Fréttablaðið - 04.04.2018, Qupperneq 11
Ekki alls fyrir löngu fjallaði leiðarahöfundur Fréttablaðs-ins um stríðið í Sýrlandi. Eða
öllu heldur um þá sem fjalla um
þau stríðsátök og bar leiðarinn yfir-
skriftina, Upplýsingastríð. Tilefnið
var fundur sem undirritaður hafði
staðið að í Safnahúsinu í Reykjavík
þar sem bresk rannsóknarblaða-
kona, Vanessa Beeley, flutti erindi.
Gegn heimsvaldastefnu
Vanessa Beeley kom hreint til dyr-
anna, tók afstöðu með Sýrlands-
stjórn í stríðinu á þeirri forsendu
að um væri að ræða innrás í full-
valda ríki og rifjaði upp að Sýrland
hefði verið eitt þeirra ríkja þar sem
Bandaríkin og bandalagsríki þeirra
hefðu talað opinskátt um að þörf
væri á að knýja fram stjórnarskipti,
„regime change“. Hún var með
öðrum orðum að andæfa heims-
valdastefnu.
Málflutningur Vanessu Beeley
gekk út á að færa sönnur á að
„uppreisnarmenn“ ættu fátt sam-
merkt með stjórnarandstæð-
ingum sem í aðdraganda stríðsins
hefðu mótmælt Assad-stjórninni;
að uppistöðu væru þeir leppherir
fjármagnaðir af Vesturveldunum,
Sádi-Aröbum og bandalagsríkjum
þerra. Gerði hún greinarmun á
harðlínuíslamistum og Kúrdum í
nyrstu héruðunum.
Inn í umræðuna fléttaðist síðan
nýútkomin bók í íslenskri þýðingu
eftir ástralskan fræðimann, Tim
Anderson, Stríðið gegn Sýrlandi.
Í þessari bók leitast höfundur við
að sýna hvernig upplognar fréttir
liti fréttaflutning frá átökunum í
Sýrlandi og það sem ekki er síður
alvarlegt, skýrslur Sameinuðu
þjóðanna um efnið. Komið er við
fleiri kaun, til dæmis sýnt fram á
hlutdrægni ýmissa „hjálparstofn-
ana“ svokallaðra, sem fái ógagn-
rýninn aðgang að fréttastofum
heimsins í krafti sakleysislegs heitis
en séu í reynd á framfæri hags-
munaaðila í upplýsingastríðinu.
Hver étur upp eftir öðrum
Á allt þetta vildi Vanessa Beeley
opna. Ekki var því almennt vel
tekið á fréttastofum þessa lands.
Í orðsendingu frá fréttamanni
Ríkis útvarpsins var farið háðu-
legum orðum um hina gestkom-
andi fréttakonu. Þá var haft eftir
ónafngreindum „sérfræðingum“ að
háskalegt væri að rugla fólk í rím-
inu með tali af þessu tagi; almenn-
ingur gæti hætt að trúa alþjóð-
legum fréttamiðlum ef bátnum
væri ruggað um of og vísað var í
enn aðra „sérfræðinga“ sem sögðu
að ekkert alvörufólk tæki Vanessu
Beeley alvarlega, hvað þá Tim
Anderson, enginn hefði heyrt hans
getið sagði fræðimaður og í þann
fræðimann vitnaði einn aðalspe-
kúlantinn að sjálfsögðu samstundis
og röksemdalaust!
Svona fór allt í hringi eins og
stundum gerist í gluggalausu rými.
Á netmiðlum voru óspart birtar
glefsur úr umfjöllun um fyrr-
greinda einstaklinga þar sem
ummæli þeirra höfðu verið slitin úr
samhengi þeim til háðungar, Tim
Anderson sagður fylgjandi Norður-
Kóreu og sýnd mynd af manni með
norður-kóreska fánann á torgi þar í
landi þessu til áréttingar. Við nán-
ari athugun kom í ljós að myndin
var af einhverjum allt öðrum
manni. Engu að síður hafði tekist
að grafa það upp að Tim Anderson
hefði einhvers staðar sagt að í tím-
ans rás hefði ýmsu verið logið upp
á Norður-Kóreu.
