Myndmál - 01.10.1983, Qupperneq 8

Myndmál - 01.10.1983, Qupperneq 8
Catherine Denevue í The Hunger. ^GERAEEIR BXOMYismm EÐASKÖNBŒaC? „The pop-promotions“ eda „Skonrokksmynd- irnar“ eins og viö ísl- endingar þekkjum fyr- irbæriö betur, hafa nú á ailra síðustu árum komiö til sögunnar fyr- ir alvöru og valdið str- aumhvörfum. Fyrir til- En það eru ekki bara popparar sem njóta góðs af framleiðslu Skonrokksmynda. Fjöldi kvik- myndagerðarmanna hefur nú fengið tækifæri til að tjá sig á filmu (eða myndbandi) á annan hátt en gert hefur verið hingað til og ótrúlega fjölbreyttar hug- myndir hafa komið fyrir sjónir almennings. Kvikmyndaiðnaður- inn hefur eignast nýja kynslóð kvikmyndastjóra, menn sem skólaðir eru í gerð auglýsinga og poppkynningarmynda þar sem þjappa verður öllu því sem segja þarf á örfáar mínútur. Það leiðir af sjálfu sér að myndræn tjáning þessara manna er annars konar en þeirra sem stjórnað hafa bíó- myndum í fullri lengd, eingöngu. En nú þegar þessi nýja kynslóð hefur innreið sína í bíómynda- gerð er deilt um ágæti þess sem hún hefur fram að færa. stilli þessara örstuttu kynningarmynda hafa popptónlistarmenn getað skoriö niður löng og þreytandi hljóm- leikaferðalög til kynningar á tónlist sinni og aukin heldur náð til mun fleiri. í Það er almennt viðurkennt að Bretar standi fremstir í fram- leiðslu Skonrokksmynda. Þrátt fyrir deyfð, sem reyndar er talin fara minnkandi, í gerð bíómynda stendur sjónvarps- og auglýsinga- myndaframleiðsla þeirra í mikl- um blóma. Nokkrir breskir aug- lýsingaleikstjórar hafa söðlað yf- ir í gerð bíómynda og átt þar vel- gengni að fagna. Má þar nefna Ridley Scott (Alien, Blade Runner), Alan Parker (Midnihgt Express, Fame), Hugh Hudson (Chariots of Fire) og Adrian Lyne, leikstjóra vinsælustu kvik- myndarinnar vestanhafs þessa dagana, Fiashdance. Því þarf engum að koma á óvart að litið skuli á breska aug- lýsingamyndagerð sem frjóan jarðveg fyrir nýja hæfileika. Terry Bedford, sem eitt sinn var kvikmyndatökumaður hjá Ridley Bandaríkjunum eru t.d. sérstakar kapal- stöðvar sem senda út stanslaust Skonrokk allan sólarhringinn og dæmi eru um þar í landi að erlendar hljómsveit- ir hafi náð fótfestu á hinum erfiða tónlistar- Scott en leikstýrir nú fyrstu mynd sinni, Slayground, fyrir EMI, orðar þetta svona: „Það má kalla þetta nokkurskonar þjálfunar- tíma þar sem hægt er að prófa allt — flóknar myndbrellur, krana, öll leikföngin. Hjá BBC liði lang- ur tími áður en þér yrði hleypt í þessháttar græjur“. Innan auglýsingamyndabrans- ans hafa Skonrokksmyndirnar hlotið viðurkenningu sem sjálf- stætt form, þar sem fjölbreytt- ustu hæfileikar fá notið sín. Og með auknum áhuga á þessari teg- und auglýsingamynda hefur ár- viss kosning tímaritsins Music and Video Week um „Bestu Bresku Skonrokksmyndina" orð- ið að nokkurskonar minniháttar Óskarsverðlaunaafhendingu. En gagnrýnisraddir heyrast og spurt er á hvaða vegi þetta nýja kvikmyndaform er satt. markaði þar sem sam- keppnin er gífurleg, ekki síst vegna faglega unna Skonrokksmynda. Dæmi um þetta eru vinsældir hljómsveit- anna Duran Duran og Men at Work. Almeireda, dálkahöfundur Sight and Sound hefur sínar efasemdir og segir að þrátt fyrir hressilegt útlit myndanna sé þróunin á Skonrokksmyndagerð á rangri braut. Gefum honum orðið. „Vegna þess að sýningartími hverrar myndar er aðeins þrjár til fjórar mínútur, liggur lykillinn að velgengni þeirra í einstökum leik- munum (tilteknum bíl, byggingu, skriðbraut); einstöku myndþema (baklýsingu, brúntónaðri áferð, einum ráðandi lit) eða í einfald- asta lagi í söng og svo kraftmikl- um flytjanda að hann getur einn haldið athygli áhorfenda vak- andi. En vonbrigðin með kosn- ingu þessa árs eru tilkomin vegna þeirrar hugmyndafátæktar sem stöðugt verður meira áberandi. Margar myndanna sækja inn- blástur í kvikmyndasöguna, allt frá A Hard Days Night og East of 8 MYNDMÁL

x

Myndmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.