Feykir


Feykir - 22.04.2014, Blaðsíða 17

Feykir - 22.04.2014, Blaðsíða 17
15/2014 Feykir 17 Fylgist með fjölbreyttu menningarlífi á svæðinu Frá morgni til kvölds Ingibergur Guðmundsson á Skagaströnd hóf störf hjá SSNV, þar sem hann starfar bæði hjá Menningarráði Norðurlands vestra og Atvinnuþróun SSNV, haustið 2007. Áður hafði hann m.a. verið framkvæmdastjóri fiskmarkar á staðnum og kennari og skólastjóri við Höfðaskóla. Hann gæti vel hugsað sér að gerast atvinnumaður í golfi en telur að til þess þyrfti hann að bæta forgjöfina umtalsvert. Vinnudagur Ingibergs, sem svarar hér nokkrum spurningum um starf sitt, hefst á hefðbundnum tíma klukkan átta að morgni, en við byrjum á að forvitnast um hvað hann fær sér í morgunverð. -Það er býsna misjafnt, stund- um hafragraut eða kornflex, stundum brauð, oftast ein- hverjir ávextir með. Hvernig myndir þú lýsa venjulegum vinnudegi hjá þér? -Opna tölvuna að morgni, skoða tölvupósta og svara þeim. Síðan taka við önnur verkefni dagsins en þar eru sjaldan tveir dagar eins. Í menningarhlutanum eru stundum umsóknarferli í gangi og þá er ég að taka á móti umsóknum og gera þær klárar fyrir menningarráðið sem tekur ákvarðanir um úthlutanir. Svo þegar búið er að úthluta þá er að svara umsækjendum og ganga frá samningum við styrkhafa. Þegar styrkhafar hafa lokið sínum verkefnum þá þurfa þeir að skila stuttum greinargerðum. Einnig þarf að ganga frá greiðslum til styrkhafa. Þegar umsóknarferli er ekki í gangi þá er skýrslugerð og margs konar önnur samskipti við styrkhafa og opinbera aðila. Þá er ótalinn sá þáttur að sækja ýmsa menningarviðburði sem Menningarráð hefur styrkt. Ég tel þennan þátt mikil- vægan, bæði til að fylgjast með hvernig verkefnin ganga en einnig til að votta styrkhöfum viðurkenningu sem lagt hafa á sig ómælda vinnu, oft launa- laust, til að koma verkefnunum á koppinn svo allur almenn- ingur geti notið þeirra. Í atvinnuþróunarþættinum þá reyni ég að sinna þeim verkefnum sem mér eru falin, hvort sem það er fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, einstaklinga eða innri málefni SSNV. Stundum er það skýrslugerð, stundum ráðgjöf, nefndavinna, undir- búningur málþings o.s.frv. Fjöl- breytnin er mikil og ýmislegt í gangi hverju sinni. Þannig líður hver dagur, alltaf eitthvað spennandi að gerast. Hvað er gert í kaffitímum? -Drukkið kaffi og spjallað. Ég er svo heppinn að fleiri aðilar eru með skrifstofur í sama húsi svo við kaffiborðið eru flest vandamál landsmanna leyst af festu og öryggi. Hvernig eyðir þú hádegis- hléinu? -Skrepp heim og fæ mér eitthvað í gogginn. Hvað er best við starfið? -Fjöl- breytnin. Alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi. Ef þú þyrftir að skipta um starf hvað gætir þú hugsað þér að gera? -Gerast atvinnumaður í golfi, verst að forgjöfin þyrfti víst að batna verulega til að það væri raunhæft. Eitthvað minnisstætt úr vinn- unni sem þú vilt deila með lesendum? -Minnisstæðir þættir eru margir; eftirminni- legir tónleikar, ásækin list- sýning, fróðleg bók, lærdómsrík ráðstefna, vel hannað safn og setur, fjölbreytt og skemmtileg hátíð, góð leiksýning, vel gerð heimildarmynd, fundur menn- ingarráðs um úthlutun styrkja, samstarfið við kollega mína í atvinnuþróuninni og í öðrum landshlutum o.s.frv. Allt þetta og margt annað mætti nefna og erfitt að velja eitthvað eitt úr. Í heild er menningarlíf á Norðurlandi vestra gott, fjöl- breytt, þroskandi, gefandi og skemmtilegt. Í hverri viku, allan ársins hring, er eitthvað að gerast einhvers staðar á svæðinu. Það þarf bara að fylgjast vel með og þá finnur maður alltaf eitthvað spenn- andi. Bara í þessari viku eru leiksýningar, sagnanámskeið, félagsvist, tónleikar, kvik- myndasýningar og hestamót svo eitthvað sé nefnt. Tækifærin eru til staðar, komdu bara og njóttu þeirra. UMSJÓN Kristín Sigurrós Einarsdóttir Ingibergur við skrifborðið. ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is Vala Kristín NAFN: Vala Kristín Ófeigsdóttir ÁRGANGUR: 1987 FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Helga Hrannari og á með honum tvö börn, þau Valþór Mána og Dagmar Helgu . BÚSETA: Kirkjugata 9 á Hofsósi HVERRA MANNA ERTU: Ég er dóttir Ófeigs Gestssonar og Dagmarar Ásdísar frá Þrastastöðum. Er að mestum hluta alin upp á Hofsósi að utanskildum 7 árum á Blönduósi. STARF / NÁM: Kenni í Grunnskólanum austan Vatna og er nemi í viðburðarstjórnun á Hólum. