Feykir - 30.01.2014, Blaðsíða 6
6 Feykir 04/2014
verkum að skaftið ísar ekki og
því verður notandanum síður
kalt. Eins flýtur goggurinn ef
notandinn missir hann í
sjóinn.
Krókurinn sjálfur er líka
nokkuð frábrugðinn þeim
gamla. Hann er ekki beygður
út frá skaftinu, en á hefð-
bundnum goggum vill krók-
urinn réttast og brotnar þá oft
þegar reynt er að beygja hann
aftur. Fjólmundur festir
krókinn beint út frá skaftinu,
með festingu sem hægt er að
losa upp og festa nýjan krók á
ef þarf. Einnig er krókurinn
hafður kantaður, líkt og nagli,
til að hann festist betur í
fiskinum sem gerir það einnig
af verkum að auðveldara er að
losa hann ef hann festist í
einhverju sem fyrir verður.
Þá er hnúðurinn neðst á
skaftinu hafður stærri, til að
handfangið renni síður úr
greipum notandans. Einnig er
sérstakt gúmmí sett neðst á
skaftið til að gera það stamara
og það haft sverara til að
notandinn þurfi ekki að kreppa
höndina jafn mikið utan um
það og þreytist því síður, en
algengt er að sjómenn þurfi að
standa tímunum saman og
beita goggnum við alla vega
aðstæður. Álið dregur heldur
ekki í sig bleytu eins og tréð
gerir, en goggur með tréskafti
getur þyngst um allt að 100
Það sem skilur gogginn sem
Fjólmundur er að smíða frá
þeim eldri er m.a. efniviðurinn,
en Fjólmundur smíðar skaftið ,
sem fram til þessa hefur verið
smíðað úr tré, úr áli. Hann
segist gjarnan þurfa að byrja á
því að hanna tæki til að smíða
síðan hönnunargripina sjálfa
og í þessu tilfelli þurfti að
smíða tæki til að pressa álrörin
sem skaftið er gert úr. Er því
stungið inn í rörin, svo þau
leggist jafnt saman og verði
flöt. Inn í álrörin er sett frauð,
sem einangrar og gerir að
Léttari og hand-
hægari goggur
Þúsundþjalasmiðurinn Fjólmundur Fjólmundsson á Sauðárkróki hefur hannað enn eina
nýjungina til hagræðingar í sjávarútvegi. Um er að ræða svokallaðan gogg, sem flestir
sjómenn kannast við, og er notaður til að gogga fisk af línu. Að sögn Fjólmundur hefur
þetta algenga áhald sennilega verið svipað útlits og smíðað úr járni og tré í áratugi ef ekki
árhundruð. Hann hefur nú, með dyggum ráðum frá öðrum reyndum sjómönnum hannað
nýja útgáfu sem, að sögn þeirra sem reynt hafa, hefur margt umfram þá eldri.
endingu jafna verðmuninn út.
Fjólmundur er þegar búinn
að gera nokkrar prufur af
goggnum góða og framleiða
og selja um fimmtíu stykki.
Hann hefur fengið sjómenn til
að prófa þá jafnharðan fyrir sig
og koma með ábendingar.
Hann segir mikilvægt að vara
fari ekki á almennan markað
fyrr en hún er orðin nokkuð
skotheld. Ef að viðskipta-
vinurinn er ekki ánægður með
vöruna gefi hann hann engan
séns.
Fjólmundur segir aukna
útilegu bátanna vera forsendu
fyrir því að framleiða áhald
sem þetta, þar sem mark-
aðurinn hafi stóraukist fyrir
vikið. Þegar menn séu að
draga og leggja allan sólar-
hringinn þurfi oftar að
endurnýja goggana. Hann
tekur við nýju goggunum til
viðgerðar og segir að ef þeir
fari óvart í sjóinn megi með
snarræði bakka bátnum og
krækja í gogginn með fiski-
hakanum, sem hann hefur
einnig hannað, og ná goggnum
um borð aftur.
Goggurinn og fiskihakinn
eru ekki einu nýjungarnar sem
Fjólmundur hefur sett á
markað, en þær skipta tugum
sem frá honum eru komnar og
flestar til notkunar í sjávar-
útvegi. Alls fást hjá honum
fjörtíu vöruflokkar, allir smíð-
aðir af honum sjálfum. Vinnan
er sérhæfð og dýrasti tíminn
fer í að prófa sig áfram og
jafnvel smíða vélar til að smíða
í þeim söluvöruna. Dauði
tíminn á sumrin er notaður til
að koma sér upp lager og
þannig segist Fjólmundur hafa
vel undan þó hann sé eini
starfsmaður fyrirtækisins.
Meðal þess sem Fjólmund-
ur hefur áður hannað og
smíðað er hífingarbúnaður
fyrir fiskikör sem seldur er út
um allan heim með fiski-
körunum frá Promens á
Dalvík. Aðspurður um hvort
hann hafi einkaleyfi á fram-
leiðslu sinni segir Fjólmundur
að svo sé einungis með örfáa
vöruflokka, það borgi sig
einfaldlega ekki nema varan
seljist í miklu upplagi. Allt slíkt
og ýmsar vottanir, t.d. fyrir
hífingarbúnaðinn, sé bæði
kostnaðarsamt og tímafrekt.
Flestar af vörum Fjólmund-
ar eru fáanlegar gegnum
fyrirtækið Ísfell, en goggana
segist hann ætla að selja sjálfur,
enda geti hann þannig boðið
þá á betra verði en ella.
Enn ein nýjungin frá Fjólmundi
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
grömm vegna bleytunnar sem
hann dregur í sig.
Eins og lesa má úr þessum
lýsingum er Fjólmundur ekki
ókunnugur sjómannslífinu og
við hönnum sína spáir hann
mikið í að áhöldin séu sem
þægilegust í notkun. Þarna
kemur hreinlætið líka inn í, því
eins og nærri má geta er mun
auðveldara að halda álinu
hreinu en tréskafti sem með
tímanum safnar í sig
óhreinindum. Þá er álið
endingarbetra og eyðist ekki
með tímanum eins og tréð
gerir. Nýi goggurinn er heldur
dýrari í framleiðslu en sá
hefðbundni en Fjólmundur
segir aukin þægindi og betri
Fjólmundur heimsótti Feyki í vikunni og fræddi blaðamann
og lesendur um kosti nýjustu hönnunar sinnar.