Fókus

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Fókus - 15.08.1978, Qupperneq 13

Fókus - 15.08.1978, Qupperneq 13
var gott að vinna fyrir Lands- virkjun og stóð aldrei á þvi að þeir greiddu. Þá, árið 1966, byijaði ég i kvikmynd- unum sem aðalstarf. Það sama ár hóf Sjónvarpið göngu sina og þá fót ég úti auglýsingamyndir. Það gekk ágætlega að hafa atvinnu af þeim. KVIK — Hvað tók þig Iangan tima að fullgera myndir þinar svona yfirleitt? Já, það tók t.d. um fjóra mán- uði i allt að fullgera Búrfells- myndina eftir að tökunum lauk, og þar af vorum við um þijá mánuði hér heima en fórum svo til London, ég og félagi mmn Magnús Blöndal Jóhannsson, og vorum þar i fimm vikur. — Hefurðu engan félaga haft gegnum árin i kvikmynda- bransanum? —Jú, við byijuðum saman '57 ég og Valgarð Runólfsson skólastjóri i Hveragerði og gerðum saman , .Tunglið, tunglið taktu mig” og ,,Gili- trutt”. Það átti að vera upphafið að stórframleiðslu á barnamyndum en það varð aldrei neitt úr þvi. Nú svo var ég einn þar til ég og fleiri stofnuðum KVIK. — Hvert var upphafið að þvi samstarfi? — Það skeði þannig að ég var fréttamyndatökumaður fyrir ABC News i New York, og Emst Kettler og félagi hans Páll Steingrimsson störfuðu fyrir fyrirtæki i London. Og við vorum allir ræstir rttsQ út nóttina sem byrjaði að gjósa i Heimaey, ég fór með flugvél sem ég náði i klukkan sex um morguninn en hinir komu með skipi nokkra seinna frá Þorlákshöfn. Svo þegar við fórum að bera saman efnið okkar, þá sáum við að þetta var gott efni i sameiginlega mynd og út þvi bjuggum við til nokkuð skemmtilega mynd sem hlaut nafnið „Eldeyjan", og var um 27 minútur að lengd. I framhaldi af þessari mynd bjuggum við til aðra um afleið- ingar gossins fyrir Sjónvarpið. Og uppúr þessu varð KVIK svo til. Við leigðum okkur húsnæði, byrjuðum auglýs- ingamyndagerð og keyptum einu hljóðblöndunartækin sem til eru á landinu fyrir utan Sjónvarpið. MEJRA UM 9,5 mm. — Svo að við vikjum örlitið aftur að 9,5 millimetra græj- unum. Hverskonar apparöt voru þær eiginlega? — Þau voru frönsk, það voru nokkuð skemmtilegar vélar, litlar og upptrekktar og nettar. — En hvað með sýningu á filmunum. Hvar var lampinn t.d. hafður fyrst tannhjólin voru i miðjunni? — Það var alveg eins. Nema að klóran var horfin þegar lok- arinn opnaði. — Framkallaðir þú þinar myndir sjálfur? —Til að byrja með gerði ég það og þá aðeins i svart/hvitu. Og nokkuð framkallaði ég i auglýsingunuin. Það var t.d. tekin ein auglýsing, fram- kölluð sama kvöldið, synkuð upp og gengið frá henni daginn eftir. Það var mjög gott. HF.LV... VÆL — Ferðu oft á bió? — Ég fer alltaf á bió þegar ég er erlendis en aldrei hér heima. — Og hvernig myndir ferðu helst á? — Ég sé bara þær sem eru mest umtalaðar hverju sinni. Ég reyni t.d. alltaf að ná i nýjustu myndirnar þegar ég eriLondon. — En hversvegna ferðu ekki á bió hér? — Ég hef alltaf svo mikið að gera. Ég má bara ekki vera að þvi. Svo koma flestar myndir það gamlar hingað að maður er kannski búinn að lesa um þær og þá verður maður oft fyrir vonbrigðum, eins og þið þekkið kannski. —Hvernig finnst þér kvik- myndaúrvalið hér á landi? — Það er að mörgu leyti gott. Það koma hingað góðar myndir, að visu seint um siðir, en þær koma. — En hvað með Sjónvarpið. Hvernig finnst þér það standa sig i kvikmyndagerð og vali á kvikmyndum? — Eigum við nokkuð að tala um það strákar. — Sástu „Morðsögu”? — nei, ég var erlendis þegar hún var sýnd hérna. Ég sá að visu vinnukóþiurnar, þannið að ég sá hvernig hún myndi taka sig út. Þetta °8aðrir var nokkuð skemmtileg tilraun en ósköp venjulegt efni. — Þekkir þú Reyni Oddson persónulega?, —Já, já, við erum góðir vinir. — Hvernig stendur kvik- myndagerð á íslandi? —Hörmulega. — Finnst þér að rikið ætti að styrkja hana? — Nei, rikið á ekki að koma nálægt þessu. Þetta er helv... væl i sumum kvikmynda- gerðarmönnum, þeir geta alveg eins bjargað sér eins og aðrir menn, þvi markað- urinn er geysistór. Þetta væl um að rikið eigi að koma inni það hefur mér aldrei likað. LOKAORÐ — En hver fjármagnaði þinar myndir? — Það hafa verið ýmsir aðilar náttúrulega. Ég tók mynd fyrir sænska veiðitækjafyrir- tækið ABU um laxveiðar. Hún er til á sjö tungumálum og hefur verið dreift i meira en 100 eintökum um allan heim. Landsvirkjun fjármagnaði Búrfellsmyndina og Sjávar- útvegsráðuneytið sina. Sú hét „Fast þeir sóttu sjóinn” en hefur litið verið sýnd. Einu sinni i sjónvarpinu. Nú svo er Krafla öll til á filmu og svo bæjarmyndirnar allar og ekki má gleyma blessuðum auglýsingunum sem við i KVIK höfum lifað á gegnum árin. 13

x

Fókus

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fókus
https://timarit.is/publication/1277

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.