Myndmál - 01.10.1983, Page 7

Myndmál - 01.10.1983, Page 7
Psycho er tvímæla- laust ógnvænlegasta, ófyrirleitnasta og best heppnaöa hrollvekja allra tíma. Það eru til Hitchcock talar tæpitungu- laust um markmið sín. „Það er geysilega spennandi að nota myndavélina til að spila með áhorfendur“ sagði hann við Truffaut í bók þess síðarnefnda um þennan uppáhalds ameríska leikstjóra sinn. „Leikurinn við áhorfendur var heillandi. Ég stjórnaði þeim. Það mætti segja að ég hafi spilað á þá eins og orgel“. Og síðar. „Það var ekki ætlunin að gera mikilvæga kvik- mynd. Ég taldi að hægt væri að gera margt skemmtilegt við þetta viðfangsefni og þessar aðstæð- ur . . . Psycho kostaði okkur að- eins 800.000 dollara í framleiðslu. Hún hefur halað inn u.þ.b. 15 milljónir dollara“. „Mín mesta ánægja“ segir hann „var að myndin hafði áhrif á áhorfendur;. . . hún fékk þá til að öskra. Mér finnst það vera ein- staklega uppörvandi fyrir okkur að vera fær um að nota kvik- myndalistina til að skapa allsherj- ar geðshræringu. Og með Psycho tókst okkur sannarlega að ná henni fram. Það var enginn boð- skapur sem truflaði kvikmynda- húsgesti, ekki heldur stórkostleg- ur leikur eða áhugi þeirra á sög- unni. Fólkið var hugfangið af hreinni kvikmynd. Þess vegna er ég hreykinn af þeirri staðreynd að Psycho, umfram aðrar myndir mínar, er kvikmynd sem tilheyrir kvikmyndagerðarmönnum". Og síðan snýr Hitchcock sér að Truffaut, ungum manni, þekkt- um fyrir hámenningarlega kvik- myndagerð en ef til vill lítt aðlað- andi og segir: „Það myndi ég vilja fá þig til að gera — mynd sem rak- aði inn milljónum dollara um all- an heim. Þetta er sú tegund kvik- myndagerðar þar sem frásagnar- tæknin skiptir meira máli en inni- haldið . . . Þú færð ekki endilega bestu gagnrýnina en þú verður að gera myndir þínar á sama hátt og Shakespeare skrifaði leikrit sin — fyrir áhorfendur. Aha! Loksins hefur leyndar- málið spurst út. Alfred Hitch- cock, sem árum saman hefur neit- að því að hann sé listamaður, lýst myndir sem innihalda fleiri dráp, meira blóð- bað og skelfilegri pers- ónur, en engin kvik- mynd hefur nokkru því yfir aftur og aftur að hann líti fyrst og fremst á sig sem skemmti- kraft, sem játar að hafa hlotið mikla ánaegju út úr því að hafa leikið sér að áhorfendum og mjólkað útúr þeim milljónir doll- ara, talar nú um áhrifamestu og best heppnuðu mynd sína sem „kvikmynd kvikmyndagerðar- manna“ og jafnar sjálfum sér við mesta listamann allra tíma. Og kannski hefur hann rétt fyrir sér, þegar öllu er á botninn hvolft. Aldrei áður í sögu kvikmynd- anna hefur kvikmyndagerðar- maður leikið, á jafn bíræfinn hátt, á áhorfendur sína „eins og orgel". Á fyrstu fjörutíu og fimm minútum myndarinnar, byggir Hitchcok vandlega og með smá- smugulegri nákvæmni upp sam- úð og athygli áhorfenda með Janet Leigh. Hún er ung, aðlað- andi, ástfangin og á í erfiðleikum sem peningar geta leyst. Hún stenst ekki freistinguna þegar möguleiki er á að stela 40.000 dollurum frá andstyggilegum og óheiðarlegum gömlum manni. Mun hún komast upp með það? Eða lætur hún skynsemina ráða, skilar peningunum og bjargar lífi sínu? Við hniprum okkur saman þegar hún gerir hvert glappaskot- ið á fætur öðru. Við vorkennum henni fyrir barnaskapinn þegar hún dregur athygli lögreglunnar að sér. Þegar hún stansar við Bates mótelið og á nokkurs konar innilegt samtal við Anthony Perkins, léttir okkur þegar hún sér villur síns vegar og ákveður að skila