Feykir - 31.07.2014, Page 1
á
BLS. 6-7
BLS. 5
Steinunn Jóhannesdóttir
rithöfundur í viðtali
Hallgrímur á
heimaslóðum
BLS. 7-8
Spjallað við Pálínu Ósk
Hraundal og Ómar Braga
Stefánsson um ULM 2014
Stanslaust fjör
alla helgina
Rótarýklúbbur Sauðárkróks
gefur út bætta og
efnismeiri Króksbók
„Menn eiga að
vera stoltir af
samfélaginu sínu“
29
TBL
31. júlí 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
www.riverrafting.is - s: 453 8245
Paintball
River rafting
Wipeout
Tjaldstæði
Heitir pottar
Eiga von á tíu þúsund gestum
Unglingalandsmót UMFÍ í þriðja sinn á Króknum
Undirbúningi unglingalandsmótsins
er nú senn að ljúka. Dagskrá
mótsins hefst í dag en það verður
formlega sett á íþróttavellinum
annað kvöld. Auk undirbúnings
vegna mótsins hafa bæjarbúar lagt
metnað í að laga og fegra bæinn til
að taka sem best á móti gestum
sínum.
Þetta er í þriðja sinn sem mótið er
haldið á Sauðárkróki og hefur
staðurinn getið sér gott orð fyrir góða
aðstöðu og fyrir það hversu stutt er að
fara milli keppnisstaða og tjaldsvæðis
mótsgesta.
Viðtal við Ómar Braga Stefánsson
framkvæmdastjóra mótsins og Pálínu
Ósk Hraundal, verkefnastjóri mótsins
er á miðopnu Feykis í dag. Þau hafa
miðað undirbúning mótsins við um
tíu þúsund gesti, en margt er um að
vera hvort sem menn kjósa að keppa
eða horfa á og taka þátt í annarri
afþreyingu. /KSE
Bjarni verður sýslumaður
og Páll lögreglustjóri
Norðurland vestra verður eitt sýslumannsembætti og eitt lögregluembætti
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra hefur í kjölfar niður-
stöðu sérstakrar valnefndar tilkynnt
um skipan í embætti lögreglustjóra
og sýslumanna í nýjum umdæmum,
eins og greint hefur verið frá á vef
Innanríkisráðuneytisins.
Alþingi samþykkti í vor ný lög um
breytingar á umdæmum sýslumanna og
lögreglumanna og aðskilnað embætt-
anna og verða embætti lögreglustjóra 9 í
stað 15 og embætti sýslumanna 9 í stað
24 með lögunum sem taka gildi um
næstu áramót.
Páll Björnsson verður lögreglustjóri á
Norðurlandi vestra, með aðsetur á
Sauðárkróki. Bjarni Stefánsson, sem
verið hefur sýslumaður Skagfirðinga og
Húnvetninga síðan 1. febrúar 2013, og
þar áður sýslumaður Húnvetninga,
verður sýslumaður á Norðurlandi vestra,
með aðsetur á Blönduósi.
Segja má að Páll flytjist yfir landið þvert
Þessa unga stúlka var ekki í vinnu við að fegra bæinn eins ætla hefði mátt í fyrstu. Grasið sem hún var að tína fyrir utan blokk eina í Víðimýri var nefnilega ætlað hestunum
sem voru á beit skammt frá blokkinni. Stúlkan heitir Karen Ósk og býr í Grindavík en var í heimsókn hjá ömmu sinni.
og endilangt, en hann hefur verið
sýslumaður á Höfn í Hornafirði síðan
1986. Feykir sló á þráðinn til Páls og
forvitnaðist aðeins um hans bakgrunn og
hvernig breytingarnar legðust í hann.
„Þetta eru auðvitað heilmiklir flutningar,
en ég er Húnvetningur að upplagi, frá Ytri-
Löngumýri í Blöndudal í fyrrum Svína-
vatnshreppi, svo ég er ekki alveg ókunnur á
þessum slóðum,“ sagði Páll. Hann sagði
breytingarnar taka gildi um næstu
áramót og þá reiknar hann með að flytja
á staðinn ásamt eiginkonu sinni, en börn
þeirra eru uppkomin. Lögreglustjóra-
hlutverkið er Páli ekki ókunnugt en því
gegndi hann á Höfn þar til fyrir sjö árum
að hann lét af því starfi vegna skipulags-
breytinga og hefur einungis verið sýslu-
maður síðan. /GSG & KSE