Feykir - 22.04.2014, Qupperneq 17
15/2014 Feykir 17
Fylgist með fjölbreyttu
menningarlífi á svæðinu
Frá morgni til kvölds
Ingibergur Guðmundsson á
Skagaströnd hóf störf hjá
SSNV, þar sem hann starfar
bæði hjá Menningarráði
Norðurlands vestra og
Atvinnuþróun SSNV, haustið
2007. Áður hafði hann m.a.
verið framkvæmdastjóri
fiskmarkar á staðnum og
kennari og skólastjóri við
Höfðaskóla. Hann gæti vel
hugsað sér að gerast
atvinnumaður í golfi en telur
að til þess þyrfti hann að bæta
forgjöfina umtalsvert.
Vinnudagur Ingibergs, sem
svarar hér nokkrum
spurningum um starf sitt,
hefst á hefðbundnum tíma
klukkan átta að morgni, en
við byrjum á að forvitnast um
hvað hann fær sér í
morgunverð.
-Það er býsna misjafnt, stund-
um hafragraut eða kornflex,
stundum brauð, oftast ein-
hverjir ávextir með.
Hvernig myndir þú lýsa
venjulegum vinnudegi hjá
þér? -Opna tölvuna að morgni,
skoða tölvupósta og svara þeim.
Síðan taka við önnur verkefni
dagsins en þar eru sjaldan tveir
dagar eins.
Í menningarhlutanum eru
stundum umsóknarferli í gangi
og þá er ég að taka á móti
umsóknum og gera þær klárar
fyrir menningarráðið sem tekur
ákvarðanir um úthlutanir. Svo
þegar búið er að úthluta þá er að
svara umsækjendum og ganga
frá samningum við styrkhafa.
Þegar styrkhafar hafa lokið
sínum verkefnum þá þurfa þeir
að skila stuttum greinargerðum.
Einnig þarf að ganga frá
greiðslum til styrkhafa. Þegar
umsóknarferli er ekki í gangi þá
er skýrslugerð og margs konar
önnur samskipti við styrkhafa
og opinbera aðila.
Þá er ótalinn sá þáttur að
sækja ýmsa menningarviðburði
sem Menningarráð hefur
styrkt. Ég tel þennan þátt mikil-
vægan, bæði til að fylgjast með
hvernig verkefnin ganga en
einnig til að votta styrkhöfum
viðurkenningu sem lagt hafa á
sig ómælda vinnu, oft launa-
laust, til að koma verkefnunum
á koppinn svo allur almenn-
ingur geti notið þeirra.
Í atvinnuþróunarþættinum
þá reyni ég að sinna þeim
verkefnum sem mér eru falin,
hvort sem það er fyrir fyrirtæki,
sveitarfélög, einstaklinga eða
innri málefni SSNV. Stundum
er það skýrslugerð, stundum
ráðgjöf, nefndavinna, undir-
búningur málþings o.s.frv. Fjöl-
breytnin er mikil og ýmislegt í
gangi hverju sinni.
Þannig líður hver dagur,
alltaf eitthvað spennandi að
gerast.
Hvað er gert í kaffitímum?
-Drukkið kaffi og spjallað. Ég er
svo heppinn að fleiri aðilar eru
með skrifstofur í sama húsi svo
við kaffiborðið eru flest
vandamál landsmanna leyst af
festu og öryggi.
Hvernig eyðir þú hádegis-
hléinu? -Skrepp heim og fæ
mér eitthvað í gogginn.
Hvað er best við starfið? -Fjöl-
breytnin. Alltaf eitthvað nýtt á
hverjum degi.
Ef þú þyrftir að skipta um
starf hvað gætir þú hugsað þér
að gera? -Gerast atvinnumaður
í golfi, verst að forgjöfin þyrfti
víst að batna verulega til að það
væri raunhæft.
Eitthvað minnisstætt úr vinn-
unni sem þú vilt deila með
lesendum? -Minnisstæðir
þættir eru margir; eftirminni-
legir tónleikar, ásækin list-
sýning, fróðleg bók, lærdómsrík
ráðstefna, vel hannað safn og
setur, fjölbreytt og skemmtileg
hátíð, góð leiksýning, vel gerð
heimildarmynd, fundur menn-
ingarráðs um úthlutun styrkja,
samstarfið við kollega mína í
atvinnuþróuninni og í öðrum
landshlutum o.s.frv. Allt þetta
og margt annað mætti nefna og
erfitt að velja eitthvað eitt úr.
Í heild er menningarlíf á
Norðurlandi vestra gott, fjöl-
breytt, þroskandi, gefandi og
skemmtilegt. Í hverri viku, allan
ársins hring, er eitthvað að
gerast einhvers staðar á
svæðinu. Það þarf bara að
fylgjast vel með og þá finnur
maður alltaf eitthvað spenn-
andi. Bara í þessari viku eru
leiksýningar, sagnanámskeið,
félagsvist, tónleikar, kvik-
myndasýningar og hestamót
svo eitthvað sé nefnt. Tækifærin
eru til staðar, komdu bara og
njóttu þeirra.
