Feykir - 20.02.2014, Page 5
07/2014 Feykir 5
Skagfirðingar í Bikarkeppni FRÍ
Stóðu sig vel í liði
Norðurlands
Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum innanhúss fór fram í
Laugardalshöllinni í Reykjavík um sl. helgi. „Keppnin núna
var æsispennandi. [...] Það er ljóst að frjálsíþróttir standa
vel á Norðurlandi og samvinnan þar er að skila árangri,“
segir á vef Tindastóls.
Fimm aðilar sendu lið til keppni, bæði í flokkum karla og
kvenna, en það voru Norðlendingar, Breiðablik, FH, HSK og
ÍR sem sendi þrjú lið í báða flokka, auk þess sem Ármann
sendi lið til keppni í karlaflokki. Fram kemur að ÍR-ingar hafi
átt titla að verja í kvennaflokki og samanlagðri stigakeppni, en
Norðlendingar sigruðu í karlakeppninni í fyrra.
Úrslit urðu sem hér segir: Kvennaflokkur: 1. ÍR 70 stig, 2.
Norðurland 70 stig, 3. FH 64 stig. Karlaflokkur: 1. ÍR 75 stig, 2.
Norðurland 71 stig, 3. FH 68 stig. Samanlagt: 1. ÍR 145 stig, 2.
Norðurland 141, 3. FH 132 stig, 4. Breiðablik 82 stig, 5. ÍR-b 81
stig, 6. ÍR-c 52,5 stig, 7. Ármann 52,5 stig, 8. HSK 52 stig.
Árangur Skagfirðinganna sem kepptu í liði Norðurlands:
Jóhann Björn Sigurbjörnsson sigraði í 60m hlaupi á 6,95sek,
bætti tíma sinn frá Reykjavíkurleikunum sem var besti tími
Íslendings frá 2009. Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir var 2. sæti í
hástökki með 1,66m, jöfnun á skagfirska héraðsmetinu sem
hún jafnaði líka fyrir hálfum mánuði. Guðjón Ingimundarson
hafnaði í 2. sæti í 60m grindahlaupi á 8,95sek sem er nálægt
hans besta tíma. Jóhann Björn og Daníel Þórarinsson voru svo
í sveit Norðlendinga sem sigraði í 4x400m boðhlaupi. Tími
sveitarinnar var 3:19,69mín, sem er næstbesti tími íslenskrar
sveitar og aðeins 0,58sek frá Íslandsmeti ÍR frá 2012. /BÞ
Hverjir skipa liðið?
Það eru bændur og búalið héðan af svæðinu, flestir úr Víðidal.
Hefur liðið eða einstakir liðsmenn tekið þátt áður?
Flestir í liðinu eru reynsluboltar og hafa áður tekið þátt í
Húnvetnsku liðakeppninni. Það eru ekki miklar breytingar á
liðsskipan. Aðal breytingin er sú að Gunnar á Fitjum hefur
lokið embætti sínu sem liðsstjóri Liðs 3 eftir að hafa staðið sig
með miklum sóma, unnið fjölda sigra og alltaf staðið við
bakið á sínum mönnum þegar tár hafa sést á hvarmi.
Hvernig líst ykkur á Húnvetnsku liðakeppnina hingað til?
Húnvetnska liðakeppnin hefur alltaf verið mjög skemmtilegt
og fjölbreytt mót og virðist ekki vera nein breyting á því í ár,
það sem gerir þetta síðan enn skemmtilegra eru breyttar
reglur við stigaútreikninga sem gerir keppnina jafnari, þannig
spennan verður líklega alveg fram að lokadegi.
Eruð þið sátt við árangurinn hingað til?
Árangurinn í síðasta móti var mjög góður og ekki annað en
hægt að segja að Lið 3 hafi staðið sig með sóma, nú er svo bara
að rífa sig upp og draga fram smalajálkana til að týna inn
stiginn í næstu grein.
Hvaða leynivopnum teflið þið fram í vetur?
Við erum með nokkur leynivopn, en þau væru það ekki ef ég
myndi nú segja frá því, það verður bara að koma í ljós. Ég get
sagt ykkur að smalinn verður spennandi í ár. Við fáum sterka
einstaklinga sem komu í göngur á vélknúnum ökutækjum sl
haust og kunna að fara hratt, má þar nefna Pétur í Þórukoti,
Vigni á Kolugili og Sigtrygg á Litlu-Ásgeirsá.
Hvað greinir ykkur frá öðrum liðum í keppninni?
Eitt af einkennum Liðs 3 er glæsilegur liðsbúningur sem hefur
verið frá upphafi hin íslenska lopapeysa.
Einhver sérviska eða hjátrú hjá liðinu fyrir keppni?
Það hefur ekki verið mikið um hjátrú eða sérvisku hjá liðinu
fram að þessu, hver veit nema það breytist með nýjum
liðsstjóra.
Eitthvað sem liðið vill koma á framfæri?
