Fréttablaðið - 04.04.2018, Side 2
Veður
Stíf norðlæg átt í dag og svalt í veðri,
einna hvassast austast. Léttskýjað
sunnan og suðvestan til, en áfram
snjókoma eða él annars staðar.
sjá síðu 16
Brauðostur
á tilboði!
Nú færðu Brauðost 26%
í sérmerktum umbúðum í næstu verslun.
Náttúra „Mig grunar sterklega að
það sé herjað á hreiður þeirra,“ segir
Ólafur K. Nielsen, fuglafræðingur á
Náttúrufræðistofnun Íslands.
Ólafur hefur um margra ára bil
fylgst með varpi fálkans. Hann
ferðast árlega um 5.000 ferkílómetra
svæði í Norður- og Suður-Þingeyjar-
sýslu við rannsóknir sínar.
Karlmaður var staðinn að verki
við að smygla eggjum úr friðuðum
íslenskum fuglum í ágúst í fyrra.
Slík mál heyra til undantekninga
nú til dags og mörg ár eru liðin frá
því að menn voru staðnir að verki
með fálkaegg. Ólafur segir þó vís-
bendingar um að eggjaþjófar séu
enn að valda búsifjum hjá fálk-
anum. Ein mikilvæg vísbending er
sú að á ákveðnum óðölum, þar sem
fullorðnir kynþroska fuglar reyna
varp flest ár, gengur ákaflega illa
að koma upp ungum. Ólafur segir
að fullorðnu fuglarnir séu þarna,
þeir sjást jafnvel liggja á eggjum. En
stundum hverfi öll eggin nema eitt
og í sumum tilfellum er búið að setja
hænuegg í staðinn.
Eggja- og ungaþjófnaður var mjög
áberandi snemma á níunda áratug
síðustu aldar. „Þetta voru útlend-
ingar og það var enginn túrismi
byrjaður á þessum árstíma þegar
þeir komu. Þessir menn voru mjög
áberandi og fóru í sömu hreiður ár
eftir ár. Þeir reyndu ekkert að leyna
ferðum sínum til að byrja með,“
segir Ólafur. Þótt eggjaþjófnaður-
inn sé ekki eins áberandi í dag er
ekki þar með sagt að vandinn sé úr
sögunni.
Ólafur segir ekkert víst að það séu
útlendingar sem taki eggin og karl-
maðurinn sem var tekinn í fyrra var
Íslendingur. „Ég veit að þessi óðöl
eru heimsótt á hverju ári af mönn-
um sem eru íslenskir,“ segir hann.
Ólafur segir að eggjaþjófnaðurinn
sé ekki eina hættan sem steðji að
fálkanum. Þó að fuglinn hafi verið
friðaður í meira en mannsaldur sé
fjórðungur fugla, sem berist dauðir
til stofnunarinnar og eru krufnir,
með áverka sem bendi til þess að
skotið hafi verið á þá. „Þrátt fyrir
langa friðunarsögðu þá er herjað
bæði á fullorðnu fuglana og eins er
verið að steypa undan fálkum,“ segir
Ólafur.
Ólafur segir þó að miðað við þá
mynd sem blasi við í Þingeyjarsýslu
þá ógni hvorki eggjaþjófnaðurinn
né skotárásirnar á fuglana stofn-
inum. „En þetta er eitthvað sem á
ekki að líðast,“ bætir hann við.
Varp fugla er að hefjast um þessar
mundir. Hrafninn og auðnutitt-
lingurinn fara snemma af stað og
eru líklegast byrjaðir. „Fálkinn er
meðal annars einn af þeim fuglum
sem verpa mjög snemma og síðan
tekur ein tegundin við af annarri,“
segir Ólafur. jonhakon@frettabladid.is
Grunar að enn sé
herjað á hreiður fálka
Vísbendingar eru um að eggjaþjófar séu enn að spilla fyrir varpi fálka. Skilja
hænuegg eftir til að villa um fyrir fuglinum og fá hann til að liggja lengur á.
