Feykir - 30.01.2014, Blaðsíða 5
04/2014 Feykir 5
( ÍÞRÓTTAGARPUR ) gudrun@feykir.is
Árný Lilja Árnadóttir > golf
Hola í höggi
á þriðju braut
Árný Lilja Árnadóttir á
Sauðárkróki náði glæsilegum
árangri á golfvellinum
síðasta sumar og sigraði
m.a. í meistaraflokk kvenna
á meistaramóti GSS og
í kvennaflokki á Opna
Steinullarmótinu.
Árný Lilja er byrjuð að undirbúa
sumarið ásamt unglinganefnd
GSS en nú styttist óðum í að
innanhúsæfingar fyrir börn og
unglinga fari að hefjast. Árný Lilja
er Íþróttagarpur Feykis.
Íþróttagrein: --Golf.
Íþróttafélag: -Golfklúbbur Sauð-
árkróks, þar áður Golfklúbbur
Akureyrar.
Helstu íþróttaafrek: -Ekkert
endilega merkileg, landsliðsferðir
sem unglingur, hinir og þessir titlar
í gegnum árin. Sennilega þykir mér
samt vænst um fyrstu verðlaunin
á stórmóti, þegar ég lenti í öðru
sæti á unglingameistaramóti
Íslands í Vestmanneyjum 1986,
á eftir Ragnhildi Sigurðardóttur úr
Golfklúbbi Reykjavíkur, þáverandi
Íslandsmeistara kvenna (og síðar
margföldum Íslandsmeistara
kvenna).
Skemmtilegasta augnablikið:
-Þegar ég fór holu í höggi á þriðju
braut á Hlíðarendavelli.
Neyðarlegasta atvikið: -Þegar ég
bakaði Ragnhildi víti á fyrrgreindu
móti í Vestmannaeyjum. Ragn-
hildur var að pútta og ég átti að
passa flaggstöngina. Í klaufaskap
mínum náði ég ekki stönginni upp
úr holunni áður en boltinn kom,
svo hann lenti í stönginni. Hún
fékk fyrir það 2 högg í víti. Ég
var allan hringinn að jafna mig
á þessum mistökum og hún var
heldur ekki glöð.
Einhver sérviska eða hjátrú?
–Nei.
Uppáhalds íþróttamaður? -Ástr-
alski kylfingurinn Ernie Els.
Ef þú mættir velja þér and-
stæðing, hver myndi það vera
og í hvaða grein mynduð þið
spreyta ykkur? -Ég færi að
sjálfsögðu í fjórleik (golf) á Old
Course í St. Andrew’s í Skotlandi.
Ég myndi velja Ernie Els í mitt lið
á móti Rabba mínum og Suzann
Pettersen, hinni norsku.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Þau þrjóskast við og
baráttan er hörð, en það er aldrei
spurning að við Ernie löndum
sigri með glæsilegum fugli á hinni
frægu og víðsjárverðu 17. holu.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Drengirnir mínir tveir.
Lífsmottó: -Ekkert sérstakt.
Helsta fyrirmynd í lífinu:
-Foreldrar mínir. Þau hafa sýnt
mér að það er aldrei of seint að
læra meira og verða betri í því sem
maður tekur sér fyrir hendur.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Baksa í sjúkraþjálfun,
reyna að ala drengina upp, hitt og
þetta í amstri hversdagsins. Æfa
golf inn á milli.
Hvað er framundan? -Undirbún-
ingur fyrir sumarið. Við í
unglinganefndinni erum að byrja
með innanhúsæfingar í golfi fyrir
börn og unglinga í vikunni. Sjálf
ætla ég að nýta aðstöðuna á
Flötinni til æfinga og leiks, veitir
ekki af að vinna í stutta spilinu
fyrir sumarið.
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Handknattleikur
Hart barist á handboltamóti FNV
Nemendafélag FNV hélt
handboltamót þriðjudaginn
22. janúar sl. og tókst mjög
vel til með það, að sögn
Halldórs Ingólfssonar
skemmtanastjóra NFNV.
Fjögur lið tóku þátt í mótinu
en það voru hátt í tíu manns í
hverju liði. Nemendur úr
dreifnámi á Blönduósi létu sig
ekki muna um að skipa eitt lið
og keyra yfir á Krók með bros á
vör og stóðu sig eins og hetjur í
mótinu, að sögn Halldórs.
