Feykir - 22.04.2014, Síða 15
15/2014 Feykir 15
Með Kristni Sigmundssyni
í Miðgarði og Hörpu
Karlakórinn Heimir
Karlakórinn Heimir ræðst
sjaldan á garðinn þar sem
hann er lægstur og
framundan hjá kórnum eru
tónleikar með Kristni
Sigmundssyni í Menningar-
húsinu Miðgarði og Hörpu.
Eftir töluverðan aðdraganda
greip kórinn tækifærið til að
fá Kristinn með sér á þessa
tvenna tónleika. Gísli
Árnason og Jónas Svavarsson,
sem báðir sitja í stjórn
kórsins, litu inn hjá Feyki á
dögunum og sögðu frá því
sem er framundan hjá
kórnum í Sæluviku.
„Þetta er svona viðleitni til að
brjóta upp dagskrána, sem við
höfum verið að gera alveg frá
aldamótum. Í nokkur ár vorum
við með söngsýningar í stærri
kantinum, svo rennur það sitt
skeið á enda, þá ákváðum við
að prófa þetta form, að fá
landsþekkta söngvara til liðs
við okkur í hluta af pró-
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
gramminu. Við erum að reyna
að auka fjölbreytnina á tón-
leikum okkar,“ útskýra þeir
félagar.
Hugmyndin um liðsinni
Kristins er þó ekki alveg ný af
nálinni því henni var fyrst velt
upp fyrir tveimur og hálfu ári,
og þá varðandi Þrettánda-
tónleika. Það náðist ekki þá, svo
tækifærið var gripið nú, enda
eru svona tónlistarmenn
bókaðir langt fram í tímann.
Vissulega fylgir tónleikum af
þessu tagi aukinn kostnaður en
því hefur kórinn reynt að leita
eftir styrkjum og tryggja
þokkalega aðsókn á tónleikana,
til að vega upp á móti kostnaði.
Heimismenn telja mikilvægt að
geta boðið upp á svona
menningarviðburði heima í
héraði, og er þetta ákveðin
viðleitni til þess.
„Að þessu sinni erum við
með forsölu á tónleikana hér í
Miðgarði í Blómabúðinni og
KS Varmahlíð, það er tak-
markaður fjöldi miða og
hvetjum við fólk til að tryggja
sér miða í tíma.“
Það ríkir talsverð spenna og
stemning í herbúðum kórsins
vegna tónleikanna í Hörpu,
enda í fyrsta sinn sem kórinn
kemur fram þar og auk þess
stærsti salurinn sem þeir hafa
sungið í. Þeir segjast þó hafa
sungið fyrir fleiri áhorfendur
utanhúss, líklega mörg þúsund,
á heimssýningunni Expo 2000 í
Hannover í Þýskalandi.
„Það má ekkert klikka og
tónleikarnir í Miðgarði verða
flott generalprufa fyrir Hörp-
una. Kristinn kemur á svæðið
1. maí og þá höfum við æfingu
með honum. Þessir söngvarar
sem við fáum með okkur detta
bara inn í okkar prógramm, oft
er ekki tími nema fyrir eitt
rennsli með þeim,“ segja þeir
Gísli og Jónas og bæta við að
það ríki ekkert meiri sviðs-
skrekkur en venjulega, bara
tilhlökkun og eftirvænting. Það
má þó lítið út af bregða, því
snemma morguninn eftir
Sæluvikutónleikana í Miðgarði
verður lagt af stað suður og því
stendur kórinn ekki fyrir
dansleik eftir tónleikana eins og
venja hefur verið.
Nú nálgast sauðburður og í
Karlakórnum Heimi eru
margir bændur. Ætli lömbin
bíði eftir að Sæluvikan sé frá?
„Ari [Jóhann Sigurðsson,
innsk. blm.] miðar sinn búskap
við konserta og það ættu menn
raunar að gera,“ svara Gísli og
Jónas að bragði. „Við erum
vanir að fara með tónleika á
höfuðborgarsvæðið fyrr að
vorinu, en núna kemur sauð-
burðurinn eins og skratt-inn úr
sauðaleggnum,“ segja þér og
glotta.
Karlakórinn Heimir ásamt Thomas Higgerson undirleikara og Stefáni Gíslasyni stjórnanda kórsins.
