Myndmál - 01.10.1983, Blaðsíða 21
Coppola býöuruppá
BÍO í Bíóhöllinni:
ONEFROM
THEHEART
Francis Ford Coppola hefur
jafnan verið í fararbroddi þeirra
manna sem bjóða kvikmynda-
húsagestum uppá bíó sem stendur
undir nafni. Nýjasta afkvæmi
þessa hugumstóra myndasmiðs
kallast One From the Heart, þar
sem Coppola vottar dans og
söngvamyndum þriðja og fjórða
áratugarins virðingu sína á nost-
algíska vegu. í aðalhlutverkum
eru Teri Garr (Tootsie), Frederic
Forrest {Apocalypse Now), Raul
Julia og Nasstasia Kinski (Cat
People).
Sögusviðið fyrir þessa einföldu
sögu um mannleg samskipti er
Las Vegas með sínu iðandi mann-
lífi undir neonljósum. í samræmi
við stíl gömlu dans og söngva-
myndanna lét Coppola byggja
alla leikmyndina í Zoetrope stúdí-
ói sínu í Hollywood. Eins og
nærri má geta kom það all hressi-
lega við pyngjuna enda var um að
ræða einhverja þá risavöxnustu
leikmynd sem smíðuð hefur verið
fyrir kvikmynd. Svo notuð séu
orð eins gagnrýnandans: ,,Þú
finnur ekki þann ramma í mynd-
inni þar sem peningunum er ekki
örlátlega eytt“. Söngvarnir í
myndinni (eftir Tom Waits — til-
nefndir til óskarsverðlauna 1983)
eru ekki fluttir af leikurunum fyr-
ir framan myndavélarnar, líkt og
vaninn er í hefðbundnum söngva-
myndum, heldur notaðir til að
skýra framvindu sögunnar og
tengja saman atriði.
One From the Heart er sögð
stórkostleg upplifelsi fyrir augu
og eyru, sömu orð voru einnig
viðhöfð um aðra Coppola-mynd
Apocalypse Now, þar sem ítalski
myndatökumaðurinn Vittorio
Storaro stjórnaði myndavélunum
af snilld. Storaro er mættur til
leiks á ný í þessari mynd og í sam-
einingu bjóða þeir Coppola og
hann, bíógestum uppá veislu sem
ekki er hægt að afþakka.
Bíóhöllin fyrirhugar að sýna
One From the Heart innan tíðar.
Regnboginn
kymin
EMIEILM5 Pie/cnt; A BROOK5FILM5 Poduttion
JE55ICA LAHðE "ERANCE5" 5AM 5HEPARD KIM 5TANLEY
Wiitten by ERIC BERöREN ð CHRI5TOPHER DeVORE ond NICHOLA5 KAZAN
Co Rodutei MARIE YATE5 A//ociole Pioducer CHARLE5 MULVEHILL Mu/ic JOHN BARRY
Pioduction Denjne, RICHARD 5YLBERT Diiecto, ol Photogiophy LA5ZLO KOVAC5, A.5.C.
Pioduced by JONATHAN 5ANQER Diiected by QRAEME CLIFFORD
Di/lnbuled by EMl FILM5 LimiLed E MI
Nýtt Líf
Það liggur auðvitað í augum
uppi að Nýja bíó sýni Nýtt Líf en
kvikmyndahúsið við Lækjartorg
frumsýndi þessa íslensku „gleði-
mynd“ þann 30. september s.l. í
miðopnu blaðsins er fjallað ítar-
lega um myndina og fleira serp
hefur á daga leikstjórans Þráins
Bertelssonar. En m.a.o.: Allir í
Nýja bíó!
meta Flashdance. Þó er haft eftir
talsmanni Paramount kvik-
myndafélagsins að of snemmt sé
að tala um annað Laugardags-
næturfár „þó að flest bendi til
þess að um samskonar æði verð
að ræða“ bætti hann við.
Það er sagt að dansmyndir hafi
þann eiginleika að hefja ímynd-
unarafl ungra bíógesta til flugs.
Eiginleika sem samanstendur af
heilbrigði, fegurð, vonum,
draumum og síðast en ekki síst:
flótta frá raunveruleikanum.
Auk Travoltamyndanna má
nefna vinsældir kvikmyndarinn-
ar Fame þessu til sönnunar.
Hin 19 ára gamla Jennifer
Beals sem kosin var úr hópi fjög-
urra þúsunda stúlkna sem sóttust
eftir hlutverkinu, hefur hingað til
Lovesick
Á eftir Firefox og Clint kallin-
um Eastwood, er fyrirhugað að
sýna gamanmyndina Lovesick
með Dudley Moore og Elisabeth
McGovern í aðalhlutverkum.
Takmarkaðar upplýsingar eru til
um myndina en óhætt er að mæla
með Dudley Moore sem trygg-
ingu fyrir góðri mynd . . .
hlotið lof eitt fyrir leik sinn í
myndinni. Fagurskapaður, dökk-
ur og líflegur líkami hennar sýnir
ekki einvörðungu fallegar hreyf-
ingar, heldur bætir erótískum
áhrifum við þetta ævintýri reyks,
blikkandi ljósa og áhrifamikils
dans.
Háskólabíó stefnir að því að
taka myndina til sýninga um
mánaðamótin september/októ-
ber.
MYNDMÁL 21