Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.09.2017, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.09.2017, Page 22
FYRIR 4 700 g lax 3 msk. ólífuolía sjávarsalt og svartur pipar KÁLIÐ 1 búnt grænkál 3 hvítlauksrif, smátt skorin ½ tsk. chili-flögur 2 msk. ólífuolía sjávarsalt og svartur pipar 2-3 bollar af bláberjum Skolið og þerrið laxinn og skerið í mátulega stór stykki. Saltið og piprið eftir smekk. Hitið olíu á pönnu, gott er að hún sé með frekar þykkum botni og passið að olían sé orðin vel heit áður en laxa- stykkin eru sett á pönnuna. Steikið roðhliðina fyrst í 5 mínútur og svo hina hliðina í um 3-4 mínútur. Útbúið kálið á meðan. Skerið stiklana af grænkálinu og skerið kálið sjálft svo smátt. Hitið kálið og hvítlaukinn við miðl- ungshita í olíu á pönnu og bætið chili-flögunum saman við, þar til blandan er mjúk, á ekki að taka nema nokkrar mínútur. Smakkið til með salti og pipar. Takið kálið til hliðar og blandið bláberjunum var- lega saman við. Leggið kál- og bláberjablönduna á hvern disk fyrir sig, laxastykki ofan á og skreytið svo efst með nokkrum bláberjum til viðbótar. Með snöggsteiktu grænkáli og bláberjum Það góða við að nýta bláberin í hafraklatta er að það er ótrúlega þægilegt að frysta þá og geyma lengi – og hægt að næla sér í einn og einn klatta yfir veturinn eða hrúga þeim fram í kaffiboðin. ½ bolli heilhveiti ½ bolli haframjöl ½ tsk. kanill ½ ts. lyftiduft ½ tsk. salt 2 msk. bráðin kókosolía 1 vel þroskaður miðlungsstór banani ¼ bolli púðursykur 1 tsk. vanilludropar 1 bolli fersk bláber ¼ bolli valhnetur, fínt saxaðar ¼ bolli dökkt súkkulaði, gróft saxað (má sleppa) Hitið ofninn í 175ºC. Blandið heil- hveiti, höfrum, kanil, lyftidufti og salti saman í stóra skál. Hrærið saman í annarri skál púðursykri, stöppuðum banananum, bræddri kókosolíunni og vanilludropunum. Blandið þessari blöndu varlega sam- an við þurrefnisblönduna og hrærið svo valhneturnar, bláberin og suðu- súkkulaðið varlega saman við. Setjið bökunarpappír á plötu og notið stóra matskeið til að taka deig úr skálinni, hafið hverja skeið vel kúpta og hnoðið hvern skammt í höndunum svo úr verði kúla. Setjið kúlurnar á bökunarpappírinn og þrýstið aðeins á þær með fingrun- um svo þær fletjist örlítið út. Bakið í 8-10 mínútur eða þar til þær eru gylltar. Klattar með mjólkur- glasinu MATUR Skemmtileg leið til að láta börnin borða hollt er að skera melónu-sneið eins og pitsusneið og raða ofan á bláberjum, grænmeti og alls kyns hollustu. Smá fetaostur passar líka sérlega vel með. Raðið á melónusneiðar 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.9. 2017 Smá sæta er fullkomin með laxi en í seinni tíð er einhvers konar mango chutney-sósa vinsælust. Bláberin, bæði soðin og fersk, eru hins vegar fullkomin með fiski og hér eru tvær ofureinfaldar uppskriftir að þeirri samsetningu LAX MEÐ BLÁBERJA- OG RÓSMARÍNSÓSU FYRIR 4 800 g lax Sjávarsalt og pipar eftir smekk 1 msk. ólífuolía 1 msk. smjör SÓSAN ½ sítróna 2 bollar fersk bláber 1 msk. smátt saxað ferskt rósmarín salt og pipar eftir smekk Stillið ofninn á undir og yfirhita og hitið í 200°C. Skolið laxinn, þerr- ið og skiptið niður í nokkrar mátu- lega stórar sneiðar, það er ekki nauðsynlegt að roðfletta frekar en þið viljið en byrjið þá á að steikja roðmegin og steikið roðhliðina um 2 mínútur lengur en þá roðlausu. Hit- ið ólífuolíuna og smjörið saman á pönnunni og steikið í 1-2 mínútur við fremur háan hita á hvorri hlið og leggið svo í smurt eldfast mót. Hitið í ofni í 10-15 mínútur, fer eftir þykkt stykkjanna og gerið sósuna á meðan. Kreistið sítrónusafann á pönnu og blandið bláberjunum saman við. Kremjið berin með gaffli eða kart- öflustappara og hrærið varlega saman við kryddið. Hitið við vægan hita í 3-4 mínútur, blandið þá rósm- aríni saman við og smakkið til með smá salti og pipar. Látið sósuna malla í örfáar mínútur, þar til hún er mátulega þykk. Ekki bara pæ og sulta Þótt vissulega sé sígilt að nýta uppskeruna úr berjamó til að sulta úr berjunum, baka pæ og geyma í frysti fyrir heilsudrykki vetrarins er hægt að nýta uppskeruna í ótal fleiri vænar uppskriftir. Bláber passa sérlega vel með laxi og eru hentug í kex og klatta í hollari kantinum. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.