Feykir - 22.04.2014, Blaðsíða 8
8 Feykir 15/2014
Ég er Skagfirðingur. En mest
af öllu Fljótakona. Þótt ég
hafi ekki átt lögheimili þar
í þrjátíu ár og búið nítján
af þeim í Noregi þá breytir
því ekkert. Ég er stolt af
uppruna mínum og þakklát
fyrir að hafa notið þeirra
forréttinda að hafa alist upp
í snjóþyngstu sveit Íslands,
nyrst á Tröllaskaga.
„Mamma, það er besta
tilfinning í heimi þegar við
sjáum Fljótin okkar,“ segir 11
ára gömul dóttir mín og sonur
minn, sem er 6 ára, staðhæfir
að Ísland sé besti staður í
heimi.
Ég er innilega sammála þeim.
Samferðafólk mitt í dag kemur
úr allt annari veröld, flest alið
upp í stórbæ við allt aðrar
og mun mildari aðstæður á
gjöfulasta landbúnaðarsvæði
Noregs. Hér rignir töluvert enn
loftslagið er milt, jarðvegurinn
næringarríkur og sjaldan frost
eða snjór.
Norðmenn eru áhugasamir
um Ísland, íslenska hönnun
og alla góðu fótboltaspilarana
sem við eigum og ég þreytist
seint á því að segja þeim
frá bæði gömlum og nýjum
atburðum sem gerðust í
Fljótunum. Ég sýni þeim
myndir af snjósköflum, rollum
og fallegum haustlitum,
segi frá hreinu lofti, töfrum
sumarsins, miðnætursól,
fólkinu og mannlífinu,
menningunni, mannýgum
nautum, göngum og réttum,
ísbjarnaheimsóknum og
súrum hrútspungum.
Flestir hrylla sig yfir
hrútspungunum en eru yfir
sig hrifnir af myndinni sem
Elvur Hrönn Þorsteinsdóttir, frá Helgustöðum í Fljótum, skrifar
„Þegar við sjáum Fljótin okkar“
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
Halldór á Molastöðum tók
af Helgustaðarollunni sem
fékk far með skólabílnum hér
í vetur.
Þegar ég hugsa til baka þá
var alltaf sól.
Ég gleðst yfir því að vera
svo heppin að eiga stóra
fjölskyldu og að hafa alist upp
við tryggar og góðar aðstæður
í sveit þar sem mannlífið
var gott, fólk hjálpsamt
og glaðvært og þar sem
við krakkarnir vorum álitin
jafningjar hinna fullorðnu.
Við vorum látin bera ábyrgð,
nutum frjálsræðis, vorum
hvött til að taka sjálfstæðar
ákvarðanir og alin upp til
þess að verða sjálfstæðir
einstaklingar.
Þetta voru góðir tímar.
Við æfðum skíðagöngu undir
stjórn Trausta á Bjarnargili, við
spiluðum fótbolta á sumrin
á Ketilási, flykktumst í sund
á kvöldin, vorum tímunum
saman í skólabílnum, tókum
þátt í sauðburði og heyskap
og urðum að reka beljurnar.
Við vorum í barnaskóla á
Sólgörðum, lærðum dönsku
og landafræði, lékum okkur
og borðuðum góðan mat
í mötuneytinu hjá Ágústu
á Stóru-Reykjum. Síðan lá
leiðin í Varmahlíðarskóla og
lífið varð aðeins flóknara.
Okkar börn alast upp við allt
aðrar aðstæður í hrærigraut
hraða og upplýsingaveraldar
og þar sem samfélagið gerir
endalausar og oft óraunhæfar
kröfur. Við erum ábyrg fyrir
því að þau eigi trygga
höfn og sjá til þess að þau
verði sjálfstæðir og sterkir
einstaklingar sem eru vel
undir það búnir að takast á
við lífið. Mínar heimaslóðir
eru hluti af tryggri höfn minna
barna og ég veit að seinna,
þegar þau hugsa til baka, þá
var alltaf sól í Fljótunum.
- - - - -
Ekki var ljóst þegar blaðið fór
í prentun hver tæki við penna.
Fegurðarsamkeppni á fjölum Bifrastar
Langt liðið frá síðustu keppni á Króknum
Allangt er síðan fegurðarsamkeppni hefur verið
haldin á Sauðárkróki, eða um 27 ár. Það var nánar
tiltekið í Sæluviku árið 1987 sem viðskiptajöfurinn
Stefán Þ. Jónsson veitingamaður og lánveitandi, og
eigandi Stebbakaffis stóð fyrir slíkri keppni.
Stefán hefur verið viðriðinn ýmsa vafasama starfsemi,
svo sem bruna- og tryggingasvindl, en snýr nú aftur á
Krókinn. Að þessu sinni hefur hann fengið fjórar
fegurðardísir til keppni, sem fram fer á sunnudagskvöldi í
Sæluviku, á fjölum Bifrastar. Feykir kynnti sér keppnina
og tók fegurðardísirnar tali. /KSE
Nafn: Hólmfríður P.
Aldur: 31 árs.
Hvaðan ertu: Úr Seyluhreppi.
Áttu kærasta: Nei.
Áhugamál: Golf og bílaviðgerðir.
Hvað hefurðu umfram aðra keppendur:
Ég er rosaleg með golfkylfuna.
Ertu bjartsýn á að vinna: Hæfilega, en
það sem ég mun taka með mér
er vinskapurinn.
Ungfrú
Seyluhreppur
Ungfrú
Staðarhreppur
Nafn: Unnur Linda
Aldur: 28 ára.
Hvaðan ertu: Úr Staðarhreppi.
Áttu kærasta: Nei.
Áhugamál: Söngur.
Hvað hefurðu umfram aðra keppendur:
Sönghæfileika... jazzgeggjari og spila á
kontrabassa.
Ertu bjartsýn á að vinna: Já mjög mikið,
en á jafn mikla möguleika og hver annar
heimsfriður.
Ungfrú
Akrahreppur
Nafn: Guðrún Birna.
Aldur: 23 ára skvísa.
Hvaðan ertu: Úr Akrahreppi
Áttu kærasta: Nei,
er á milli kærasta
Áhugamál: Spá í bolla, ferðalög og
flugferðir og „dodo,“
mér finnst það gaman.
Hvað hefur umfram aðra keppendur:
Skyggnigáfu.
Ertu bjartsýn á að vinna: Bjartsýn á móti
þessum gömlu krukkum.
Nafn: Lotta Lýsól. Aldur: 40 ára
Hvaðan ertu: Ég er fædd og uppalin á
Tindastóli, hann pabbi minn var skíðamaður
mikill og vaktmaður lyftunni.
Áttu kærasta: Einu sinni átti ég kærasta...
og ekki varð mér meint af því.
Áhugamál: Tilraunastarfsemi með
brennsluspritt sem rafmagnsgjafa, og ekki
má gleyma blessuðum ritvélunum
Hvað hefurðu umfram aðra keppendur?
Um hvað ertu að tala maður? Ég er ekki
kepp- andi, ég er meira svona frjáls- andi.
Ertu bjartsýn á að vinna: Tjah, nú er þröngt í
búi hjá smábyttunum, og ekki alltaf vinnu að
fá, þó á ég reyndar síðdegisvaktina fyrir utan
Áfengisverslun ríkisins í næstu viku.
Fagurkerinn