Feykir - 30.01.2014, Síða 2
2 Feykir 04/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Samhugur í verki
Það hefur líklega ekki farið fram hjá lesendum að leiðarar
undirritaðrar hafa verið á gamansamari nótunum, eða vonandi
hafa skrif mín hingað til alla vega ekki verið tekin mjög
hátíðlega. Nú langar mig hins vegar að venda mínu kvæði í
kross og hugleiða alvöru lífsins, sem undanfarið hefur bankað
all-harkalega upp á í okkar góða samfélagi.
Ég held að ég tali fyrir hönd allra lesenda og miklu fleiri, þegar
ég segi að undanfarnar vikur hefur hugur minn oft reikað til
allra þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hins hörmulega
umferðarslyss sem varð í Norðurárdal þann 12. janúar sl. Tvö
ungmenni, búsett hér á Sauðárkróki, hafa nú kvatt þennan
heim eftir að hafa lent í umræddu slysi, Anna Jóna Sigur-
björnsdóttir sem lést samstundis og Skarphéðinn Andri
Kristjánsson sem lést síðastliðinn þriðjudag eftir erfiða baráttu.
Það hefur verið fallegt að fylgjast með þeim gríðarlega samhug
sem einkennt hefur samfélagið okkar, eftir að slysið átti sér stað.
Fallegar athafnir þar sem kveikt var á friðarkertum við
Fjölbrautaskólann, bænastund í Sauðárkrókskirkju og fjöl-
mennur rúntur á afmælisdegi Önnu Jónu voru táknrænar
athafnir þar sem fólk sýndi hug sinn í verki og vottaði hinum
látnu virðingu og aðstandendum þeirra samúð. Oft er erfitt að
finna orð til að tjá samúðina, en einmitt athafnir eins og þessar
segja meira en mörg orð.
Við sem eigum unglinga þekkjum eflaust öll áhyggjurnar og
tilfinningarnar sem bærast með okkur þegar við vitum af þeim
einhvers staðar á ferð. En þannig eru jú unglingsárin, það er
margt að gera og því fylgir að vera á ferð og flugi. Lífgleði og
kátína eru við völd og áhyggjuleysið er allsráðandi, eða ætti að
minnsta kosti að vera það.
Alltaf er það léttir þegar allir hafa skilað sér heilir heim. En það
er því miður ekki sjálfgefið og fyrir það ætti maður að muna að
vera þakklátur hverja stund. Við vitum aldrei hvað næsti dagur
ber í skauti sér.
Ég votta öllum aðstandendum, vinum og skólafélögum mína
dýpstu samúð og bið allar góðar vættir um áframhaldandi styrk
þeim til handa.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Stefna í eina sæng
Kjölur og Starfsmannafélag Skagafjarðar Norðurland vestra
Lést á
gjörgæslu-
deild Land-
spítalans
Skarphéðinn Andri
Kristjánsson Barðsnes lést
á gjörgæsludeild Land-
spítalans á þriðja tímanum
í fyrradag eftir mikla
baráttu, en hann slasaðist
í bílslysi við Fornahvamm í
Norður-árdal sunnudaginn
12. janúar.
Unnusta hans, Anna Jóna
Sigurbjörnsdóttir, lést í slys-
inu og var jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju síðastlið-
inn laugardag.
Skarphéðinn var öku-
maður fólksbifreiðar sem
lenti í árekstri við flutningabíl
sem kom úr gagnstæðri átt.
Hálka og skafrenningur var
þegar slysið átti sér stað og
rann fólksbíllinn í veg fyrir
flutningabílinn.
Skarphéðinn var átján ára
gamall, fæddur 1. mars 1995.
Hann bjó á Sauðárkróki og
stundaði nám við Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra. /KSE
Stjórnir Stéttarfélagsins
Kjalar og Starfsmannafélags
Skagafjarðar hafa undirritað
samkomulag um sameiningu
félaganna undir nafni þess
fyrrnefnda. Samkomulagið
verður kynnt félagsmönnum í
Starfsmannafélagi Skaga-
fjarðar á næstu dögum og
afgreitt á aðalfundi félagsins
í febrúar.
Sameiningin hefur þegar
verið kynnt á trúnaðarmanna-
fundi hjá Kili og á aðalfundi
félagsins í mars verður hún
endanlega staðfest með kosn-
ingu nýrrar stjórnar. Formenn
beggja félaganna, þau Árni
Egilsson hjá Starfsmannafélagi
Skagafjarðar og Arna Jakobína
Björnsdóttir, formaður Kjalar,
segja þetta jákvætt skref.
