Land & synir - 01.04.2002, Side 7

Land & synir - 01.04.2002, Side 7
lagi sköpun, að leggja rækt við grasrótina þar sem endurnýjunin hefst. Þessir fjórir þættir gætu talist ‘leiðbeinandi mælikvarðar’ á menningarlegar afurðir. Á hinum pólnum, þeim viðskiptalega, gefum við okkur tvær meginreglur, hagnað og ný viðskiptasambönd. Þessir tveir pólar, hinn menningarlegi og hinn viðskiptalegi, geta auðvitað farið saman í mörgum tilfellum en þessar skilgreiningar hjálpa okkur við að setja markmið. Segja má að við höfum nær eingöngu sinnt menningarlega þættinum, en með því að efla hinn viðskiptalega fáum við aðgang að fleiri fjármögnunarmögu- leikum. Lykilatriði í því sambandi er að sýna fram á dreifingu, þ.e. sölu. Hér gilda sömu lög- mál og í öðrum viðskiptum, það selst sem markaðurinn vill, ef þú hefur ekki dreifingar- eða sölusamning áttu ekki að gera myndina. L&S: Þú gerir tillögu urn nð Kvikmyndasjóði verði breytt í hlutafélag og að innan hans starfi þrjár deildir sem eingöngu veiti áhœttulán, ein sem styðji myndir gerðar á íslensku, önnur sem starfi sem grasrótar- og þróunarsjóður og sil þriðja sem styðji myndir gerðar á viðskiptalegum forsendum. Hversvegna œtti sjóðurinn að veita áhættulán en ekki styrki? EÞG: Þetta fýrirkomulag rnyndi auka áhuga annarra fjárfesta vegna þess að viðskiptasjónar- mið fá meira að njóta sín, en þegar verkefni eru metin frá viðskiptalegu sjónarmiði og tillit er tekið til eftirspurnar markaðarins, þá erum við að tala tungumál sem allir fjárfestar skilja. Áhættulán skapa líka nýja tekjulind fyrir Kvikmyndasjóð, þau hvetja framleiðendur til að fara betur með fé og þau senda út þau skilaboð að kvikmyndir geti skilað hagnaði. Og með hlutafélagaformi er líka hægt að afla tekna frá einkageiranum með sannfærandi hætti, bæði með skattaafslætti og einnig með arðsemis- sjónarmið í huga ef fjárfest er í þeim kvik- myndum sem gerðar eru á viðskiptalegum for- sendum. Það sem ég tel líka vera góðan kost, er að hér verði sett á stofn nýtt hlutafélag urn gerð markaðsmynda, með um 2 milljarða úr að spila, ríkið leggi til mest af því fé, en eftir það verði hann tekinn af fjárlögum. Svoleiðis sjóður myndi vera galopinn fyrir erlendum fjárfestum. L&S: Þú óttast ekki að þetta myndi leiða til einsleitari kvikmyndagerðar? EÞG: Þvert á móti, vegna þess að ákvarðana- takan um gerð mynda myndi liggja víðar, auk þess sem gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi menningarlegan arm. Valkostirnir verða fleiri, en í dag má allt eins segja að kvikmyndagerð sé einsleit, því ríkið hefur einokunarstöðu í ákvörðunartöku. Hægt er að færa rök fýrir því að margar kvikmyndir sem gerðar hafa verið hér hefðu aldrei átt að líta dagsins ljós, vegna þess að þær hafa reynst of dýr skóli, bæði fram- leiðslulega og listrænt séð. Þessar myndir hafa ekki fengið neitt áhorf að ráði, hvorki hér heima né erlendis, né hafa þær skilað mikilli reynslu og þekkingu inní bransann. Um þetta held ég að margir séu sammála. Markmið okkar hlýtur að vera að treysta stoðir geirans og gera hann að samkeppnishæfum iðnaði. Ríkið ætti einnig að margfalda áhættufé í greinina, sem kann að hljóma sem öfugmæli í þessu sambandi, en ég tel fyrst og fremst að kvikmyndagerð sé