Myndmál - 01.10.1983, Page 18

Myndmál - 01.10.1983, Page 18
Bill Forsyth& David Puttnam: myndahátíðinni í London það sama ár. Með stuðningi framleið- endanna Clive Parsons og Davina Belling gerði hann næstu mynd sina Gregory’s Girl. Hann hafði þá lengi reynt að fjármagna þetta verkefni en gengið illa. Gregory’s Girl varð ein af mest sóttu mynd- um í Bretlandi árið 1981 og hlaut geysigóða dóma. Kvikmynda- spekúlantar hófu að kinka kolli þegar Forsyth bar á góma og sam- vinnan við Puttnam sýndist næstum óhjákvæmileg. Eins og áður var minnst á eru Skotar kampakátir yfir frammi- stöðu Forsyth og fjölmiðlarnir sýna honum feikna áhuga. Hann lætur sér þó fátt um finnast og snýr þessu uppí grin. „Mamma vill ennþá fá að vita hvenær ég ætli að fá mér alvöru starf . . .“ Honum er einnig létt að vera bú- inn að koma þessu verkefni af sér. Local Hero var hafin upp til skýj- anna af gagnrýnendum og aðsókn að myndinni er mikil. Forsyth, sem er staðráðinn í því að búa og vinna í Skotlandi, getur nú dregið sig úr sviðsljósinu í bili og farið að huga að öðrum verkefnum. T\OBRESK BfflAMERKI Puttnam (Chariots of kvikmyndum. Þaó er Fire). Þeir tilheyra nýrri því ekki úr vegi aö fara kynslóó kvikmynda- nokkrum orðum um gerðarmanna sem þessa pilta sem tekið endurvakið hafa trúna hafa að sér að lofta út á aö Bretar megi aftur og hleypa inn ferskum öðlast gullaldarsess í straumum. Breskir fjölmiðlar hafa viljað meina að Bill Forsyth hafi kallað nýjustu myndina sína, Local Hero, í höfuðið á sjálfum sér og fram- leiðandanum David PORSYTH: Forsyth er rúmlega þrítugur Skoti og er Local Hero hans þriðja leikna mynd. Skotar eru að vonum stoltir af sínum manni, allt frá fyrri hluta ársins 1982 frammá vor þessa árs lögðu skoskir fjölmiðlar óvenju mikla áherslu á umfjöllun um kvik- myndagerð og þá sérstaklega kvikmyndina Local Hero. Eðli- legt væri að álykta að orsakir þessa áhuga ættu rætur að rekja til þess að David Puttnam, sem framleitt hafði Chariots of Fire árið 1981 og hlotið Óskar fyrir, var einnig framleiðandi þessarar myndar eða að sjálfur Burt Lancaster léki aðalhlutverkið en svo var þó ekki. Þetta voru bón- 18 MYNDMÁL usar en maðurinn sem allt snerist um var leikstjórinn Bill Forsyth, fyrsti meiriháttar kvikmynda- gerðarmaður Skota sem notar eigið heimaland sem starfssvið. Forsyth tók kvikmyndabrans- ann fram yfir skólagöngu og sótti um starf hjá litlu fyrirtæki í Glasgow sem framleiddi iðnaðar og kynningarmyndir. Hann segir að það sem ráðið hafi úrslitum varðandi ráðningu hans var þegar honum tókst að lyfta heljarmiklu hlassi af kvikmyndagræjum sam- kvæmt beiðni atvinnurekandans. Nokkrum árum síðar stofnaði hann eigið kvikmyndafyrirtæki ásamt nokkrum öðrum, sem gerði auglýsingar og kynningar- myndir fyrir ýmsa aðila. Á seinni hluta áttunda áratugarins vildi Forsyth kynnast vinnu við leiknar kvikmyndir. Hann ræddi við krakka úr Unglingaleikhúsi Glasgow og árangur samstarfsins við þá var kvikmyndin That Sinking Feeling sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni í Edin- borg árið 1979 og síðar á Kvik- Hann er bjartsýnn á upprisu skoskrar kvikmyndagerðar. „Fyrir fimm árum sögðum við að það eina sem vantaði til að gera kvikmyndir væru áhorfendur en ég tel að þeir séu fyrir hendi i dag. Þegar Gregory’s Girl var frum- sýnd í Glasgow gekk hún aðeins í þrjár vikur, en eftir að búið var að sýna hana í London við mjög góða aðsókn, kom hún aftur til Glasgow og gekk í sjötiu og fimm vikur. Local Hero gekk hinsvegar vel frá byrjun og ég er þess fullviss að Skota munu vilja sjá skoskar myndir vegna þess að þeir hafa yfirunnið hugsanir eins og „Ohh, þetta verður örugglega afleitt“. Þetta þýðir að ég get starfað í Skotlandi, vitandi það að ég get gert myndir sem fólk mun að öll- um líkindum vilja sjá“. En hvað með Hollywood, sem freistað hefur margra hæfileika- manna úr breskum kvikmynda- iðnaði? Forsyth tekur óliklega í það. „Á þessu stigi málsins krefst Ameríka málamiðlana sem ég hef ekki áhuga á. Ég hef hinsvegar áhuga á þvi sem er að gerast hér“. Dee Hepburn og Gordon John Sinclair í Gregory’s Girl.

x

Myndmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.