Halldór segir mótið fyrst og
fremst sett upp til skemmtunar
til að auka á fjölbreytni í
félagslífinu en engu að síður
hafi verið hart barist fyrir
titlinum. „Og sigurvegararnir
voru nú ekki af verri kantinum,
því að þar voru drengir af öllum
stærðum og gerðum.“ /KSE
Hjördís Ósk Óskarsdóttir á Battle of London
mótinu. Mynd: RX´d Photography
Crossfit : Battle of London
Hjördís í 9. sæti á mótinu
Hjördís Ósk Óskarsdóttir
hreppti 9. sætinu á Battle of
London mótinu í CrossFit í
Englandi helgina 17. – 19.
janúar sl. en þar keppti hún í
einstaklingskeppni.
Samkvæmt Norðanátt.is var
markmið Hjördísar fyrir mótið
að vera á meðal 10 efstu.
Samanlagt náði Hjördís 9.
sæti í keppninni með 100 stig
og náði því markmiði sínu.
Úrslit er að finna á vef
mótsins, battleoflondon.com.
Einnig má skoða myndbönd
frá keppninni á YouTube síðu
mótsins og má sjá glitta í
Hjördísi í myndbandi af WOD
6 í einstaklingskeppni kvenna.
/BÞ
Knattspyrna : Lengjubikarinn
Afturelding tekur
sæti Tindastóls
Mótanefnd KSÍ hefur samþykkt erindi
Tindastóls um að Tindastóll flytjist úr A-deild
Lengjubikars karla og leiki í B-deild
Lengjubikars karla. Sæti Tindastóls í
A-deildinni tekur Afturelding en Mosfellingar
höfnuðu í 3. sæti í 2. deildinni í sumar.
Eins og Feykir hefur fjallað um íhuguðu
Tindastólsmenn á dögunum að draga lið sitt úr
keppni í 1. deildinni í sumar og hefði Afturelding
þá tekið sæti liðsins, en á endanum ákváðu
forráðmenn Stólanna að halda áfram sínu striki
og spila í 1. deildinni /KSE
Körfuknattleikur : Meistaraflokkur karla
Stórsigur á Blikum
Síðastliðið föstudagskvöld héldu Tindastóls-
menn í víking í Kópavoginn og léku þar við
heimamenn í Breiðabliki í 1. deildinni í
körfubolta. Tindastóll hafði öruggan sigur,
122-90.
Lítið var um varnir í fyrsta leikhluta og voru
heimamenn yfir að honum loknum, 34-29.
Stólarnir létu finna betur fyrir sér eftir það og
staðan í hálfleik 51-62. Sigldu Stólarnir heim
stigunum tveimur með góðum leik í síðari
hálfleik. Stigahæstir í liði Tindastóls voru Helgi
Rafn með 38 og Proctor með 30.
Tindastólsmenn spila fyrsta heimaleik ársins
á morgun, 31. janúar, en þá kemur lið FSu í
heimsókn. Allir í Síkið - áfram Tindastóll! /ÓAB
Körfuknattleikur : Meistaraflokkur kvenna
Stólastúlkur halda sigurförinni áfram
Stelpurnar í meistaraflokki Tindastóls í
körfuknattleik halda áfram að sýna hvað í
þeim býr og sigruðu FSu í Iðu á Selfossi á
sunnudagskvöldið. Voru stelpurnar að spila
frábæran körfubolta og var aldrei spurning
hvoru megin sigurinn yrði í þessum leik.
Stelpurnar náðu að halda andstæðingum
sínum í rétt um 50 stigum með frábærum
varnarleik og er varnarleikurinn að verða eitt
heitasta vörumerki liðsins. Lokatölur leiksins
voru 50-69.
Mikil spenna er nú hlaupin í 1. deildina, þar
sem fjögur lið eru jöfn á toppnum. Breiðablik og
Fjölnir eru búin að leika átta leiki, Tindastóll níu
leiki og Stjarnan tíu leiki. Þessi fjögur lið eru öll
komin með tólf stig í deildinni og mikil spenna
framundan í næstu leikjum.
Næsti leikur hjá stelpunum verður leikinn í
Varmahlíð þarnæsta laugardag, 8. febrúar, vegna
þorrablóts í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Grindavík B koma þá í heimsókn og hefst
leikurinn kl 14:00. Á vefsíðu Tindastóls eru
Skagfirðingar hvattir til að taka sér ísbíltúr í
Varmahlíð og koma á leikinn og hvetja stelp-
urnar okkar. /KSE
Bríet Lilja í essinu sínu á Selfossi, enda átti hún stórleik þar gegn
liði FSu. Mynd: Fésbókarsíða körfuknattleiksdeildar Tindastóls.