Feykir - 10.07.2014, Qupperneq 3
26/2014 Feykir 3
Tillaga að deiliskipulagi á
Melstaðatúni á Skagaströnd
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar samþykkti þriðjudaginn
24. júní 2014 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Melstaðatúns skv. 1. mgr.
41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið nær yfir Melstaðatún,
eins og það er skilgreint í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagastrandar
2010-2022.
Melstaðatún er sunnan við Laufás, um 350m norðan þéttbýlisins á Skagaströnd. Svæðið er um 1,3 ha.
að stærð og afmarkast af Spákonufellshöfða að sunnan og vestan, lóð Laufáss og Réttarholtshæð að
norðan en gamla Skagavegi að austan.
Deiliskipulagstillagan felur í sér svæði fyrir gistingu, tjaldsvæði og gestahús ásamt aðstöðuhúsi á
Melstaðatúni með það fyrir augum að þar verði skjólgott og aðlaðandi útivistarsvæði/áningarstaður
fyrir ferðamenn og tengist m.a. gönguleið um Spákonufellshöfða.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3 á Skagaströnd og á vefsíðu
sveitarfélagsins www.skagastrond.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast á
skrifstofu sveitarfélagsins eða á tölvupóstfang skagastrond@skagastrond.is fyrir 25. ágúst 2014.
Skagaströnd 7. júlí 2014
Sveitarstjóri
SVEITARFÉLAGIÐ SKAGASTRÖND
TÚNBRAUT 1–3 545 SKAGASTRÖND
Nýprent óskar eftir að ráða
(enn einn) kláran starfsmann
> Viðkomandi þarf að hafa áhuga á hönnun og myndvinnslu
og kunna lagið á Adobe InDesign og Adobe Photoshop auk
þess sem reynsla af teikniforritinu Adobe Illustratror og
WordPress eða öðrum vefumsjónarforritum er æskileg.
> Starfsmaðurinn mun einkum vinna við uppsetningu á aug-
lýsingum í Sjónhornið auk almennrar uppsetningar- og
hönnunarvinnu, annast umsjón með útprentun á risaprent-
ara og tengda vinnu svo sem upplímingar á skilti og í glugga.
> Ágæt íslenskuþekking er nauðsynleg og umsækjandi þarf að
búa yfir ríkri þjónustulund og góðri framkomu.
> Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
borgarflöt 1 550 sauðárkróki sími 455 7171
HONNUN PRENTUN SKILTAGERD
> Óskað er eftir að áhugasamir
sendi umsókn og ferilsskrá á
netfangið harpa@nyprent.
is en frekari upplýsingar um
starfið veitir Þuríður Harpa
framkvæmdastjóri Nýprents.
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Starf yfirmanns
í eldhúsi
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
óskar eftir að ráða yfirmann í
eldhús í 100% starf.
Um er að ræða afleysingu í 6–8 vikur vegna forfalla.
Staðan er laus frá 14. júlí nk. eða eftir samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nám og reynsla á sviði matreiðslu. Þekking og reynsla
af verkstjórn og rekstri eldhúsa. Færni í mannlegum
samskiptum, skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og
áreiðanleiki í starfi. Góð íslenskukunnátta.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Stefánsdóttir
yfirmaður í eldhúsi í síma 455 4015, netfang: eldhus@
hskrokur.is og/eða Herdís Klausen framkvæmdastjóri
hjúkrunar í síma 455 4011, netfang. herdis@hskrokur.is .
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Kjalar
stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 13. júlí
öllum umsóknum verður svarað.
Hægt er að sækja um rafrænt á www.hskrokur.is
Annað mótið í Norðurlandsmótaröðinni í golfi
var haldið á Arnarholtsvelli við Dalvík
sunnudaginn 6. júlí. Golfklúbbur
Sauðárkróks var að venju með keppendur í
flestum flokkum og þau stóðu sig öll með
stakri prýði.
Mikið vatnsveður hafði verið dagana á undan og
völlurinn var mjög blautur og ringdi mest allan
daginn. Ágætis árangur var hins vegar þrátt fyrir
erfiðar aðstæður og nældu keppendur frá
Golfklúbbi Sauðárkóks sér í nokkur verðlaun.
Arnar Geir Hjartarson var í öðru sæti í flokki
17-21 árs á 72 höggum, Elvar Ingi Hjartarson varð
í þriðja sæti í flokki 15-16 ára á 75 höggum.
Hákon Ingi Rafnsson varð í öðru sæti á flokki 14
ára og yngri á 94 höggum. Hildur Heba Einars-
dóttir sigraði í flokki 12 ára og yngri á 62 höggum
og Anna Karen Hjartardóttir sigraði í byrjenda-
flokki á 56 höggum. /Fréttatilk.
Norðurlandsmótaröðin á Dalvík
Golfklúbbur Sauðárkróks
Sýning verður í Ártúnum í Blöndudal
dagana 19. júlí til 4. ágúst
Handverksmunir og málverk
Sigríðar Ólafsdóttur
eru til sýnis
Opnunartími er kl. 14-18. Verið velkomin.
Aðalgatan ekki
malbikuð í sumar
Framkvæmd kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir
Sýslumannsbrekkan á
Blönduósi verður ekki
malbikuð í sumar en fram
kemur í fundargerð byggðar-
ráðs Blönduósbæjar frá 25.
júní sl. að gert hafi verið ráð
fyrir 8 millj.kr. kostnaði við
framkvæmdina en ekki 16,7
millj.kr. eins og raun ber vitni.
Byggðarráð vísaði erindinu til
fjárhagsáætlunargerðar fyrir
árið 2015.
Í bréfi frá tæknideild
Blönduósbæjar sem tekið var
fyrir á fundinum var gert grein
fyrir kostnaði við malbikun og
lagningu kantsteins við Aðal-
götuna. Kostnaður við 1300 fm.
malbikun er áætlaður 7,3 millj.
kr. og við 200 fm. kantstein 550
þúsund krónur. Kostnaður við
að laga og breyta gangstétt við
húsið Tilraun er áætlaður um
500 þúsund krónur. Samtals
kostnaður við götuna er því 16,7
millj.kr.
„Í fjárhagsáætlun Blöndu-
ósbæjar fyrir árið 2014 var gert
ráð fyrir kostnaði við fram-
kvæmdir við jarðvegsskipti og
lagnir að upphæð 8. m.kr.
Byggðarráð vísar erindinu til
fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið
2015,“ segir í fundargerð. /BÞ