Feykir - 30.01.2014, Síða 11
04/2014 Feykir 11
Gunnhildur Árnadóttir og Arnar Snær Kárason, brottfluttir Skagfirðingar kokka
Einfalt á virkum dögum
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar ætti að
segja frá afreki sínu á Facebook.
Tilvitnun vikunnar
Yfirleitt þarf ekki hugrekki til að deyja heldur til að lifa.
- Vittorio Alfieri
Sudoku
Árið 6009
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
Ártalið 2014 er ekkert sérlega spennandi að
sjá hvorki rétt eða á hvolfi. Síðast þegar hægt
var að lesa ártal bæði rétt og á hvolfi var árið
1961. Ótrúlegt og kannski alveg örugglega satt
mun það ekki gerast aftur fyrr en árið 6009.
„Takk fyrir áskorunina. Við
höfum bæði taugar til
Skagafjarðar enda bæði
uppalin þar, ég á Sauðár-
króki og Arnar í Blöndu-
hlíðinni. Við erum með stórt
heimili og dagarnir snúast að
stórum hluta um mat. Við
höfum yfirleitt eitthvað
einfalt á virkum dögum og
svo aðeins meira krefjandi og
spennandi um helgar. Hér
kemur smá sýnishorn af því
hvernig venjulegur mánu-
dagur lítur út hjá okkur. Við
skorum á æskuvinkonu mína
Önnu Rósu Pálsdóttur og
manninn hennar Gunnar Val
Stefánsson,“ segir Gunn-
hildur Árnadóttir, sem ásamt
manni sínum Arnari, býður
lesendum upp á uppskriftir
þessa vikuna.
EftirSkólaHristingur
FYRIR 4
400 ml hrísmjólk eða
undanrenna
1 bolli frosið mangó
1 bolli frosin jarðaber
1 bolli frosin ávaxtablanda
(melóna, ananas, bláber)
eldföstu móti. Ýsubitar lagðir yfir,
kryddað með salti og pipar. Sveppir
sneiddir og léttsteiktir, stráð yfir.
Brokkolí léttsoðið og stráð yfir.
Súrmjólk, majónesi, karrý og salt og
pipar blandað saman og smakkað
til, að því loknu hellt yfir fiskinn og
ostinum stráð yfir. Bakast í miðjum
ofni við 200 °C í ca. 40 mín.
Gott að bera fram með brauði og
fersku salati.
EFTIRRÉTTUR
Eplakaka hversdagsins
Læt fljóta með uppskrift af afar
einfaldri eplaköku sem slær alltaf í
gegn.
200 gr íslenskt smjör
3 egg
4 dl hveiti
2,5 dl sykur
1,5 tsk vanilludropar
1 tsk lyftiduft
2 epli (á oftast Pink Lady
og nota þau)
Kanilsykur eftir smekk
Aðferð: Smjör, sykur, vanilludropar
og egg hrært saman, hveitinu og
lyftiduftinu svo blandað útí. Þetta er
sett í smurt 24 cm. hringform. Eplin
flysjuð og skorin í skífur. Eplunum
raðað fallega ofan á deigið.
Kanilsykri stráð yfir. Bakað í ofni
við 175 gráður í 45 mín. Látið kólna
lítillega áður en borið er fram.
Borið fram með þeyttum rjóma eða
vanilluís
Verði ykkur að góðu!
HRAFNHILDUR
GUÐJÓNSDÓTTIR,
SAUÐÁRKRÓKI
-Já auðvitað borða ég þorramat.
Samt lítið af þessu feita súra. Ég
borða hákarl og harðfisk allan
ársins hring enda með því besta
sem ég fæ.
Feykir spyr...
[SPURT Á FACEBOOKI]
Borðar þú
þorramat?
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
1-2 bananar
1 lítið avókadó (þroskað)
1 msk þurrkuð Gojiber
1 msk Chiafræ
2 tsk Tahini
Smá biti af engifer raspaður út í
Aðferð: Þessu er blandað saman þar
til orðið mjúkt. Gæti þurft að setja
aðeins meiri vökva, hef sett vatn og
ávaxtasafa í bland.
Í lokin er sett væn lúka af fersku
spínati ef við eigum það til og það
blandað saman við á fullum krafti.
Þetta er best ískalt í stóru glasi með
röri.
Mánudagsýsa
FYRIR 6
3 dl hrísgrjón
1 kg ýsa
1 pk flúðsveppir
1 meðalstór brokkolíhaus
500 ml súrmjólk/AB mjólk
6 msk majónes (létt eða
venjulegt)
3-4 tsk karrý (smakkað til)
Salt og pipar eftir smekk
½ poki rifinn ostur
Aðferð: Hrísgrjón soðin skv. leið-
beiningum á pakka. Sett í botninn á
HALLDÓRA MAGNEA
FYLLING, SAUÐÁRKRÓKI
-Já ég borða þorramat, ég elska
svið og rófustöppu, harðfisk og
get borðað hákarl, en ekki mikið
af honum.
HALLFRÍÐUR ÓSK
ÓLAFSDÓTTIR,
VÍÐIDALSTUNGU V-HÚN
-Ég veit það ekki, telst maður
borða þorramat ef maður
borðar ekki súrmatinn? Allt
annað held ég og hákarlinn
er bestur.
SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR,
SAUÐÁRKRÓKI
-Ég er hálfgerður gikkur þegar
kemur að þorramat. Hákarlinn
er bestur.
FEYKIFÍN AFÞREYING kristin@feykir.is
Vörusvik
FRÉTTIR FYRRI ALDA: SKAGAFJÖRÐUR 1614
Jóhann Ostermann, kaupmaður frá Málmey, hefur
orðið uppvísað vörusvikum. Lét hann taka staf úr
hverri tunnu, sem flytja átti í söluvöru til Íslands, svo
að mun minna rúmaðist í henni.
Öldin sautjánda, bls 37.
Arnar, Gunnhildur, Axel Kári, Margrét Lilja, Herdís Ósk og Steinunn María