Starfsmannafélag Skaga-
fjarðar var stofnað árið 1971 og
innan vébanda þess eru ríkis-
starfsmenn í Skagafirði, sem og
starfsmenn hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði, alls um 160 félags-
menn. Árni Egilsson, formaður
stjórnar SFS, telur félagsmenn
skapa sér sterkari stöðu í stærra
félagi.
„Ávinningurinn er fjöl-
þættur og snýr að launamálum,
orlofsmálum, starfsmennta-
málum og ýmsu öðru.
Stéttarfélög þurfa að vera
stærri í þeim heimi sem við
búum í dag og sterkari gagn-
vart viðsemjendum. Lítil
stéttarfélög eru smám saman
að verða börn síns tíma. Að
okkar mati eru því miklir
kostir við þessa sameiningu,“
segir Árni. /KSE
Falla frá hækkunum
Sveitarstjórn Húnavatns-
hrepps hefur ákveðið að falla
frá fyrirhuguðum gjaldskrár-
hækkunum á sorpgjöldum og
leikskólagjöldum. Forseti ASÍ
hefur skrifað bæjar- og
sveitarstjórnum bréf þar sem
hann skorar á sveitarfélögin
að halda aftur af gjaldskrár-
hækkunum.
Í bréfinu segir forseti ASÍ
m.a.: „Fyrir hönd íslensks
launafólks vil ég skora á þig og
samverkamenn þína í stjórn
sveitarfélagsins að hækka engar
gjaldskrár fyrir þjónustu eða hjá
fyrirtækjum sveitarfélagsins.
Hafi það verið gert hvet ég ykkur
til að endurskoða þá ákvörðun
og draga umræddar hækkanir
til baka nú þegar.“
Húnavatnshreppur hefur nú
brugðist við þessu bréfið og
ákveðið að falla frá fyrirhug-
uðum gjaldskrárhækkunum á
sorpgjöldum og leikskólagjöld-
um eins og áður sagði. Húni.is
segir frá þessu /BÞ
Húnavatnshreppur tekur áskorun ASÍ
Nemendafélag FNV
Konukvöld með
Siggu Kling
Nemendafélag FNV stendur
fyrir konukvöldi í kvöld. Fer
það fram í hátíðarsal
skólans. Verður þar mikið
um dýrðir fyrir dömur á
öllum aldri og veislustjóri
verður engin önnur en hin
vinsæla ofurdama Sigríður
Klingenberg.
Boðið verður upp á óá-
fengan fordrykk og dömu-
legar veitingar. Til skemmt-
unar verða tónlistaratriði og
happdrættismiðar verða seldir
á staðnum. Kvöldið er opið
öllum dömum frá 16 ára aldri
(árgangur 1998) og verður
húsið opnað kl. 20 en fjörið
hefst kl 20:30. /KSE
Brúsastaðir afurða-
hæsta kúabúið
Mest meðalnyt eftir árskú á
nýliðnu ári, 2013, var á búi
Brúsa ehf. á Brúsastöðum í
Vatnsdal, A-Hún. með 7.693
kg á árskú.
Þetta kemur fram í niður-
stöðum skýrsluhaldsársins í
mjólkurframleiðslunni 2013
sem nú hafa verið reiknaðar og
birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins. Þá var búið á
Brúsastöðum einnig á meðal
þeirra tíu efstu árið 2012.
Bú Valdimars Óskars Sig-
marssonar í Sólheimum í
Sæmundarhlíð, Skagafirði, var
einnig á meðal hinna efstu
síðastliðið ár, eða áttunda búið í
röðinni með meðalnyt árskúa
7.394 kg. /BÞ
Nautgriparækt á NLV
Gerir það gott í Japan
Ásgeir Trausti er í fyrsta sæti
á Billboard Hot Overseas-
listanum í Japan með
smáskífulagið „King and
Cross“, samkvæmt frétt Vísis.
is í vikunni. Þá er lagið í
þrettánda sæti á Billboard
Japan Hot 100 listanum en
fréttir herma að íslenskir
tónlistarmenn hafa aldrei
áður ratað inn á þennan lista.
„Þetta er auðvitað alveg
magnað og við vissum ekki af
þessu fyrr en vinkona okkar,
hún Yuka Ogura, sagði okkur
frá þessu,“ segir María Rut
Reynisdóttir, umboðsmaður
Ásgeirs Trausta í samtali við
Vísi. „Ogura sagðist aldrei hafa
séð íslenska listamenn á þessum
lista. Þetta er mælt með ein-
hverri hlutfallsblöndu, blanda af
spilun, iTunes-sölu og hversu
oft hann er gúgglaður og skoð-
aður á Twitter. Þetta er einhvers
konar hlutfall,“ útskýrir María
Rut. /KSE
Ásgeir Trausti
Frá undirritun samkomulagsins.
Skarphéðinn Andri.