Feykir - 22.04.2014, Page 7
15/2014 Feykir 7
ferðamanna sem heimsækja
héraðið, enda tilkomumikil
sjón og setja mikinn svip á
svæðið umhverfis fiskiðjuna.
Skapa áhugaverð
störf til framtíðar
Stefna FISK Seafood til fram-
tíðar er að auka framleiðslu
fyrirtækisins enn frekar og sem
fyrr segir er aukin landvinnsla
liður í því. Upphafið að þeirri
skipulagsbreytingu segir Jón
Eðvald hafa þróast að nokkru
leyti af sjálfu sér, en að fyrir-
tækið fari reglulega í gegnum
stefnumótunarvinnu, nú síðast
fyrir tveimur árum. Þá voru sett
markmið til fimm ára og er
verið að vinna að þeim mark-
miðum um þessar mundir.
„Það var þessi nýsköpunar- og
vöruþróunarleið sem við
ákváðum að fara og skapa
fjölbreyttari störf. Ef maður
ætlar að auka landvinnsluna
svona mikið þá kallar það á nýja
tækni og þá líka á aðeins
öðruvísi störf. Þar af leiðandi
reynum við að tengja það inn í
að mennta fólkið okkar frekar
og að koma á samstarfi við
skólana um það,“ segir Jón
Eðvald. Fyrirtækið vinnur nú í
samvinnu við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra að
undirbúningi kennsluefnis eða
jafnvel braut í framhaldsskól-
anum í haust. Einnig hefur
fyrirtækið verið í samstarfi með
Farskólanum, miðstöð sí-
menntunar á Norðurlandi
vestra. „Við erum að reyna að
hafa áhrif á að einhverjir stoppi
í þessu,“ segir hann og brosir.
Fyrirtækið hefur markvisst
unnið að því að tengja sig við
menntastofnanir í von um að
vekja áhuga fólks á greininni og
um leið að skapa áhugaverð
störf innan fyrirtækisins til
framtíðar. Til að mynda er Jón
Eðvald í háskólaráði Hólaskóla
og í stjórn Matís og Ingileif
Oddsdóttir skólameistari FNV
er í stjórn FISK Seafood.
Jón Eðvald segir samstarf
FISK Seafood og Hólaskóla
upphaflega hafa byrjað með því
að stjórnendur fyrirtækisins
voru að skoða hvað fyrirtækið
gæti gert sem myndi koma sér
vel fyrir héraðið. „Þá varð
niðurstaðan að efla menntun
og að koma Hólaskóla á há-
skólastig. Þess vegna fórum við
í að gera þetta hús upp, sem nú
hýsir Verið, og létum skólann
hafa það. Í fyrstu var ákveðið að
það yrði leigulaust fyrstu 3 árin,
svo fyrstu 6 árin og það eru 10
ár síðan og það hefur ekkert
breyst,“ segir hann brosandi.
„Þannig að fyrirtækið hefur
stutt vel við bakið á Hólaskóla
en við höfum líka horft á það að
til framtíðar nýtist þetta
samstarf okkur í fiskeldi og
slíku.“ Síðan fékk þekkingar- og
rannsóknafyrirtækið Matís
aðstöðu í sama húsnæði en það
vinnur að þróun og nýsköpun í
matvælaiðnaði, líftækni og
matvælaöryggi. „Þá kom
Iceprotein hingað fyrst á vegum
Matís en í kjölfarið á því
þróaðist þetta samstarf með
þessum aðilum; Hólaskóla,
Matís og Iceprotein.“ segir Jón
Eðvald.
Hann segir það enn fremur
afskaplega ánægjulegt að hafa
haft tækifæri til þess að skapa
umgjörð undir þessa rann-
sóknar- og þróunarvinnu og að
það sé mjög spennandi að
fylgjast með hverju þetta
samstarf komi til með að skila
af sér, en innan veggja
fyrirtækisins fara nú fram
fjölbreyttar rannsóknir á sviði
líftækni og starfsemi henni
tengdri. Þar hafa fjölmargir
háskólanemar aðstöðu til að
stunda rannsóknir og njóta
góðs af nálægðinni við hráefnið
og að hafa afnot af þeim
tækjakosti sem fiskvinnslu-
fyrirtækið hefur fjárfest í. „Þetta
er það sem maður sá fyrir sér að
myndi lukkast. Að skapa
kjöraðstæður fyrir fólk til að
mennta sig og fá í kjölfarið
spennandi vinnu til framtíðar,“
segir hann og nefnir tvo
starfsmenn sem lýsandi dæmi
um þessa jákvæðu starfsmanna-
stefnu fyrirtækisins. Annars
vegar Hólmfríði Sveinsdóttur
framkvæmdastjóra, sem kláraði
sitt doktorsnám í aðstöðunni
hjá FISK Seafood og hins vegar
Stefaníu Ingu Sigurðardóttur,
sem lýkur líftækninámi sínu í
vor.
Slæmur
tímapunktur til að
leggja auknar
álögur á
landsbyggðina
FISK Seafood er efnahagslega
traust fyrirtæki en velta
fyrirtækisins á síðasta rekstrar-
ári, sem er eins og kvótaárið, frá
1. september til 31. ágúst, var í
heildina kringum 12 milljarðar.
Hjá fyrirtækinu sjálfu var hún í
kringum 9 milljarðar. Hagnaður
var í kringum 1340 milljónir og
hefur fyrirtækið engar lang-
tímaskuldir. „Velta fyrirtækisins
minnkaði um tæpar 800
milljónir og byggðist það á því
að á síðasta ári urðu miklar
afurðarverðslækkanir á erlend-
um mörkuðum en við seljum
99% af okkar vörum til
útlanda,“ útskýrir Jón Eðvald.