peningunum og endurgreiða sinni náð öðrum eins heljartökum á áhorf- endum og fengið þá til að öskra af sama krafti eins og þetta fag- það sem hún hafði eytt, með fátæklegum launum sínum. Hún hefur bætt fyrir gjörðir sínar og þegar hún gengur inní herbergið og fer í sturtu finnst okkur eins og glæp hennar sé skolað burt. Og þá, eftir umhyggju okkar og athygli með henni í þrjá stund- arfjórðunga, horfum við í for- undran þegar henni er grimmilega slátrað, stungin til bana í sturt- unni af brjálaðri konu sem slær til hennar aftur og aftur. Blóð henn- ar litar vatnið og skolast í gegnum niðurfallið og þegar við sjáum svo nærmynd af brostnu auga hennar, er heimur hennar, svo vandlega uppbyggður fyrir okk- ur, hruninn til grunna. Þunga- miðjan er horfin. Allar hefð- bundnar aðferðir frásagnartækn- innar hafa verið þverbrotnar. Söguhetjan er dauð en myndin er aðeins hálfnuð. Við erum enn harmi slegin vegna dauða hennar og jafnvel enn skelfingu lostnari yfir brottnámi söguþráðarins. Við vitum að við erum stödd i martraðarheimi þar sem allt er mögulegt. Það sem Hitchcock hefur gert er ótrúlegt. Hann hefur okkur algerlega í sínum höndum. (Hitchcock prófaði áður þá að- ferð að bana söguhetju. í Vertigo sjáum við Kim Novak myrta tvisvar! En vegna þess að megin- athygli okkar hvílir á Jimmy Stewart eru áhrifin ekki eins sterk og i Psycho þar sem öll okkar athygli beinist að Janet Leigh). Að Janet Leigh horfinni leitum við.halds og trausts hjá Anthony Perkins, þessum vingjarnlega, mannlega unna meist- arastykki um morð og geðveiki. hógværa og heillandi unga manni, sem á samúð okkar, eftir því sem Truffaut segir, vegna þess hvernig hann hreinsar baðher- bergið og verndar móður sína. Já, eins ótrúlegt og það virðist, ber- um við hlýjar taugar til hans þeg- ar hann hreinsar sturtuklefann. Þetta er að sjálfsögðu enn eitt bellibragðið hjá Hitchcock, því við höfum enga ástæðu til að ætla að móðir Perkins sé ekki til. Við erum handviss um að hafa séð hana myrða leynilögreglumann- inn, sem leitar Janet Leigh, og Hitchcock játar fúslega að loft- myndin sem hann notar þegar hún æðir útúr svefnherberginu með brugðinn hníf og sömu mynd þegar Perkins ber móður sína nið- ur í kjallarann, er svo snilldarlega hönnuð að við sjáum aldrei ástæðu til að spyrja hversvegna okkur hafi aldrei verið leyft að sjá framan í andlit móðurinnar. Það hvarflar aldrei að okkur að hún er aðeins múmía sem móðurmorð- inginn, vinalegi sonur hennar notar sem dulargervi gagnvart fórnarlömbum sínum. Og þegar við uppgötvum að hann er morð- inginn er okkur enn einu sinni gefið utan undir. Þetta eru allt brögð og brellur og við höfum verið teymd á asnaeyrunum. Já og aftur já, það er víst óhætt að segja að Hitchcock leiki á okkur „eins og orgel“. Psycho er ein furðulegasta uppbyggða mynd sem gerð hefur verið. Hún gengur gegn öll vænt- ingum áhorfandans en breytir okkur í skjálfandi, óttaslegin og æpandi múg. Þetta er handbragð meistara myndmiðilsins, sem veit nákvæmlega hvað hann er að gera og hversvegna hann gerir það. Að græða 15 milljónir doll- ara, gera „smágrín" með mynda- vélinni (hann varði sjö dögum í að filma sturtuatriðið í sjötíu mis- munandi myndskeiðum), stjórna valdi hvíta tjaldsins og, líkt og Shakespeare, veita áhorfandan- um ánægju, um þetta snerist allt hjá Hitchcock. Byggt á bókinni „The Great Movies“ eftir William Bayer. MYNDMÁL7

x

Myndmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.