Leiðari Fréttablaðsins
En sennilega toppaði leiðara-
höfundur Fréttablaðsins þessa
umræðu alla þegar hann sagði að
fundurinn í Safnahúsinu hefði
verið á forsendum fólks sem þjón-
aði illum öflum: Það væri „aðeins
til þess fallið að gera illt verra að
„opna umræðuna“ með því að hefja
hana á forsendum þeirra sem tala
fyrir áframhaldandi mannvonsku
og hörmungum. Það var raunin
á dögunum þegar áhrifamikill
bloggari, Vanessa Beeley, sem telur
SÞ ljúga um átökin í Sýrlandi, var
fengin til að halda erindi á fundi
sem bar yfirskriftina „Er verið að
segja okkur satt um stríðið í Sýr-
landi?““.
Nú vil ég taka það skýrt fram að
ég er ekki í hópi þeirra sem telja
fullveldi ríkja vera alheilagt. Og
ekki skrifa ég upp á samtryggingar-
reglu ríkja heims um óumbreytan-
leika landamæra.
En hvað sem slíkum vangaveltum
líður þá er fullveldi ríkja varið á
ýmsum forsendum og hvað þau
Vanessu Beeley og Tim Anderson
áhrærir þá vísa þau í alþjóðalög og
þá hættu sem hljóti að vera raun-
veruleg ógn við þjóðir heims ef her-
veldi samtímans geta farið óáreitt
sínu fram um hverjir fái að ríkja og
hverjir ekki. Og vel að merkja, þeir
sem fá að lifa gera það ekki vegna
siðferðilegra yfirburða heldur
vegna þess að þeir gagnast í stór-
veldapólitíkinni. Það átti til dæmis
við um Saddam Hussein Íraksfor-
seta á meðan hann var handgeng-
inn Vesturveldunum.
Varla ást á Ho Chi Minh
Og varla var það vegna ástar á Víet
Kong eða Ho Chi Minh, leiðtoga
Norður-Víetnams, að Olof Palme,
forsætisráðherra Svía, andæfði
hernaði Bandaríkjanna í Suðaust-
ur-Asíu á sjöunda og áttunda ára-
tug síðustu aldar. Mótmæli hans
voru uppreisn gegn heimsvalda-
öflum þess tíma.
Upp úr miðri öldinni sem leið
skáru Svíar sig nokkuð úr alþjóð-
legri stjórnmálaumræðu enda
stóðu þeir utan NATO og enn
ekki komnir undir straujárn sam-
ræmdrar utanríkisstefnu Evrópu-
sambandsins. Í tvískiptum heimi
austurs og vesturs var Olof Palme,
holdgervingur hins óbundna gagn-
rýnanda, óhræddur að „opna á
umræðuna“.
Hann varð fyrir ómældri gagn-
rýni fyrir vikið. Ekki hefði hún
verið minni núna. Alla vega var
Fréttablaðið þá ekki til. Að því leyti
var Palme heppinn.
Heppni Olofs Palme
Ögmundur
Jónasson
fv. alþingismaður
Víða má sjá orðinu orku-skipti bregða fyrir í fjöl-miðlum og þá oft til viðtals
verkfræðingar, jarðfræðingar, hag-
fræðingar eða aðrir þeir fræðingar
sem með einum eða öðrum hætti
koma að málum.
Orkuskiptin eru hafin, en gefa
aðeins vísbendingu um þær miklu
breytingar sem í vændum eru.
Þau eru Íslendingum gríðarlega
mikilvæg og felast meðal annars
í að færa bílaflotann frá jarðefna-
eldsneyti í rafmagn, innlendan,
umhverfisvænan, orkugjafa.