UMSJÓN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Ingibergur við skrifborðið.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Vala Kristín
NAFN: Vala Kristín Ófeigsdóttir
ÁRGANGUR: 1987
FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Helga Hrannari og á
með honum tvö börn, þau Valþór Mána og Dagmar Helgu .
BÚSETA: Kirkjugata 9 á Hofsósi
HVERRA MANNA ERTU: Ég er dóttir Ófeigs Gestssonar og
Dagmarar Ásdísar frá Þrastastöðum. Er að mestum hluta
alin upp á Hofsósi að utanskildum 7 árum á Blönduósi.
STARF / NÁM: Kenni í Grunnskólanum austan Vatna og er
nemi í viðburðarstjórnun á Hólum.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Verknám í viðburðarstjórnun, Katy
Perry tónleikar í Manchester og almenn gleði.
Hvernig nemandi varstu? Ég var
fyrirmyndarnemandi í grunnskóla,
kannski ekkert sérstaklega frábær
nemandi í háskóla enda margt
annað að gera á fullorðinsaldri en
að sitja heima og lesa.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Ég var fermd í
Hofskirkju þann 19. maí. Að athöfn
lokinni var mikið um myndatökur
fyrir utan kirkjuna enda dásemdar
veður. Það vildi ekki betur til en ég
gleymdist á Hofi. Ég dokaði við í
smá stund og var að lokum sótt af
móður í tremmakasti.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Kennari eða
sauðfjárbóndi.
Hvað hræðistu mest? Ótímabær
dauðsföll og heilsubrest.
Besti ilmurinn? Af nýfæddu barni.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið (hver var
uppáhaldstónlistin þín þegar þú
varst u.þ.b. 17 ára)? Ég er nú mikill
trendsetter í tónlistarbransanum.
Ég og vinirnir hlustuðum mikið á
Villa Vill, Óskar Pétursson, Helenu
Eyjólfs og fleiri snillinga.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? I Will Survive, enginn
vafi!
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Ég
horfi ekki mikið á sjónvarpið, en ég
reyndi oft að sjá Banshee þrátt fyrir
að hafa verið óglatt allan tímann
og tuðað yfir stöðugum óhugnaði.
En núna er ég ekki lengur með
Stöð 2 svo það er liðin tíð. Það þarf
ekki að óttast voðaverkin í Kiljunni.
Besta bíómyndin? Hér var ég
búin að hugsa mikið og velta
upp mörgum valkostum, upp í
hugann komu margar myndir með
Morgan Freeman enda er hann
einn af mínum uppáhalds. Svo
þegar öllu var á botninn hvolft þá
verð ég að segja að Stella í orlofi
er klárlega besta bíómyndin. Það
kemst enginn með tærnar þar sem
Salómon Gustafson hefur hælana.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Ætli ég verði
ekki að segja Hrund Jóhannsdóttir,
að hún sé minn uppáhalds
íþróttamaður. Á eftir henni kemur
Gunnar Nelson.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Það er nú
ekki margt, þar sem Helgi er afar
vandvirkur. Ætli ég eldi ekki aðeins
bragðbetri mat og þrífi klósettið
betur. Eins tel ég mig vera betri
nuddara.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Humarsúpa.
Hættulegasta helgarnammið?
Bland í poka í KS Hofsós á 50%
afslætti og kók í dós.
Hvernig er eggið best? Soðið með
kavíar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Ég gleymi hvar ég læt
hlutina. Það er mjög pirrandi. Ekki
bara fyrir mig heldur líka fyrir aðra.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Má bara segja eitt
atriði? Þá er það sérhlífni. Ef ég
má segja mörg atriði þá eru það
óheiðarleiki, frumkvæðisleysi og
mislyndi.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Ég geri ekki neitt fyrir
neinn sem gerir ekki neitt fyrir
neinn. Sódóma Reykjavík er mín
heimsspeki.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Þegar allir hænuungarnir
á Þrastastöðum drekktu sér í
vatnsbala og Valdís systir grenjaði
úr sér augun. Ætli ég hafi ekki verið
svona þriggja ára, þessar grenjur eru
mjög eftirminnilegar.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Það væri ekki
amalegt að vera Angelina Jolie af
augljósum ástæðum – hún á svo
mörg börn.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Þessa dagana
les ég aðallega barnabækur og
námsbækur. Ég nýt þess nú meira
að lesa barnabækurnar en Einar
Áskell og Tóta tætubuska eru í
sérlegu uppáhaldi.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Ég læt fara í taugarnar á mér
þegar aðrir í kringum mig festast í
frösum og setningum. Ég reyni því
eftir mesta megni að fá ekkert svona
á heilann.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? Ég
verð að segja að mamma mín sé
mikilvægasta persónan í mínu lífi,
bæði fyrr og síðar. Enda sést það
best á því að ég kaus að kaupa mér
hús við hliðina á henni.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu (og af hverju)? Ég
myndi bregða mér í Ameríkuhrepp
og tæma tvíburaturnana þann 11.
september 2001.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Konan með 200 kílóa andlitið.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...Á
staðinn þar sem Malaysia Airlines
lenti, ég er afar forvitin að vita um
afdrif farþeganna.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? Kodda, tannbursta og
hníf.