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Verknám í viðburðarstjórnun, Katy Perry tónleikar í Manchester og almenn gleði. Hvernig nemandi varstu? Ég var fyrirmyndarnemandi í grunnskóla, kannski ekkert sérstaklega frábær nemandi í háskóla enda margt annað að gera á fullorðinsaldri en að sitja heima og lesa. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Ég var fermd í Hofskirkju þann 19. maí. Að athöfn lokinni var mikið um myndatökur fyrir utan kirkjuna enda dásemdar veður. Það vildi ekki betur til en ég gleymdist á Hofi. Ég dokaði við í smá stund og var að lokum sótt af móður í tremmakasti. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Kennari eða sauðfjárbóndi. Hvað hræðistu mest? Ótímabær dauðsföll og heilsubrest. Besti ilmurinn? Af nýfæddu barni. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið (hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst u.þ.b. 17 ára)? Ég er nú mikill trendsetter í tónlistarbransanum. Ég og vinirnir hlustuðum mikið á Villa Vill, Óskar Pétursson, Helenu Eyjólfs og fleiri snillinga. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? I Will Survive, enginn vafi! Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Ég horfi ekki mikið á sjónvarpið, en ég reyndi oft að sjá Banshee þrátt fyrir að hafa verið óglatt allan tímann og tuðað yfir stöðugum óhugnaði. En núna er ég ekki lengur með Stöð 2 svo það er liðin tíð. Það þarf ekki að óttast voðaverkin í Kiljunni. Besta bíómyndin? Hér var ég búin að hugsa mikið og velta upp mörgum valkostum, upp í hugann komu margar myndir með Morgan Freeman enda er hann einn af mínum uppáhalds. Svo þegar öllu var á botninn hvolft þá verð ég að segja að Stella í orlofi er klárlega besta bíómyndin. Það kemst enginn með tærnar þar sem Salómon Gustafson hefur hælana. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Ætli ég verði ekki að segja Hrund Jóhannsdóttir, að hún sé minn uppáhalds íþróttamaður. Á eftir henni kemur Gunnar Nelson. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Það er nú ekki margt, þar sem Helgi er afar vandvirkur. Ætli ég eldi ekki aðeins bragðbetri mat og þrífi klósettið betur. Eins tel ég mig vera betri nuddara. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Humarsúpa. Hættulegasta helgarnammið? Bland í poka í KS Hofsós á 50% afslætti og kók í dós. Hvernig er eggið best? Soðið með kavíar. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Ég gleymi hvar ég læt hlutina. Það er mjög pirrandi. Ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir aðra. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Má bara segja eitt atriði? Þá er það sérhlífni. Ef ég má segja mörg atriði þá eru það óheiðarleiki, frumkvæðisleysi og mislyndi. Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun? Ég geri ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn. Sódóma Reykjavík er mín heimsspeki. Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar allir hænuungarnir á Þrastastöðum drekktu sér í vatnsbala og Valdís systir grenjaði úr sér augun. Ætli ég hafi ekki verið svona þriggja ára, þessar grenjur eru mjög eftirminnilegar. Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera? Það væri ekki amalegt að vera Angelina Jolie af augljósum ástæðum – hún á svo mörg börn. Hver er uppáhalds bókin þín og/ eða rithöfundur? Þessa dagana les ég aðallega barnabækur og námsbækur. Ég nýt þess nú meira að lesa barnabækurnar en Einar Áskell og Tóta tætubuska eru í sérlegu uppáhaldi. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Ég læt fara í taugarnar á mér þegar aðrir í kringum mig festast í frösum og setningum. Ég reyni því eftir mesta megni að fá ekkert svona á heilann. Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Ég verð að segja að mamma mín sé mikilvægasta persónan í mínu lífi, bæði fyrr og síðar. Enda sést það best á því að ég kaus að kaupa mér hús við hliðina á henni. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu (og af hverju)? Ég myndi bregða mér í Ameríkuhrepp og tæma tvíburaturnana þann 11. september 2001. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Konan með 200 kílóa andlitið. Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...Á staðinn þar sem Malaysia Airlines lenti, ég er afar forvitin að vita um afdrif farþeganna. Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Kodda, tannbursta og hníf.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.