Konur við stýrið
Við orkuskiptin hættum við
að dæla bensíni eða dísilolíu á
bílana okkar og losnum þar með
við orkugjafa sem skaðlegir eru
umhverfinu í öllu framleiðslu-
og flutningsferli til landsins, auk
þess að hafa neikvæð áhrif á vöru-
skiptajöfnuð. Í staðinn nýtum
við innlenda orku og uppskerum
ríkulegan þjóðhagslegan ávinning
með gjaldeyrissparnaði og minni
mengun. Svo er rekstur rafbíls
náttúrlega bara brot af kostnaði
við rekstur bíls sem gengur fyrir
jarðefnaeldsneyti.
Í markaðsrannsóknum síðustu
ára er víða bent á að konur stýri
rekstri heimilanna og hafi loka-
orð um nær allar fjárfestingar. Því
mætti halda því fram að í raun
ráði orkusérfræðingarnir því ekki
hvenær orkuskiptin fara fram.
Markaðsfræðin segja okkur að við
konurnar séum í bílstjórasætinu.
(Án þess þó að lítið sé gert úr hlut
sérfræðinga, á þeirra ábyrgð er að
tækni og framboð sé fyrsta flokks
og að markaðurinn sé tilbúinn í
skiptin.)
Raunhæft markmið
Með opnun hlöðu ON á Mývatni
fyrir páska var þeim áfanga náð að
á þjóðvegi 1, hringinn í kringum
landið, eru alls staðar innan við
100 kílómetrar í næstu hrað-
hleðslu Orku náttúrunnar. Hrað-
hleðslum hefur fjölgað hratt, bæði
á höfuðborgarsvæðinu og úti á
landi, en fyrir sumarið verða hrað-
hleðslur ON orðnar 33 talsins. Það
er þreföldun á einu og hálfu ári.
Grunnurinn að orkuskiptunum
hefur verið lagður.
Framboð rafbíla hefur stórauk-
ist og þeir eru á samkeppnishæfu
verði við bensín- og dísilbíla.
Meira að segja sjást til sölu not-
aðir, vandaðir og góðir rafbílar,
og fyrri eigendur að endurnýja
með rafbíl númer tvö. Allt er því til
reiðu að við konur hefjum orku-
skiptin í landinu. Fyrsta skrefið
er að gera „aukabílinn“, eða bíl
númer tvö, á heimilinu að rafbíl.
Raunhæft markmið er að fyrir
árið 2022 sé einn rafbíll á hverju
heimili. Það er í okkar höndum að
klára það verkefni.
Þegar þessum áfanga verður
náð þarf kannski einhver olíu-
prins í Miðausturlöndum skrúfa
aðeins niður lífsstílinn hjá sér, en
við grátum það svo sem ekki. Með
stórauknu hlutfalli vistvænnar
orku í samgöngum höfum við þá
hér heima náð áfanga sem aðrar
þjóðir telja öfundsverðan.
Konur hafa áhrif á orkuskiptin
Og varla var það vegna
ástar á Víet Kong eða Ho Chi
Minh, leiðtoga Norður-Víet-
nams, að Olof Palme, for-
sætisráðherra Svía, andæfði
hernaði Bandaríkjanna í
Suðaustur-Asíu á sjöunda og
áttunda áratug síðustu aldar.
Mótmæli hans voru uppreisn
gegn heimsvaldaöflum þess
tíma.
Áslaug Thelma
Einarsdóttir
forstöðumaður
einstaklings-
markaða ON Allt er því til reiðu að við
konur hefjum orkuskiptin
í landinu. Fyrsta skrefið er
að gera „aukabílinn“, eða
bíl númer tvö, á heimilinu
að rafbíl. Raunhæft mark-
mið er að fyrir árið 2022
sé einn rafbíll á hverju
heimili.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 4 . A p R í L 2 0 1 8
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
9
-3
D
A
8
1
F
5
9
-3
C
6
C
1
F
5
9
-3
B
3
0
1
F
5
9
-3
9
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K