Fréttablaðið - 04.04.2018, Side 4

Fréttablaðið - 04.04.2018, Side 4
Svo er rosaleg sorg í hópnum. það eru svo margir vinir búnir að deyja. Og þeirra sorg er heldur ekki samfélagslega viðurkennd af því þau eru í neyslu. Svala Jóhannes- dóttir, verkefna- stjóri Frú Ragn- heiðar Umboðsaðili Jeep og RAM Trucks - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.jeep.is www.ramisland.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. JEEP GRAND CHEROKEE MEÐ 33” BREYTINGU FRUMSÝNUM 7. APRÍL RAM 3500 MEÐ 40” BREYTINGU® Þýskaland Saksóknarar í þýska bænum Schleswig fóru í gær fram á við dómstóla að Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, yrði framseldur til Spánar. Í tilkynningu kom fram að ákvörðun­ in hafi verið tekin eftir vandlega yfir­ ferð yfir evrópska handtökuskipun sem Spánverjar gáfu út á dögunum. Puigdemont hefur verið í haldi í fangelsinu í Neumünster frá 25. mars, eða allt frá því hann kom til Þýska­ lands frá Danmörku. Hann hefur undanfarna mánuði verið í sjálfskip­ aðri útlegð. Ríkissaksóknari Spánar gaf út ákæru á hendur honum, og öðrum fyrrverandi ráðherrum katalónsku héraðsstjórnarinnar,  í fyrra vegna ólöglegrar þjóðaratkvæðagreiðslu októbermánaðar þar sem Katalónar samþykktu að lýsa yfir sjálfstæði. Er Puigdemont ákærður fyrir uppreisn gegn spænska ríkinu. – þea Vilja framselja Puigdemont Carles Puigdemont. NordiCPhotos/AFP sakaMÁl Maðurinn sem fannst látinn að Gýgjarhóli II að morgni laugardags lést af völdum áverka. Þetta eru bráðabirgðaniðurstöður eftir krufningu réttarmeinafræðings á líki mannsins. Oddur Árnason yfirlögregluþjónn staðfesti að bróðir hins látna sitji í gæsluvarðhaldi, grunaður um morðið. Þriðja bróðurnum var sleppt að loknum skýrslutökum á laugardag en ekki hafa farið fram yfirheyrslur yfir hinum grunaða síðan þá. Oddur sagði enn fremur að á þessu stigi málsins leitaðist lögreglan við að halda að sér höndum í allri upp­ lýsingagjöf vegna rannsóknarhags­ muna. – gþs Úrskurðaður í gæsluvarðhald Bróðir hins látna hefur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald. HeilbrigðisMÁl Á meðan við erum föst í því að refsa og banna og þurfum alltaf að taka afstöðu til þess hvort þetta er rétt eða rangt, þá náum við aldrei lengra,“ segir Svala Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjá Frú Ragnheiði. Hún gagnrýnir nálg­ un Landlæknisembættisins og ann­ arra yfirvalda á vandann sem fylgir ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja sem ganga kaupum og sölum á svörtum markaði.  Svala segir nauðsynlegt að yfirvöld komist út úr því að byggja áherslu sína á siðferðislögmálum um rétt og rangt. „Við getum gert mun betur en þurfum miklu faglegri vinnu.“ Hún segir það ekki hafa skilað árangri að reyna að takmarka fram­ boð þessara lyfja á hinum ólöglega markaði, enda muni sá hópur sem hefur þróað með sér fíknivanda og er orðinn háður þessum efnum, ekki hætta þótt aðgengið verði erfiðara. „Þegar Embætti landlæknis fer í átak gegn framboði lyfseðilsskyldra lyfja á ólöglega markaðinum, þá breytir það ekki eftirspurninni þótt framboðið minnki. En verðið hækk­ ar hins vegar,“ segir Svala og tekur sem dæmi að verð á morfínskyldum lyfjum á ólöglega markaðinum hafi tvöfaldast á einu og hálfu ári og not­ andi sem var að greiða 4.000 kr. fyrir eina töflu af Contalgin, greiði 8.000 krónur fyrir hana í dag. Hún segir aðgerðir yfirvalda geti með þessu móti komið gríðarlega hart niður á veikasta hópnum sem fjármagni neyslu sína með þjófnaði; inn­ brotum í bíla og fyrirtæki og með kynlífsþjónustu sem hún segir að sé mjög vaxandi fjármögnunarleið. Ef stemma eigi stigu við þessum vanda þurfi að hugsa aðgerðirnar heildrænt og hver áhrif þeirra geti orðið hjá þeim hópum sem málið varðar. „Það hefði verið eðlilegast að samkeyra svona átak með inn­ gripum til að reyna að koma í veg fyrir þessi neikvæðu áhrif á veikasta fólkið. Til dæmis með því að bjóða upp á viðhaldsmeðferð út frá skaða­ minnkun.