Lífsins gæði og gleði
haldin í þriðja sinn
„Ég hef tvær hörkukonur með mér í öllum undirbúningi, þær
Ingunni Ástu Jónsdóttur og Sólveigu Olgu Sigurðardóttur
sem starfa fyrir SSNV. Undirbúningur hefur gengið með
ágætum. Við gerðum litla skoðanakönnun í lok síðasta
Spjallað við Sigfús Inga Sigfússon verkefnastjóra
Í ár eru allmargir nýir aðilar
sem taka þátt, en einhverjir eru
ekki með, sem hafa verið með
áður. -Það er eðlilegt að
hreyfing sé á þátttökunni enda
stendur misjafnlega á hjá
mönnum hverju sinni. Við
erum með nokkra nýja þátt-
takendur eins og bátasmíða-
fyrirtækið Mótun, Urðarkött
sem framleiðir m.a. græðandi
smyrsl úr minkafitu, allmarga
frumkvöðla sem eru að fram-
leiða fjölbreyttar hönnunarvör-
ur og þannig mætti áfram telja,“
segir Sigfús Ingi. Heilt yfir segir
hann sýninguna verða með
svipuðum hætti og áður, fjöl-
breytnin sé í fyrirrúmi, enda
fyrirtækjaflóran á svæðinu
ótrúlega fjölbreytt.
Samhliða sýningunni fara
líkt og áður fram málstofur um
fjölbreytt málefni. Má þar m.a.
nefna málstofur um rannsóknir
og nýsköpun, skapandi greinar,
þýðingu héraðsfréttamiðla fyrir
landsbyggðina, landbúnað,
ferðaþjónustu, umhverfismál
og fleira. Að auki verður svið í
sýningarsalnum og þar verður
sýningin sett á laugardeginum
og Sæluvika Skagfirðinga á
sunnudeginum. Þar verða jafn-
framt fjölmörg önnur atriði,
m.a. tískusýningar.
Sigfús segir ávinning sveitar-
félagsins af sýningunni vera
margvíslegan. „Reynt er að
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
árs meðal þátttakenda á síðustu sýningu og niðurstaða hennar var sú að flestir vildu hafa
sýningarnar á tveggja ára fresti. Það lítur út fyrir ágæta þátttöku og að við förum langt með
að fylla allt það básarými sem húsið leyfir,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, verkefnastjóri hjá
sveitarfélaginu Skagafirði sem að þessu sinni hefur yfirumsjón með atvinnu-, mannlífs- og
menningarsýningunni Lífsins gæði og gleði.
vekja athygli á þeim fjölmörgu
og öflugu fyrirtækjum og
stofnunum sem hér starfa, en
ég held að það sé óhætt að
fullyrða að óvíða sé að finna
jafnmikla fjölbreytni í atvinnu-
lífi á einum stað, ekki síst þegar
höfð er í huga stærð svæðisins.
Það skýrist m.a. af því hversu
öflug framleiðslustarfsemi er í
héraðinu. Þá er sýningin til þess
fallin að vekja athygli á starfsemi
ýmissa frumkvöðla og höfum
við fengið mjög jákvæð við-
brögð frá mörgum sem segja að
fyrri sýningar hafi skipt miklu
máli í því að vekja athygli á
þeim og hjálpað til við
markaðssetningu. Ávinningur-
inn er því kannski fyrst og
fremst fólginn í því að sýningin
er risastór markaðssetning á
Skagafirði og öllu því helsta sem
hann hefur upp á að bjóða.“
Sigfús Ingi segir óhætt að
fullyrða að þessi ávinningur
hafi skilað sér, enda þátttaka
sýnenda verið góð og gestafjöldi
skipt þúsundum hingað til. „Við
rennum auðvitað nokkuð blint
í sjóinn með gestafjölda en á
síðustu sýningu var áætlað að
talsvert á fjórða þúsund gestir
hafi sótt hana. Við stefnum á að
gestir verði enn fleiri í ár. Við
höfum ekki þurft að kvarta yfir
aðsókn heimamanna og höfum
fengið þau viðbrögð frá
mörgum að þeir séu hissa á því
hve gróskan sé mikil hér,“ bætir
Sigfús Ingi við.
„Eins voru mjög margir sem
búa utan Skagafjarðar sem sóttu
síðustu sýningu en það tel ég
vera mjög jákvætt. Varðandi
sjónvarpsútsendingar ákváðum
við að breyta til í ár og í stað
þess að vera með beinar
útvarpsútsendingar hluta úr
degi, fórum við þá leið að semja
við sjónvarpsstöðina N4 um
nokkurra daga umfjöllun um
sýninguna og héraðið og eigum
von á að þetta skili enn betri
markaðssetningu á sýningunni
og samfélaginu,“ segir Sigfús
Ingi.
En væri ástæða til að fara með
sýninguna suður yfir heiðar
til að ná til fleira aðila? „Ja, það
er góð spurning. Sýningin er
það umfangsmikil að ég held að
það yrði erfitt að flytja hana
suður, en það er ómögulegt að
segja hvert þessi hugmynd
getur þróast í framtíðinni,“
segir Sigfús í lokin.