn í 200°C. Setjið chili-
baunir, niðurskorna tómata og
salsasósu í pott og hitið. Bragð-
bætið með salti og pipar.
Hellið blöndunni í eldfast form.
Gerið fjórar holur og setjið egg í
hverja. Bakað í ofni í um það bil
10 mínútur eða þangað til eggja-
hvíturnar hafa stífnað.
Takið út og dreifið fínt skornum
vorlauk og kóríander yfir.
Berið fram með tortilla-kökum og
sýrðum rjóma, gjarnan guacamole
líka.
Flytjendur
Nemendaóperan
ásamt sinfóníusveit
Miðasala í Hörpu • sími 528 5050
songskolinn.is songskolinn@songskolinn.is sími 552 7366
Söngskólinn í Reykjavík
Johann Strauss
LEÐURBLAKAN
...ein vinsælasta óperetta allra tíma
Sýningar í Hörpu • Norðurljósum
mánudaginn 5. mars kl. 19.30
þriðjudaginn 6. mars kl. 19.30
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
1
D
-F
8
B
8
1
F
1
D
-F
7
7
C
1
F
1
D
-F
6
4
0
1
F
1
D
-F
5
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K