Feykir - 31.07.2014, Blaðsíða 2
2 Feykir 29/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Skúffur og glatkistur
Það er alltaf sérlega ánægjulegt þegar menn taka sig til og láta
eitthvað gott af sér leiða, samfélaginu sínu og öðrum til heilla.
Þess ber að geta sem vel er gert og þegar þetta er ritað er mér
ofarlega í huga framtak félaga-
samtaka hér í bæ, hin nýútkomna
Króksbók II.
Raunar held ég að óvíða sé
öflugra félags-, menningar- og
tómstundastarf miðað við höfða-
tölu en hér á Norðurlandi vestra.
Á meðal þeirra sem láta sífellt
gott af sér leiða er Rótarýklúbbur
Sauðárkróks. Vegna fjölda áskor-
ana hafa þeir nú endurútgefið
svokallaða Króksbók sem inni-
heldur ógrynni upplýsinga um
þennan höfuðstað Norðurlands vestra.
Það þarf ekki að fjölyrða um að að baki svona útgáfu liggur
gríðarleg sjálfboðavinna. Eljusemi og áhugi og viljinn til að
miðla til annarra drífur menn áfram og úr verður vönduð
afurð sem lifir vonandi lengi. Það sem kannski helst vekur
hrifningu aðkomumannsins mín eru kaflar um það sem
hvergi eða óvíða annars staðar er skráð. Það getur t.d. verið
dýrmætt að vita að maður fer fram í Varmahlíð en ekki út eða
af hverju menn báru nöfn eins og Stebbi Dýllu og Siggi Diddi í
Skólakjallaranum. Það er einmitt slíkur fróðleikur sem á
vanda til að verða skúffum og glatkistum að bráð og er þá oft
skarð fyrir skyldi.
Mér er þannig farið að vera sífellt með nefið ofan í prentuðu
máli. Sé ég ekki við lyklaborðið verða bækur og blöð eða
skólaverkefni gjarnan fyrir valinu. Því fagna ég eins og margir
aðrir að við eigum þá arfleifð að geta endurútgefið bækur
Guðrúnar frá Lundi, fagnað 400 ára ártíð sálmaskáldsins
Hallgríms Péturssonar og 800 ára ártíð Sturla Þórðarsonar, en
auk Króksbókar er allt þetta til umfjöllunar í þessu síðasta
tölublaði Feykis fyrir sumarfrí.
Í þeirri viðleitni minni að verða einhvern tímann áður en
yfirlíkur fullgildur Skagfirðingur, - já eða skír og hreinn eins
og góður maður orðaði það – tek ég með mér Króksbók II í
fríið og les hana spjaldanna á milli. Hver veit nema Sturlunga,
Heimanfylgja Hallgríms Péturssonar og Tengdadóttir og
Afdalabarn Guðrúnar frá Lundi fái að fljóta með.
Kristín S. Einarsdóttir
bókaunnandi.
Nýir eigendur láta vel af viðtökum
Hótel Hvammstangi
Í vor hófu nýir eigendur
rekstur á Hótel Hvamms-
tanga. Það voru þau Aðal-
heiður Dóra Sigurðardóttir
(Alla Dóra) og Þröstur
Óskarsson sem keyptu hótelið
og hófu rekstur seinni partinn
í maí. Stefnan er sett á
heilsársrekstur.
Að sögn Öllu Dóru eru sex
herbergi á hótelinu en þau hafa
áhuga á að fjölga þeim, enda
nokkurt rými sem hægt væri að
breyta í herbergi. Hún segir þau
stefna á að hafa opið allt árið en
áður hafði hótelið einungis verið
opið á sumrin.
Þegar Feykir sló á þráðinn til
Öllu Dóru í síðustu viku lét hún
vel af viðtökunum það sem af er
sumri. „Þetta hefur gengið vel,
miðað við hvað við komum
seint inn.“
Ekki stendur til að vera með
veitingarekstur á hótelinu en
vínveitingaleyfi er til staðar og
segir Alla Dóra barinn hafa
verið opinn í fyrsta sinn í síðustu
viku og vera kunni að svo verði
af og til næsta vetur.
Aðspurð um aðdragandann
að því að þau hjónin fóru út í
þennan rekstur segir Alla Dóra
að þau hafi flutt á Hvammstanga
fyrir ári síðan, eiginlega bara
fyrir tilviljun. Húsið þeirra í
Hafnarfirði var óselt og sáu þau
sér leik á borði að skipta á því og
hótelinu og gekk það eftir. /KSE
Þröstur og Alla Dóra á veröndinni við Hótel Hvammstanga.
