Feykir - 30.01.2014, Blaðsíða 1
BLS. 10
BLS. 9
Gestur Guðna og félagar
senda frá sér nýja plötu
Höfuðsynd með
Atónal Blús
BLS. 7
Þorrablót á Blönduósi, í
Fljótum og Skarðshreppi
Blótað á bónda-
dag og laugardag
Inga Heiða Halldórsdóttir
svarar fyrir sig í
Tón-lystinni
Væri til í að vera
Beyoncé einn dag
04
TBL
30. janúar 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Blaðamaður Feykis fór á stúfana í
gærmorgun og leitaði uppi helstu
morgunhana bæjarins. Sem vænta
mátti var þá að finna í sundlaug
Sauðárkróks, sem opnar kl 6:50
virka morgna. Þar mætir jafnan fjöldi
manns strax í morgunsárið. „Við
köllum það Húnafélagið,“ sögðu
kapparnir á myndinni, „því sumir eru
mættir það snemma að þeir þurfa að
hanga á hurðinni þar til er opnað.“
Þeir kváðust allir mæta flesta virka
morgna taka sundsprettinn sinn
samviskusamlega, og voru nefndar
tölur allt frá 335 metrum upp í hálfan
kílómetra. Konurnar væru þó duglegri,
sérstaklega þær sem væru með
„utanborðsmótor“, en þar mun vera átt
við blöðkur eða svokallaðar froskalapp-
ir. Konurnar sem blaðamaður hitti í
pottinum staðfestu það að drjúg væru
morgunverkin, ein var meira að segja
Árrisulir sundlaugargestir
Morgunstund gefur gull í mund
Frá vinstri: Björgvin Guðmundsson, Þórarinn Sveinsson, Gunnar Sandholt og Jónas Svavarsson
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
DELL Inspiron 5521
Intel Core i3 · 4GB vinnsluminni · 500GB harður diskur ·
15.6“ HD WLED · Windows 8
ÚTSALA
ÚTSALA
ALLT A
Ð 40%
AFSL
ÁTTUR
búin að hnoða kleinudeig áður en hún
mætti í laugina.
Síðan er fastur liður að ræða málin í
pottinum, þó að viðmælendur hafi nú
ekki viljað meina að heimsmálin væru
leyst þar. Spjallinu er svo haldið áfram
yfir kaffibolla og þar eru jafnvel vísur
og gamanmál látið flakka. Þannig ná
menn líkama og sál, áður en haldið er
út í daginn. /KSE
Hófu þorrann á safninu á Reykjum
Krakkar í Húnaþingi vestra
Nemendur frá Grunnskólanum á
Borðeyri og leikskólanum Ásgarði
á Hvammstanga heimsóttu
Byggðasafn Húnvetninga og
Strandamanna á Reykjum í
gærmorgun. Þar voru þeim sagðar
sögur í tilefni af Þorra sem hófst
með bóndadeginum sl. föstudag.
Krakkarnir fóru saman inn í
baðstofuna frá Syðstahvammi og
fengu að heyra sögur um hvernig lífið
var á tímum forfeðra þeirra, hvernig
matur var þá á boðstólum og þar
fram eftir götunum. Svo var rölt um
safnið og merkilegir gripir skoðaðir.
„Að lokum sungu krakkarnir fyrir
okkur. Varla hægt að hugsa sér betri
byrjun á góðum degi. Frábært að fá
þau í heimsókn og eru þau ávallt
velkomin,“ segir á Facebook-síðu
safnsins en þar má skoða fjölda af
ljósmyndum frá heimsókninni. /KSE