Fókus - 15.08.1978, Side 14
Ásgeir í garðinum heima við Lyngásinn.
— En hvenaer hættirðu
i kvikmyndum?
— Það var núna i mai. Að
visu er ég með eina mynd
i gangi, um sildveiðar. Ég
byrjaði á henni um svipað leyti
og sildin hvarf en hef hugsað
mér að klára hana i sumar.
Ég samdi uppá það þegar ég
hætti i KVIK að ég fengi
afnot af gömlu tækjunum
minum til að klára þetta
verkefni.
— Er eitthvað sem þú vildir
segja að lokum?
—já, ef þið hafið áhuga á
kvikmyndum og kvikmynda-
gerð þá skuluð þið fyrir alla
lifandi muni reka það eins
og hvert annað framtak
en ekki treysta á einvheija
kvikmyndasjóði, aðeins
sjálfa ykkur. Ef hugmyndin
er góð og þið framkvæmið
hana þá eigið þið töluvert
góða sjansa af þvi að markað-
urinn er svo stór.
— ÁKS. HH. SH.
örsmátt og enn
smærra
f tilefni þess,að
iísgeir Long sagði
hér í viðtalinu
áðan að honum
hefði ekki tekist
að fá sýningarvél
fyrir 9,5 mm.
filmur sínar,lýs-
um við hér með
eftir eiganda
slíkrar vélar sem
gæti hjálpað Ás-
geiri.Eihnig skor-
um við á þann sam£
að senda okkur
upplýsingar um
9,5 mm. filmur og
öllu sem þeim
fylgir.
PÓKUS óskar eftir
manni til þess að
gegna starfi aug-
lýsingastjéra
blaðsins.Æskilegt
væri að hann hefði
góð sambönd við
fyrirtæki.dóð laur
í boði.Nánari upp-
lýsingar eru í
sima 52655*
14