Feykir - 22.04.2014, Qupperneq 3
15/2014 Feykir 3
Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf. | Suðurlandsbraut 18, 108 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
A
R
G
U
S
1
4
-0
9
0
4
Það er einfalt og auðvelt
að prófa þjónustuna
- engin skuldbinding
- enginn dulinn kostnaður
Skagfirðingar
Til hamingju með atvinnulífs-
sýninguna og gleðilega sæluviku
Hafðu samband, við leysum málin með þér
Af reynslunni verður þú ríkari!
MOMENTUM BÝÐUR SVEIGJANLEGA
OG LIPRA INNHEIMTUÞJÓNUSTU
Átt þú hest
til útláns?
Æskulýðsnefnd Landssam-
bands hestamannafélaga, í
samstarfi við FEIF alþjóða-
samtök íslenska hestsins,
mun halda æskulýðsmót fyrir
unglinga á aldrinum 14–17
ára í sumar. Mótið verður
haldið að Hólum í Hjaltadal
dagana 11.–20. júlí nk.
Skipuleggjendur mótsins
óska eftir hestum til láns eða
leigu fyrir ungmennin á
meðan á dvöl þeirra stendur
hérlendis.
„Þátttakendurnir greiða að
hámarki 150 € í leigu fyrir
hestinn. Hesturinn þarf að vera
heilbrigður, örmerktur og
skráður í Worldfeng. Þeir hestar
sem henta í verkefnið þurfa að
vera hreingengir, hlýðnir og
tiltölulega auðveldir,“ segir í
fréttatilkynningu. Mótið sækja
unglingar frá öllum aðildar-
löndum FEIF og er mótið haldið
annað hvert ár í einhverju
aðildarlandanna. Alls hafa 78
unglingar þátttökurétt og keppa
þau sem koma erlendis frá á
lánshestum.
Fyrstu tvo dagana eru
keppendur að kynnast hest-
unum, síðan njóta þau tilsagnar
þekktra þjálfara í þrjá daga, þá er
farið í dagsferð um Skagafjörð-
inn og síðustu þrjá dagana
keppa þau á hestunum, bæði í
einstaklings og liðakeppni.
Keppt verður í hring-
vallagreinum, tölti, fjór- og
fimmgangi ásamt skeiði, þrauta-
braut, víðavangshlaupi, fimi og
fánakappreið. Hestarnir þurfa
ekki að vera hágengir en það er
æskilegt. Þeir hesteigendur sem
hafa hesta í verkefnið eru beðnir
að senda upplýsingar á netfangið
lh@lhhestar.is með smá lýsingu
á hestinum og IS-númeri hans.
„Okkur í æskulýðsnefndinni er
mjög í mun að mótið takist sem
allra best og höfum lagt vinnu í
það að fá til liðs við okkur þekkta
einstaklinga úr hestaheiminum
til að þjálfa keppendur,“ segir
loks í tilkynningunni./BÞ
Æskulýðsmót að Hólum í Hjaltadal
Hjólað í vinnuna
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur
fyrir vinnustaðakeppninni Hjólað í vinnuna
dagana 7.–27. maí næstkomandi í tólfta
sinn. Að sögn Sigríðar Ingu Viggósdóttur,
sviðstjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, er
meginmarkmið átaksins að vekja athygli á
virkum ferðamáta sem heilsusamlegum,
hagkvæmum og umhverfisvænum ferðamáta.
„Í gegnum árin hefur myndast gríðarlega góð
stemming á vinnustöðum meðan á átakinu
stendur. Oftar en ekki hefur áhugi fólks á því að
hjóla til og frá vinnu kviknað þegar það hefur
tekið þátt í verkefninu og hefur það haldið áfram
að hjóla eftir að átakinu lýkur,“ segir Sigríður og
bætir við að aðalatriðið sé að fá sem flesta á
vinnustaðnum til að taka þátt.
Aðspurð um hvernig átakið gengur fyrir sig
svarar Sigríður að einn frá vinnustaðnum taki
það að sér að fara inn á www.hjoladivinnuna.is
og skráir sig og vinnustaðinn til leiks og
vinnustaðinn. Bæði er hægt að skrá allan
vinnustaðinn í eitt lið eða búa til nokkur lið og er
þá hægt að hafa keppni innan vinnustaðarins.
Eftir það geta aðrir starfsmenn farið inn á
heimasíðuna og skráð sig í lið. „Meðan á átakinu
stendur erum við með útdráttar-verðlaun,
myndaleik og reynslusögur ásamt skemmtilegum
fróðleik á heimasíðu verkefnisins www.
hjoladivinnuna.is þar má nálgast allar nánari
upplýsingar um verkefnið eða með því að senda
tölvupóst á hjoladivinnuna@isi.is.
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu
skemmtilega verkefni og um að gera að vinnu-
staðir skori á hvern annan,“ segir hún í lokin. /BÞ
Heilsusamlegur, hagkvæmur og umhverfisvænn ferðamáti
Ekki Bjartar nætur þetta árið
Sumarhátíðin Bjartar nætur – Fjöruhlaðborð
Sumarhátíðin Bjartar nætur,
Fjöruhlaðborð í Hamarsbúð á
Vatnsnesi, verður ekki haldin
þetta árið samkvæmt
fréttatilkynningu frá
Húsfreyjunum.
Fréttablað með upplýsing-
um um viðburði á vegum
Húsfreyjanna 2014 verður
dreift með vorinu.
Sumarhátíðin hefur verið
haldin á hverju sumri um
árabil og hafa gesti sótt þangað
um langan veg til að njóta
þeirrar sérstöðu sem þar hefur
verið boðið upp á. /BÞFínerí á Fjöruhlaðborði í Hamarsbúð.