mun meira virði en hún er metin í dag, framlag ríkisins er enn afar lágt þrátt fyrir hækkunina 1998, og aukin fjárfesting skilar sér í hlutfalls- lega meiri arði þegar fram í sækir. Það sem til skiptanna er til eiginlegrar kvikmyndagerðar er helmingi minna en Þjóðleikhússins eitt og sér fær ár hvert. L&S: Höfum við burði til að gera myndir sem selstgeta á alþjóðlegum kvikrnyndamarkaði? EÞG: Ekki einsog staðan er í dag, okkur vantar meiri veltu og svo viðskiptasambönd til að selja. Ein og ein mynd kann að fá þokkalega sölu, en það er of tilviljunarkennt. Við höfum þó allt annað til að gera heimsklassa myndir, þekk- ingu, hæfileika og fólk, það sýnir reynslan, en það nýtist okkur illa. Til að bæta úr þessu þarf a.m.k. tvennt að gerast. Annarsvegar að minnka menningarlega forræðishyggju, um helming skulum við segja, og hinsvegar að taka upp “sjálfvirkt” lánakerfi, t.d að allar myndir sem hafa tryggt sér 75% fjármagn erlendis og hafa sölusamning, sem virkar sem veð, fái sjálfkrafa áhættulán frá þeim armi sem sinnir kvik- myndum “viðskiptalegs eðlis”. Þetta er sama meginreglan og í flestum viðskiptum og með tíð og tíma - og þegar bankanir hafa öðlast reynslu af svokölluðu “media lending” - þá gætu bankarnir tekið upp þessa lánastarfsemi. Tak- markið með þessu er að byggja upp viðskiptasambönd, auka lýðræði í ákvarðana- töku og reyna að tryggja stöðug gæði við fram- leiðslu. Ég er ekki að segja að menningarlegar forsendur við val á verkefnum til framleiðslu séu ónauðsynlegar en við þurfum ekki að hafa þessa þætti í ökla og eyra. L&S: Er stöðnun ríkjandi í íslensku kvikmynda- umhverfi? EÞG: Ég myndi giska á að við værum svona tíu árum á eftir okkar ágætu nágrannaþjóðum og umræðan hefur verið frekar dauf. Mér finnst Land & synir bera vitni um það. Hvað varðar hinn skapandi þátt held ég að skapandi fólk sem eitthvað kann finni sér alltaf farveg, ef ekki hér þá fer það annað í stað þess að staðna. En ég held að við höfum öll orðið var við almenna langþreytu í bransanum og það ríkir stöðnun hvað varðar fjármögnunarleiðir og stjórnsýsl- una. Auknir styrkir laga ekki neitt. Slök lausa- fjárstaða margra fyrirtækja til lengri tíma hefur haft keðjuverkandi áhrif á öll þjónustufyrirtæki bransans, tækjaleigur, banka o.fl, og margir hafa brennt sig í gegnum tíðina. Það má ætla að of hátt hlutfall veltu geirans í heild fari í vexti og innheimtukostnað. Bankar eru t.d. mjög brenndir, en án eðlilegrar lánastarfsemi þrífst engin iðnaður. Og það fær þessu enginn breytt nema til komi arðsemishvetjandi kerfi sem byggir á ábyrgri stefnu stjórnvalda. Úrdrátt úr mastersritgerð Einars Þórs er að finna á www.producers.is undirheitinu “Film Policy in Iceland”. EINAR ÞÓR: “Markmið okkar hlýtur að vera að treysta stoðir geirans og gera hann að samkeppnishæfum iðnaði. Ríkið ætti einnig að margfalda áhættufé í greinina, sem kann að hljóma sem öfugmæli í þessu sambandi, en ég tel fyrst og fremst að kvikmyndagerð sé mun meira virði en hún er metin í dag, framlag ríkisins er enn afar lágt þrátt fyrir hækkunina 1998 og aukin fjárfesting skilar sér í hlutfallslega meiri arði þegar fram í sækir.” LAND & SYNIR 7

x

Land & synir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.