“ Skaðaminnkandi viðhaldsmeð­ ferð myndi tryggja notendum sem ánetjast hafa til dæmis morfínlyfj­ um öruggari og heilsusamlegri lífs­ skilyrði, aukið öryggi í daglegu lífi og tækifæri til að lifa innan ramma laganna í stað þess að þurfa að stela eða selja sig fyrir lyfjaskammti. „Þessir notendur skilja ekki af hverju, eftir allan þennan tíma, þeir geta ekki bara fengið efnið. Þeir myndu þá bara mæta á einhvern stað, fá efnið, þurfa að nota það á staðnum og í læknisfræðilegum til­ gangi.“ Svala segist þekkja til lækna sem hafi í rauninni tekið fólk í við­ haldsmeðferð í þeim tilgangi að halda því frá vændi og bæta lífsskil­ yrði þess. „Þeir eru bara í mannúðar­ starfi í rauninni.“ Aðspurð segir Svala skjólstæðinga Frú Ragnhildar upplifa virðingar­ leysi frá stjórnvöldum og mörgum líði eins öllum sé sama. Alltaf komi nýjar reglugerðir sem geri þeim lífið erfiðara. Hún bendir á að margir hafi verið notendur í áratugi og hafi alla tíð neyðst til að kaupa efnin á ólög­ lega markaðinum. Fæsta langi hins vegar að tilheyra þeim heimi. „Svo er rosaleg sorg í hópnum. það eru svo margir vinir búnir að deyja. Og þeirra sorg er heldur ekki sam­ félagslega viðurkennd af því þau eru í neyslu,“ segir Svala og bætir við að öll áföll eins og sorg, auki einnig líkur á enn meiri notkun. Svala nefnir fleiri inngrip til skaða­ minnkunar og leggur mikla áherslu á upplýsingaflæði. Landlæknisemb­ ættið þurfi að upplýsa hvað er að mælast í blóði þeirra sem látast eða koma á slysadeild vegna ofskömmt­ unar. Þá sé hægt að bregðast við með gagnreyndum aðferðum til að draga úr hættu á að fólk deyi. „Ef við viljum halda fólki á lífi þurfum við að skoða hvers vegna það er að ofskammta; hvað liggur þarna að baki og hvað hefur sýnt árangur annars staðar.“ Svala minnir á að það eru notend­ ur sjálfir sem oftast eru fyrstir á vett­ vang ef um ofneyslu er að ræða. Not­ endur þurfi þjálfun í endurlífgun og þeir þurfa upplýsingar um lífshættu­ leg efni sem gætu verið i umferð. Þá nefnir Svala sérstaklega lyfið Nalox­ one sem verið hafi í umræðunni að undanförnu, en notendur hafa lagt áherslu á að hafa aðgang að þessu mótefni gegn morfíneitrun til að geta bjargað lífi félaga sinna komi til ofskömmtunar. Einungis heilbrigð­ istarfsfólk hafi aðgang að þessu lyfi en unnt væri að bjarga lífi margra ef bæði notendurnir sjálfir og aðrir sem líklegir eru til að koma fyrstir á vett­ vang hafi aðgang að lyfinu. adalheidur@frettabladid.is Segir refsistefnu yfirvalda koma verst niður á veikasta hópnum Verkefnastjóri hjá Frú Ragnheiði segir ekki duga að beita siðferðiskenndinni gegn ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja. Vinnan þurfi að vera mun faglegri og upplýsingagjöfin betri. Margs konar skaðaminnkandi úrræði geta gagnast. Notendurnir sjálfir upplifa virðingarleysi og sorg en sorg þeirra er ekki samfélagslega viðurkennd. skaðaminnkunarverkefni rauða krossins, Frú ragnheiður, hefur verið starfrækt í reykjavík um nokkurra ára skeið. FréttAblAðið/ANtoN briNk 10 manns leituðu til bráða- deildar Landspítala vegna ofskömmtunar lyfja um páskahelgina. 4 . a p r í l 2 0 1 8 M i ð V i k U d a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 9 -4 C 7 8 1 F 5 9 -4 B 3 C 1 F 5 9 -4 A 0 0 1 F 5 9 -4 8 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.