„Afkoman versnaði ansi mikið
en langstærsti liðurinn í því
voru þessi álögðu veiðigjöld.
Þau fóru upp í tæplega 700
milljónir hjá FISK Seafood frá
því að vera 176 milljónir árið
áður og hækkuðu því um 520
milljónir. Þetta var mikil
breyting í rekstri fyrirtækisins
en við ráðum náttúrulega
ekkert við það. Auðvitað fær
maður heldur ekki reikning
upp á 700 milljónir nema að
reyna þá að hagræða eitthvað á
móti því, þess vegna fara öll
þessi fyrirtæki í að skoða sinn
rekstur enn frekar.“ Jón Eðvald
segist hafa miklar áhyggjur af
þessari þróun og jafnframt því
viðhorfi og viðbrögðum sem
hann varð var við heima í
héraði, þegar núverandi
stjórnvöld lækkuðu þessi gjöld
a.m.k. til bráðabirgða. „Til þess
að setja málið í samhengi þá má
segja að í þessu 250 manna
fyrirtæki sé þetta uppundir
þrjár milljónir á hvern
starfsmann í þennan sérstaka
skatt, auk annarra skatta sem
fyrirtækið greiðir, sem og allra
skatta sem starfsmennirnir
greiða beint til viðbótar. Ef
maður horfir á alla íbúa
Skagafjarðar, þar sem segja má
að fyrirtækið sé í eins konar
félagslegri eign íbúana, er þessi
skattur orðinn tæpar 700
þúsund krónur á hverja fjögurra
manna fjölskyldu í Skagafirði á
ári, það er ansi mikið. Ég hef
auðvitað miklar áhyggjur af
þessu því við fáum ekkert af
þessum peningum til baka. Á
sama tíma og verið er að auka
svona skattinn á okkur þá er
verið að draga svo mikið úr
þjónustunni hérna á svæðinu;
heilbrigðisþjónustunni, skera
niður í menntamálum o.s.frv.
Þannig að það er verið að beina
rosalega miklu fjármagni af
landsbyggðinni á höfuðborgar-
svæðið, finnst mér,“ segir hann.
„Þetta er svolítið grátlegt finnst
mér, þetta er mjög slæmur
tímapunktur til að vera að
leggja svona auknar álögur á
þessa staði út á landi. Það væri
miklu meira spennandi að hafa
þessa peninga inn í fyrirtækinu
og geta þróað hin ýmsu
verkefni. Núna eru mjög
spennandi tækifæri í fyrirtæki
eins og þessu, það eru fullt af
verkefnum framundan og á
ýmsum sviðum, eins og líftækni
sem þarf mikla þolinmæði og
fjármagn. Núna er tækifærið
því unga fólkið er til í að koma
til okkar og takast á við svona
verkefni,“ tekur Jón Eðvald
fram að endingu.
Eins og blaðamaður Feykis
komst í raun um er starfsemi
FISK Seafood fjölbreyttari en
margur gerir sér grein fyrir. Þar
kemur saman suðupottur
þekkingar og nýsköpunar í
bland við sjávarútveginn, sem
hefur skipað stóran sess í
íslenskri menningu og arfleifð.
Það verður því spennandi að
fylgjast með þessu gróskumikla
fyrirtæki í framtíðinni.
Stúlka úr Hrútafirði
í Game of Thrones
Langar að
verða leikkona
Nýlega hófust á Stöð 2
sýningar á fjórðu þáttaröðinni
af Game of Thrones, en
þættirnir hafa notið mikilla
vinsælda. Ung stúlka úr
Hrútafirði, Sóley Mist
Albertsdóttir í Eyjanesi, leikur
hlutverk í þáttaröðinni. Feykir
sló á þráðinn til Sóleyjar og
spurði hana út í hlutverkið.
Sóley Mist segir að hlutverkið
hafi komið þannig til að
vinkona móður sinnar hafi
verið að leika í þáttaröðinni og
það hafa vantað einn krakka í
viðbót, en þrjú börn hennar
leika í þáttunum. Það voru því
fjórir krakkar við þessar tökur
sem Sóleyju Mist lék í og tóku
þær fimm daga. Tökurnar fóru
fram í Þjórsárdal og segir hún
að aðeins einn dagur hafi farið í
tökur, hinir dagarnir hafi verið
æfingardagar.
„Ég hef horft á einn til tvo
þætti svo ég vissi að þessir þættir
voru um svona gamaldags
bardagadót. Ég vissi í raun
ekkert hvað ég var að fara að
gera en þetta var mjög
skemmtilegt," segir Sóley. Hún
segist þú ekki mega segja neitt
frá því sem gerist í þáttunum, en
býst við að þáttur þar sem hún
kemur fram verði sýndur næsta
eða þarnæsta mánudag (skrifað
12. apríl, innsk. Blm.). Sjálf er
Sóley ekki búin að sjá þættina.
„Ég horfi bara á þá í sjónvarpinu
þegar þar að kemur.“ Hún segir
vini sína og skólafélaga ekki
hafa fylgst mikið með þáttunum
hingað til. „En nú vita allir að ég
er að leika í þessu og þá eru allir
spenntir að horfa.“
Við tökurnar segist Sóley hafa
hitt tvo fræga leikara, rauðhærða
konu að nafni Rose og hávaxinn
karlmann sem hún man ekki í
augnablikinu hvað heitir.
Sóley hafði ekki leikið áður,
en í dag er hún sannfærð um að
sig langi til að verða leikkona.
Hún hefur einnig mikinn áhuga
á að ferðast og langar að komast
til sem flestra landa. /KSE
Framkvæmdir í nýju þurrkverksmiðjunni ganga vel.
Skreiðarhjallarnir með Drangey í baksýn.
Sóley Mist til hægri ástamt systur sinni Máney