Land & synir - 01.04.2002, Page 2
ðg ilfli ,» IÉ V,‘- v»,„
Nr. 33 - 1. tbl. 8. árg.
JAN./APRÍL 2002.
Útgefandi: Félag kvikmynda-
gerðarmanna í samvinnu við Kvikmyndasjóð íslands, Framleiðendafélagið SÍK og Samtök kvik-
myndaleikstjóra. Með stuðningi Skjás eins, Sjónvarpsins og Stöðvar 2. Ritstjóri: Ásgrímur
Sverrisson. Ábyrgðarmaður: Björn Brynjúlfur Björnsson. Ritnefnd: Anna Th. Rögnvaldsdóttir,
Ari Kristinsson, Björn Brynjúlfur Björnsson, Gunnar Þorsteinsson, Heimir Jónasson, Hrafn
Gunnlaugsson, Ingvar Þórisson, ólafur H. Torfason, Þorfínnur Ómarsson. Prentun: Prisma
Prentco. Land & synir kemur út annan hvern mánuð. Tölvupóstur: asisv@simnet.is.
Heitar heimildarmyndir
Frá ritstjóra: Fín
bjalla, Lalli
Johns, Málarinn
og sálmurinn
hans um litinn,
Braggabúar,
Ham - lifandi
dauðir, Ljós
heimsins,
Eldborg, Arne í Ameríku, j skóm
drekans. Allar þessar heimildarmyndir
hafa birst, eða eru um það bil að birt-
ast, í kvikmyndahúsum, sem vart hefur
tíðkast með slíka tegund mynda síðan
Friðrik Þór var að hefja feril sinn í upp-
hafi níunda áratugsins. Myndirnar eru
mismunandi að gæðum og efnistökum
en þó má greina ýmislegt sameiginlegt
með þeim flestum. Áberandi er t.d. vilji
kvikmyndagerðarmannanna til að fást
við samtíma sinn, það sem er að
gerast hér og nú. Þetta er önnur ný-
lunda í íslenskum heimildarmyndum,
sem frekar hafa hneigst til að fjalla
um fortíð eða náttúru. Þær má einnig
kalla skilgetin afkvæmi hinnar staf-
rænu byltingar - með ákveðnum
undantekningum. Málarinn sker sig
t.d. sérstaklega úr þessum hópi. Þar
heldur Erlendur Sveinsson áfram að
vinna með aðferð sína úr íslands
þúsund árog raunar fleirri myndum
sínum, að sviðsetja atburði líkt og í
leikinni mynd að undangenginni mikilli
rannsóknarvinnu og handritsgerð.
Munurinn reyndar sá að nú fæst hann
við samtímapersónu, föður sinn Svein
Björnsson heitinn, en áðurvann hann
með söguleg efni. Útkoman er um
margt athyglisverð en myndin virkar
engu að síður svolítið úr takti við
tíðarandann hvað nálgun varðar.
Einnig má velta því fyrir sér hvort náin
tengsl höfundarins við viðfangsefnið
geri það að verkum að myndin virkar
sein til svars á köflum og hvort ekki
hefði verið heppilegra að fá kalt klipp-
arahöfuð til að setja hana saman.
Engu að síður hefur myndin náð inní
kviku margra áhorfenda og hafa ýmsir
orðið til að tjá sig opinberlega um
upplifun sína.
Við lifum nú sannkallaða upprisu
heimildarmyndarinnar. í Landi & son-
um hafa frá upphafi birst vangaveltur
um örlög þessa forms hér á landi og
hefur tónninn á stundum verið svart-
sýnn, jafnvel í líkræðustil. Fyrrnefndar
myndir bera hinsvegar vott um endur-
nýjun, kraft ogtrú á möguleika
formsins til að varpa Ijósi á hlutskipti
okkar. Og fleiri myndir munu vera á
leiðinni. Það virðist því vera að bresta
á með heitum heimildarmyndum. Eitt
það skemmtilegasta við þessa "hita-
bylgju” er að hún vírðist tilkomin af
ríkri tjáningarþörf og hefur ekki haft
fyrir þvi að spyrja mikið um leyfi fyrir
skyndilegri tilvist sinni. Þar ber hvað
fremst að nefna í skóm drekans. Þessa
mynd hef ég séð í grófklippi (hún er
væntanleg í lok apríl) og verð illa
svikinn ef hún kallast ekki merkisvið-
burður í íslenskri kvikmyndasögu. Hún
er kannski ekki að finna upp hjólið
hvað varðar nálgun, en henni fylgir
ferskur gustur og í henni kynnumst við
manneskju sem þarf að ganga í gegn-
um aðstæður sem hægt er að láta sig
varða. Vonandi verður hún öðrum inn-
blástur. Nú mega þeir nefnilega koma,
sumarhitarnir. Veturinn var langur og
leiðinlegur og vorið er svo fjandi kalt.
Breytt ritnefnd: L&S er lang öflugasti
vettvangur umræðu um íslenska kvik-
mynda- og sjónvarpsgeirann, þó að
kvikmyndahlið bransans hafi jafnan
fengið meíra vægi. Hugmynd aðstand-
enda blaðsins er að koma meira jafn-
vægi þar á milli og auka umfjöllun um
sjónvarpsgeirann. Af því tilefni var
tækifærið notað og stokkað upp í rit-
nefndinni. Nýir meðlimir eru: Heimir
Jónasson, tilnefndur af Stöð 2; Ingvar
Þórisson, tilnefndur af Skjá einum og
Gunnar Þorsteinsson, tilnefndur af
Sjónvarpinu. Úr ritnefndinni gengur
Friðrik Þór Friðriksson vegna mikilla
anna á öðrum vettvangi og er honum
þakkað fyrir vel unnin störf í þágu
blaðsins um leið og nýjir aðilar eru
boönir velkomnir.