„Gæði umfram magn.“ /KSE
Lið 3 gefur
leynivopnin
ekki upp
Í síðustu viku fór Feykir af stað með kynningar á
nýjum knöpum í KS deildinni, líkt og undanfarna
vetur. Að þessu sinni ætlum við einnig að kynna
liðin í Húnvetnsku liðakeppninni, sem hófst þann
8. febrúar. Næsti keppnisdagur er á laugardaginn
og fer mótið fram í Reiðhöllinni Þytsheimum á
Hvammstanga. Það er James Bóas Faulkner sem
ríður á vaðið og kynnir lið sitt, Lið 3.
Liðskynningar : Húnvetnska liðakeppnin
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Bárður hættir sem þjálfari
Bárður Eyþórsson hefur tekið
þá ákvörðun að framlengja
ekki samning sinn við
körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls, sem renna mun út að
loknu tímabilinu. Þetta
kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Stjórn körfuknatt-
leiksdeildar (kkd) Tindastóls.
„Harmar stjórn kkd. þessa
ákvörðun Bárðar, enda var
aldrei í huga stjórnar annað en
að framlengja við Bárð. En
stjórn kkd. vill að það komi
fram að engin óánægja er á
milli þjálfarans og stjórnar, er
þetta alfarið ákvörðum Bárðar,“
segir í tilkynningunni. Bárður
mun klára þetta tímabil með
meistaraflokki, unglingaflokki,
drengjaflokki og 11. flokki eins
og samningur segir til um.
„Stjórn kkd. er mjög ánægð
með störf Bárðar og þykir leitt
að sú samvinna sé að verða á
enda komin. Það eru fjórir
leikir eftir í fyrstu deildinni og
klára verður þá með sæmd og
koma liðinu upp á meðal þeirra
bestu aftur, þar sem við eigum
klárlega heima,“ segir loks í
tilkynningunni. /BÞ
Húnvetnska liðakeppnin
Smali
næsta mót
Næsta mót Húnvetnsku
liðakeppninnar verður nk.
laugardag, 22. febrúar. Að
þessu sinni verður keppni í
Smala og hefst hún kl.
14:00.
Samkvæmt heimasíðu
hestamannafélagsins Þyts
verður ekki keppt í skeiði fyrr
en á lokamótinu þetta árið
þar sem brautin er ekki
tilbúin. Keppt verður í
unglingaflokki (fædd 1997
og seinna), 3. flokki, 2. flokki
og 1. flokki og fara 9 hestar
brautina aftur ef 16 eða fleiri
keppendur eru í flokki,
annars fara 5 í úrslit. /BÞ
Vetrarólympíuleikar
Sævar Birgisson endaði í
74. sæti af 92 keppendum
í 15km skíðagöngu með
hefðbundinni aðferð á
Vetrarólympíuleikunum í
Sochi föstudaginn 14.
febrúar sl. Sævar ræsti 85.
og fór kílómetra fimmtán á
45:44,2 mínútum og varð
rúmum sjö mínútum á eftir
Ólympíumeistaranum Dario
Cologna frá Sviss.
Á Vísi.is segir að Sævar
hafi tekið á mikinn sprett við
endamarkið og náði að vera
fyrir ofan Ástralann Callum
Watson. Sævar skildi tólf til
viðbótar fyrir aftan sig fyrir
utan þá fimm sem kláruðu
ekki gönguna í gær. Þetta var
önnur ganga Sævars á
leikunum en hann varð í 72.
sæti sprettgöngu. /BÞ
Sævar í
74. sæti
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Tjarnartölt á Gauksmýri
Tjarnartölt fór fram á
Gauksmýri sl. laugardag, í
blíðskaparveðri og var
þátttaka góð.
Hin unga Rakel Gígja fékk
sérstök knapaverðlaun frá
Gauksmýri fyrir hversu vel
hún leysti úr erfiðum
aðstæðum þegar merin
hennar fór á harða stökki út
úr braut. Úrslit keppninnar
má sjá á Feyki.is. /KSE
Komst í erf-
iðar aðstæður
Körfuknattleikur : Tindastóll - Hamar 106-73
Aftur á sigurbraut
Hamar Hveragerði heimsótti
Tindastólsmenn í Síkið í sl.
föstudagskvöld í 1. deild
karla í körfubolta. Gestirnir
héldu út fram í miðjan annan
leikhluta en þá settu
Stólarnir í rallígírinn og
reykspóluðu yfir Hvergerð-
inga. Þegar upp var staðið
munaði 33 stigum en
lokatölur urðu 106-73.
Stólarnir spiluðu glimrandi
vel í öðrum og þriðja leikhluta
og var nánast sama hver var
inná, flest gekk upp á þessum
kafla. Friðrik Stefáns gladdi
augað og endaði með 17 stig
líkt og Proctor og Flake en
stigahæstur var Helgi Rafn með
18 stig og klikkaða pressuvörn.
Þá átti Ingvi Rafn góðan leik en
hann setti niður 13 stig og hirti
fjögur sóknarfráköst. Þá gladdi
það stuðningsmenn Stólanna
að sjá Króksarann Ingva
Guðmundsson Jenssonar mæta
til leiks í liði gestanna og sýna
góða takta. /ÓAB
James Bóas Faulkner á glæsilegum gæðingi.