Fréttablaðið - 04.04.2018, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —7 8 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 4 . a p r Í l 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
sKoðun Ögmundur Jónasson
skrifar um heimsvaldastefnu og
stríðið í Sýrlandi. 11
sport Manchester
City mætir Liverpool
á Anfield í fyrri leik
liðanna í 16-liða
úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í kvöld.
Þeir bláklæddu hafa ekki
átt góðu gengi að fagna á
Anfield undanfarin ár. 12
Menning Barnakvikmyndahátíð
hefst í Bíói Paradís á morgun
með opnunarhátíð. 18
lÍfið Miðar á tónleika Skálm-
aldar og Sinfó í ágúst seldust upp
á örskotsstundu. 22
plús sérblað l fólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Epladagar
m
ar
kh
ön
nu
n
eh
f
Gildir til 11. apríl
Gildir til 11. apríl
-30%
ViðsKipti Tveir fyrrverandi banka-
ráðsmenn Seðlabanka Íslands, Jón
Helgi Egilsson og Ragnar Árnason,
kvörtuðu til umboðsmanns Alþingis
yfir viðleitni sem þeir töldu að átt hefði
sér stað innan bankans til þess að tak-
marka svigrúm bankaráðs til þess að
gegna lögbundnu eftirlitshlutverki
sínu.
Í bréfi sem umboðsmaður skrifaði
til bankaráðs og forsætisráðherra í des-
ember í fyrra og Markaðurinn hefur
undir höndum voru ýmsar athuga-
semdir gerðar við starfsreglur ráðsins,
sem samþykktar voru 2016, og var
jafnframt áréttað að gæta þyrfti þess
að með reglunum væri ekki þrengt að
eftirlitshlutverki bankaráðsins.
Umboðsmaður sagðist í bréfinu
hafa sett fram ábendingar með það að
leiðarljósi að bankaráðið tæki til skoð-
unar hvort tilefni væri til að bregðast
við þeim. Þórunn Guðmundsdóttir,
formaður bankaráðs Seðlabankans,
segir að í ljósi þess að starfstími núver-
andi bankaráðs sé senn á enda hafi
verið ákveðið að leggja málið til hliðar
í bili.
Hvað varðar það ákvæði í starfs-
reglunum að bankaráðið geti ekki
leitað til starfsmanna bankans nema
að höfðu samráði við seðlabanka-
stjóra, þá tekur umboðsmaður fram
að hluti af upplýsingaöflun banka-
ráðs kunni að felast í því að óska
eftir að starfsmenn bankans mæti
á fund ráðsins til þess að veita þar
milliliðalaust upplýsingar og svara
spurningum.
Ekki verði séð að stjórnunarréttur
yfirmanna bankans gagnvart ein-
stökum starfsmönnum geti fellt brott
þennan upplýsingarétt bankaráðs
nema mælt sé fyrir um slíkt í lögum.
Í bréfinu nefnir umboðsmaður
auk þess að ekki verði séð að fjarvera
seðlabankastjóra geti alfarið komið
í veg fyrir að bankaráðið haldi fund,
líkt og Seðlabankinn hefur haldið
fram. „Ég tel því að það sé að minnsta
kosti ekki einhlít túlkun á ákvæð-
inu að bankaráðsfundir verði ekki
haldnir nema að bankastjóri sjái sér
fært að mæta þótt almennt sé gert ráð
fyrir að hann sitji fundi þess,“ segir í
bréfinu. – hae, kij / sjá Markaðinn
Kvörtuðu til umboðsmanns Alþingis
Umboðsmaður Alþingis gerir ýmsar athugasemdir við lagatúlkanir Seðlabanka Íslands og nýjar starfsreglur bankaráðs. Fyrrverandi
bankaráðsmenn kvörtuðu til umboðsmanns og töldu að svigrúm bankaráðs til að sinna eftirlitshlutverki sínu hefði verið takmarkað.
Ekki verður séð að
ráðningarvald og
stjórnunarréttur yfirmanna
bankans gagnvart einstökum
starfsmönnum geti fellt brott
þennan upplýsingarétt
bankaráðs.
Úr bréfi setts umboðsmanns Alþingis
til bankaráðs Seðlabanka Íslands
Engin niðurstaða náðist á fundi kjaranefndar ljósmæðra og samninganefndar ríkisins í gær. Fjöldi fólks kom saman við skrifstofur ríkissáttasemjara í gær til að sýna ljósmæðrum stuðning.
„Við erum þakklátar og orðlausar yfir því hvað við höfum mikinn stuðning,“ sagði Áslaug Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélagsins í samtali við Fréttablaðið. Fréttablaðið/Eyþór
HeilbrigðisMál Verkefnastjóri
hjá Frú Ragnheiði segir ekki duga
að beita siðferðiskenndinni gegn
ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja.
„Á meðan við erum föst í því að
refsa og banna og þurfum alltaf að
taka afstöðu til þess hvort þetta er
rétt eða rangt, þá náum við aldrei
lengra,“ segir Svala Jóhannesdóttir
verkefnastjóri. Hún gagnrýnir nálg-
un yfirvalda á vandann sem fylgir
ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja sem
ganga kaupum og sölum á svörtum
markaði.
„Þegar Embætti landlæknis fer
í átak gegn framboði þessara lyfja
á ólöglega markaðnum, þá breytir
það ekki eftirspurninni þótt fram-
boðið minnki. En verðið hækkar
hins vegar,“ segir Svala. – aá / sjá síðu 4
Bannstefnan
bitnar mest á
þeim veikustu
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
9
-3
3
C
8
1
F
5
9
-3
2
8
C
1
F
5
9
-3
1
5
0
1
F
5
9
-3
0
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K