Fréttablaðið - 04.04.2018, Síða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Dagskráin verður fjölbreytt og hentar fyrir gesti á öllum aldri með áherslu á nýtingu
á heimilinu og umhverfis það
enda eru það lítil vistkerfi þar sem
íbúarnir setja sjálfir reglurnar og
margt smátt gerir eitt stórt.
Meðal viðburða er samtal þar sem
Sveinn Kjartansson sjónvarpskokk-
ur og Eveline Bünter frá Flatböku-
samsteypunni ræða um pitsuna sem
hina fullkomnu sveigjanlegu upp-
skrift og hvernig nýta má íslenskt
hráefni á frumlegan hátt. „Við í Aalto
Bistro ætlum að vera með Eveline
í því að nota staðbundið hráefni
í matargerð, til dæmis notum
við bara íslenskt korn í deigið og
íslenska tómata í sósuna,“ segir
Sveinn Kjartansson sem auk þess að
vera þekktur matreiðslu- og sjón-
varpsmaður rekur veitingastaðinn
Aalto Bistro í Norræna húsinu. Með
nálgun sinni að pitsubakstri þar sem
eingöngu eru notuð íslensk hráefni
er markmið hópsins sem stendur
að Flatbökusamsteypunni að gera
neytendur meðvitaða um hvaðan
maturinn þeirra kemur og hvernig
hann verður til. Á vefsíðu sam-
steypunnar, Flatbokusamsteypan.
is má sjá markmið samsteypunnar
og enn fremur heimildarmynd þar
sem kannað er hvort hægt er að gera
pitsu úr íslensku hráefni eingöngu
og jafnvel baka hana í ofni sem er
búinn til á Íslandi með íslensku
eldsneyti. Hægt verður að kynna sér
starfsemi Flatbökusamsteypunnar
nánar á sýningunni en Sveinn segir
að þau Eveline ætli sér ekki að halda
matreiðslunámskeið enda sé það
ekki markmiðið. „Við förum hins
vegar yfir ýmislegt varðandi nýtingu
og innkaup, því Eveline vill, eins og
hún segir sjálf, vera millistykkið sem
hefur áhrif á fólk til að breyta hugs-
unarhætti þess í þessu samhengi,“
segir Sveinn og bætir við að pitsan
sé gagnlegt kennslutæki því bæði
er hún vinsæll matur og höfðar til
flestra en svo er pitsan upprunalega
aðferð til að nýta afganga og hand-
hægt að opna ísskápinn og nýta það
sem þar er með pitsudeigi, tómat-
sósu og osti til að gera afbragðspitsu.
„Mitt framlag verður hins vegar
kaka úr kökuafgöngum því oft
verða afgangar af kökum á veitinga-
staðnum sem er synd að þurfa að
henda,“ segir Sveinn. „Ég hef gert
þetta stundum og það eru sko engar
slorkökur sem verða til úr því. Ég
hef verið að sanka að mér köku-
afgöngum sem er mikið til af núna,
bæði eftir páskana og fermingarnar,
og svo eru stundum afgangar af
kökum á veitingastaðnum. Leyndar-
málið er að mylja kökuafgangana
saman og bæta við eggjum, setja í
form og baka á vægum hita. Með
þessu er alveg hægt að baka kökur
fyrir fjölskylduna án þess að það sé
eitthvert sérstakt tilefni þegar verið
er að nýta kökuafganga úr kexskúff-
unni eða frystinum.“ Samtal Eveline
og Sveins á sér stað klukkan þrjú á
sunnudaginn en meðal annarra við-
burða í Norræna húsinu um helgina
má nefna sýningu á vegum hönn-
unarnema við Listaháskóla Íslands
þar sem þemað er matarupplifun,
matarhönnun, vannýtt hráefni og
nýsköpun, Kvenfélagasamband
Íslands opnar saumaverkstæði í
Norræna húsinu þar sem verður
kennt að sauma eigin innkaupapoka
úr efni sem til fellur, Garðyrkjufélag
Íslands stendur fyrir námskeiði í
moltugerð, sýndar verða heimildar-
myndir og boðið verður upp á fyrir-
lestra frá umhverfisverðlaunahöfum
Norðurlandaráðs um hvernig á að
draga úr matarsóun. Boðið verður
upp á smiðjur, fyrirlestra, námskeið,
kynningar, hönnunarsýningu og
heimildarmyndir.
Helstu samstarfsaðilar eru:
Garðyrkjufélag Íslands, Landvernd,
Listaháskóli Íslands, Matís, Sorpa,
Umhverfisstofnun og Vakandi.
Norðurlönd í fókus taka þátt í að
skipuleggja og kosta umhverfis-
hátíðina.
Dagskráin hefst klukkan eitt og
stendur til fimm báða dagana.
Þátttaka er ókeypis og allir eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Bak við Svein má sjá listaverk úr flöskum og dósum en endurvinnsla og vistvænt heimili eru í forgrunni á umhverfishátíð í Norræna húsinu um helgina.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
4 réttir + súpa dagsins
aðeins 1.690 kr.*
NAUTAKJÖT Í OSTRUSÓSU
KJÚKLINGUR Í KARRÝSÓSU
NÚÐLUR MEÐ GRÆNMET
DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU
*tekið með heim – 1.990 kr. ef borðað er á staðnum.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A p R Í L 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
9
-6
5
2
8
1
F
5
9
-6
3
E
C
1
F
5
9
-6
2
B
0
1
F
5
9
-6
1
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K