Safnast saman í Selvík í Skaga
Sögudagur á Sturlungaslóð 16. ágúst
Hinn árlegi sögudagur á Sturlungaslóð í
Skagafirði verður laugardaginn 16. ágúst.
Sögudagurinn verður nú haldinn í sjötta sinn
og hefur verið farið vítt og breitt um
Skagafjörðinn undanfarin ár, á Víðimýri,
Hóla, Miklibæ, Örlygsstaði, Fosslaug og
víðar.
Dagurinn byrjar með því að safnast verður
saman í Selvík á Skaga kl 14 þar sem Helgi
Hannesson leiðsögumaður og framhaldsskóla-
kennari mun segja frá Flóabardaga. Félagar frá
Grettistaki í Húnaþingi vestra verða á staðnum
og munu sjá um að börnin hafi eitthvað fyrir
stafni. Boðið verður upp á kaffi og djús. Til að
komast í Selvíkina er beygt að félagsheimilinu
Skagaseli og ekið meðfram ströndinni (til baka)
að víkinni.
Um kvöldið kl 20 hefst Ásbirningablótið í
Kakalaskála í Kringlumýri hjá Sigurði Hansen.
Erindi flytja Einar Georg Einarsson kennari og
sagnaþulur frá Laugarbakka og Þór Hjaltalín
minjavörður Norðurlands vestra. Bára Gríms-
dóttir og Chris Foster verða með tónlistaratriði.
Veislustjóri verður Sigurður Hansen og í boði
verða kræsingar að hætti miðaldamanna fram-
reiddar af Hótel Varmahlíð. Pöntunarsími á
blótið er 453 8170. /Fréttatilkynning
Ben Griffiths til Stólanna
Mfl. karla í knattspyrnu hjá Tindastóli
Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli hefur fengið nýjan
leikmann til liðs við sig. Það er hinn bandaríski Ben Griffiths
sem hefur bæst í leikmannahópinn og mun leika með liðinu
það sem eftir er af tímabilinu, en hann er fyrsti leikmaðurinn
sem kemur til Stólanna eftir að leikmannaglugginn opnaði.
Næsti leikur hjá Stólunum er fimmtudaginn 7. ágúst, en þá taka
strákarnir á móti KA á Sauðárkróksvelli og hefst leikurinn kl. 19. /GSG
Frjálsar íþróttir
Þóranna Ósk
Íslandsmeist-
ari í sjöþraut
Meistaramót Íslands í
fjölþrautum frjálsíþrótta fór
fram á Laugardalsvellinum í
Reykjavík helgina 19.-20. júlí.
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir,
Tindastól/UMSS, varð Íslands-
meistari í sjöþraut kvenna, hlaut
4066 stig. Þóranna var eini
keppandi UMSS á mótinu.
Þá tók Jó hann Björn Sig ur-
björns son þátt í und an rás um í 200
metra hlaupi á heims meist ara-
móti ung linga í Eu gene í Banda-
ríkj un um. Hann komst ekki
áfram úr undanriðlum. /KSE
Laxveiðin það sem af er sumri
Húnvetnsku árnar á góðu róli
Blanda var fyrsta laxveiðiáin á
landinu til að fara yfir 1000
veidda laxa í sumar
samkvæmt veiðitölum sem
birtast vikulega á vef
Landsambands veiðifélaga.
Þar voru komnir 1060 laxar á
land á miðvikudaginn í
síðustu viku en heildarveiðin í
fyrra fór yfir 2600 laxa.
Á vef Lax-ár, sem er leigutaki
árinnar, er haft eftir veiði-
mönnum sem þar voru núna
seinnipartinn í júlí að eftir tvær
vaktir voru þeir komnir með
yfir 20 fiska og höfðu allt í allt
skráð hátt í 50 fiska í veiði-
bókina. Veiðin hefur verið með
ágætum á öllum svæðum í ánni
skv. samtali við veiðimennina.
Á vefnum Vötn og veiði er
sagt frá stórlaxi sem veiddist í
Víðidalsá í vikunni og var sá 102
sentímetrar og líklega um 22-23
pund. Veiddist hann á neðsta
svæðinu. Úr Víðidalsánni voru
komnir 190 laxar á miðviku-
daginn í síðustu viku en þar má
veiða á níu stangir. Var áin í
fimmtánda sæti á landsvísu.
Úr Vatnsdalsá voru svo
komnir hátt í 250 laxar. Þrátt
fyrir að það væri heldur færra en
í fyrra, og ekki útséð með að
veiðimet verði slegin eins og þá,
mega menn vel við una, enda
veiðin með því besta sem gerist
á landsvísu. /KSE
Frá Sturlungadegi 2013.