STJÓRNIR FÉLAGANNA
STJÓRN FÉLAGS KVIKMYNDAGERÐARMANNA: Formaður: Björn Br. Björnsson. Varafor-
maður: Jón Karl Helgason. Ritari: Kristín Erna Arnardóttir. Gjaldkeri: Katrín Ingvadóttir. Með-
stjórnendur: Anna Dís Ólafsdóttir, Ingvar Á. Þórisson, Hjálmtýr Heiðdal. Varamenn: Kristín
María Ingimarsdóttir, Hildur Bruun. STJÓRN FRAMLEIÐENDAFÉLAGSINS SÍK: Formaður:
Ari Kristinsson. Varaformaður: Jón Þór Hannesson. Gjaldkeri: Snorri Þórisson. Meðstjórnendur:
Friðrik Þór Friðriksson og Guðmundur Kristjánsson. Varamenn: Viðar Garðarsson og Hrafn
Gunnlaugsson. STJÓRN SAMTAKA KVIKMYNDALEIKSTJÓRA: Formaður: Friðrik Þór
Friðriksson. Gjaldkeri: Hilmar Oddsson. Ritari: Óskar Jónasson. Varamenn: Hrafn Gunnlaugsson,
Kristín Jóhannesdóttir, Jón Tryggvason.
'jrnatt en/uaurt <
TÍÐINDIÚR KVIKMYNDA-~VG SJIMARPSHEIMINUM
frumsýninG: Reykjavík Guesthouse - rent a bike
K
-vikmyndin
Reykj avík
.-Guesthouse -
rent a bike var frum-
sýnd 28. mars s.l.
Framleiðendur og
handritshöfundar
eru ungt fólk sem
starfar undir heitinu
Réttur dagsins ehf.,
þau Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir og Björn
Thors, sem jafn-
framt leikstýra og
Börkur Sigþórsson
sem sér einnig um
myndatöku (mini-
DV). Aðstandendur
segja myndina sögu
um einstaklinga og
ótta þeirra. Hún
fjalli um vonlausa
baráttu við að láta
tímann standa í stað
þegar framrás hans
er óumflýjanleg og
um vináttu þar sem
hennar síst er von. Jóhann er þrítugur gistihússeigandi í miðborg Reykja-
víkur, sem hefur einangrað sig frá umheiminum í kjölfar fráfalls föður
síns. Hann heldur til á gistihúsinu án þess að taka við gestum og hefur
skapað sér sína eigin veröld þar sem hann þarf sem minnst að kljást við
samfélagið og samborgarana. Inn í hans litlu veröld fléttast Finnur, níu
ára gamall nágranni hans, sem á undir högg að sækja frá jafnöldrum
sínum og er búsettur hjá rótlausri ömmu sinni. Á milli þeirra myndast
sérstakt samband, þar sem þessar tvær einmana sálir tengjast
vináttuböndum sem fátt fær rofið. En á meðan Jóhann lætur sem
umheimurinn sé ekki til, hallar undan fæti í rekstri gistihússins og brátt
fer að bresta í stoðum þeirrar tilveru sem hann hefur kosið sér. Um
klippingu sér Elísabet Ronaldsdóttir, leikmynd og búninga gerir Sigrún
Birta Þrastardóttir, Daníel Bjarnason gerir tónlist og Uss ehf. vinnur
hljóð. Nánar verður fjallað um myndina í næsta blaði L&S.
LEIKARAHÚPURINN: Efri röð: Björn Hlynur Haraldsson, Hilmir
Snær Guðnason. Neðri röð: Brynhiidur Guðjónsdóttir, Kjartan
Guðjónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Stefán Eiríksson og
Kristbjörg Kjeld.
Málþing um menningarhlutverk RÚV
Bandalag íslenskra listamanna stendur fyrir málþingi um
menningarhlutverk RÚV sunnudaginn 14. apríl næstkom-
andi og hefst dagskrá kl: 13:00 í Þjóðmenningarhúsinu. Að
loknu ávarpi Tómasar Inga Olrich, nýskipaðs mennta-
málaráðherra, flytur John Barsby, forseti breska blaðamanna-
sambandsins, erindi um þýðingu þjóðarútvarps í almenningseign
og mikilvægi þess í nútíma samfélagi. Þá tekur við Jón Ásgeir
Sigurðsson, formaður starfsmannasambands RÚV og flytur
samantekt um stöðu ríkisútvarps á Islandi. I kjölfarið koma svo
framsögur listamannanna Steinunnar Sigurðardóttur rithöfundar,
Harðar Áskellsonar tónlistarmanns, Þorvaldar Þorsteinssonar
myndlistarmanns og rithöfundar og Friðriks Þórs Friðrikssonar,
kvikmyndagerðarmanns. Að loknu kaffihléi hefjast svo pallborðs-
umræður með þátttöku gesta úr sal. Einnig mun Þór Magnússon
kynna stofnun samtakanna “Velunnarar RÚV” og geta áhugasamir
skráð sig í samtökin á staðnum.
Ekki er að efa að þetta verði hin fróðlegasta samkoma og eru allir
þeir sem láta sig RÚV varða hvattir til að láta sjá sig.
2 LAND & SYNIR