„Eitthvað sem á ekki að líðast,“ segir fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.
Þjófnaður á eggjum úr fálkahreiðrum er ekki eins áberandi í dag og hann var
áður. Það er ekki þar með sagt að vandinn sé úr sögunni. Mynd/Ólafur nielsen
dómstólar Jóhann Helgason tón-
listarmaður hyggur á málsókn gegn
Universal Music, norska lagahöf-
undinum Rolf Løvland og fleirum
vegna meints stuldar á laginu Sökn-
uður „og sölu þess í um hundrað
milljónum eintaka á undanförnum
árum undir heitinu You raise me
up,“ eins og segir í fréttatilkynn-
ingu.
You raise me up er heimsþekkt í
flutningi Josh Groban. Fram kemur
í tilkynningunni að lag Jóhanns hafi
verið samið við texta Vilhjálms
Vilhjálmssonar sem söng það inn
á plötu árið 1977. Á blaðamanna-
fundi í dag verði kynnt ný ensk
útgáfa lagsins undir heitinu Into the
light. Henni sé ætlað að undirstrika
mikinn skyldleika laganna.
„Á fundinum verður einnig kynnt
sérfræðiálit sem unnið var fyrir
STEF þar sem tónskylt efni laganna
er metið allt að 97 prósent. Gert er
ráð fyrir að kostnaður við mála-
ferlin verði á annað hundrað millj-
ónir króna og að kröfur um ógreidd
höfundarlaun og skaðabætur geti
hlaupið á milljörðum króna,“ segir
í tilkynningunni.
Jóhann hefur áður reynt fyrir sér
ytra með málshöfðun vegna þessa
meinta lagastuldar en varð að leggja
árar í bát vegna hins mikla kostnað-
ar sem fylgdi málarekstrinum. – gar
Fást milljarðar
fyrir Söknuð?
Jóhann Helgason
tónlistarmaður.
97%
skyldleiki er talinn vera
með lögunum Söknuði
og You Raise Me Up.
Þrátt fyrir langa
friðunarsögu þá er
herjað bæði á fullorðnu
fuglana og eins er verið að
steypa undan fálkum.
Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur
Leiðarljós við Höfða
Gamli vitinn á Sjómannaskóla Íslands við Háteigsveg heyrir brátt sögunni til en vinna er hafin við byggingu nýs innsiglingarvita á móts við Höfða.
Útlit vitans verður hið sama og á þeim við Austurhöfn og Eyjagarð að viðbættum útsýnispalli umhverfis vitann. Byggingin er samstarfsverkefni
borgarinnar og Faxaflóahafna og er áætlað að nýr viti verði tilbúinn í júní á þessu ári. frÉTTaBlaÐiÐ/anTOn BrinK
BaNdaríKIN Skotum var hleypt af
við höfuðstöðvar YouTube í San
Bruno í Kaliforníu í gærkvöld. Þegar
Fréttablaðið fór í prentun var blaða-
mannafundi lögregluyfirvalda í San
Bruno nýlokið.
Ed Barberini lögreglustjóri stað-
festi að fjórir hefðu verið fluttir á
sjúkrahús vegna skotsára. Þá hefði
árasármaðurinn fundist látinn, eftir
að hafa svipt sig lífi. Samkvæmt lög-
regluyfirvöldum var árásarmaður-
inn kona.
Um 1.700 manns starfa í höfuð-
stöðvum YouTube sem eru í um 20
kílómetra fjarlægð frá miðborg San
Fransisco.
Viðbúnaður lögreglu á svæðinu
var gífurlega mikill. Eftir að hafa
umkringt bygginguna var fólki
hægt og rólega hleypt út og leitaði
lögregla á fólki. – gþs
Skotárás í
höfuðstöðvum
YouTube
4 . a p r í l 2 0 1 8 m I ð V I K u d a G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
9
-3
8
B
8
1
F
5
9
-3
7
7
C
1
F
5
9
-3
6
4
0
1
F
5
9
-3
5
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K