Feykir - 31.07.2014, Page 4
4 Feykir 29/2014
Króksarar í Laugavegshlaupinu
„Einn skemmtilegasti viðburður
sem ég hef tekið þátt í“
Laugavegshlaupið er 55
kílómetra langt hlaup sem
haldið var í 18. sinn þann 12.
júlí sl. Á meðal þátttakenda í
hlaupinu voru Skagfirðingarnir
Einar Örn Hreinsson, Jón
Svavarsson og Selma Barðdal
Reynisdóttir. Þau skráðu sig
einnig í sveitakeppnina sem
sveitin Króksararnir, en með
þeim í för slóst einn keppandi
frá Noregi, hún Hugrún Ösp
Egilsdóttir. Feykir hafði
samband við Einar Örn og
spurði hann frekar um
hlaupið.
Hlaupið var frá Landmanna-
laugum, um Hrafntinnusker, í
Álftavatn, um Emstrur, og endað
í Húsadal í Þórsmörk. Að sögn
Einars byrjaði hlaupið í slag-
veðursrigningu og um 7°C hita í
Landmannalaugum.
„Á leiðinni frá Landmanna-
laugum í Hraftinnusker er um
500 metra hækkun og á þeirri
leið þurfti aðeins að hlaupa á snjó
og á um 100 metra kafla þurfti að
vaða krapaelg upp fyrir miðja
kálfa. Rétt fyrir Hrafntinnusker
var mikil og þykk þoka og varð
það m.a. til þess að ég villtist og
þurfti að taka á mig smá krók þar
sem ég hafði misst sjónar á næsta
manni á undan. Í Hrafntinnu-
skerum hefur hitastigið senni-
lega verið undir 4°C en að mestu
stytt upp. Á leiðinni frá Hrafn-
tinnuskerum í Álftavatn var
áfram töluverður snjór sem
hlaupið var á og einnig þurfti að
hlaupa í gegnum svæði með
töluverðri leirdrullu. Eftir að
komið var niður að Álftavatni
var veðrið orðið mjög gott, logn
og að mér fannst, heitt. Þessi
veðurskilyrði héldust svo alla leið
í Húsadal. Drykkjastöðvar voru í
Hrafntinnuskeri, við Álftavatn, í
Emstrum og á tveimur stöðum
nærri Húsadal þar sem boðið var
upp á vatn og aðra drykki ásamt
einhverju orkuríku til að japla á.
Nokkrar ár og kvíslar þurfti að
vaða á leiðinni og um mitt hlaup
(eftir sirka 26 km) var hægt að
vitja um tösku sem hægt hafði
verið að útbúa með auka út-
búnaði ef með þurfti.
Í heildina fannst mér hlaupa-
skilyrðin mjög góð af fjallaleið að
vera ef undan er skilin rigningin
í byrjun,“ segir Einar.
Þetta var í fyrsta skiptið sem
Einar Örn, Jón og Selma tóku
þátt í Laugavegshlaupinu og
segir Einar þetta hafa verið
magnaða upplifun. „Að hlaupa
þessa ótrúlega fallegu leið ásamt
350 öðrum keppendum alls
staðar að úr heiminum við oft
mjög krefjandi aðstæður á lengi
eftir að lifa með manni. Þetta er
Nokkrar ábendingar um eitt
og annað sem betur mætti fara
Eftir að að hafa lesið ágæta
grein Bryndísar Þráinsdóttur
[birt á Feykir.is 30. maí, innsk
blm.] ákvað ég að senda
ykkur nokkrar línur. Ég dvel
dálítið á Króknum til að hlaða
batteríið, en ég á þar hús
(Helgafell, eða Aðalgata 27)
og rölti þá stundum upp á
Nafir, og sest þá gjarnan á
þúfu norðan við Gránu-
klaufina, en þaðan er gott
útsýni yfir gamla bæinn og
höfnina. Sitjandi þar dettur
manni ýmislegt í hug, og eftir
að hafa lesið grein Bryndísar
þá datt mér í hug að senda
ykkur þessar línur.
Væri ekki mögulegt að gera
göngustíg framan í Nöfunum
utan af Eyri eða úr Gíslaklauf
og suður úr? Einnig mætti gera
FRÁ LESENDUM GÍSLI JÓHANN SIGURÐSSON SKRIFAR
göngustíga upp einhverjar
klaufir, helst allar, og/eða finna
gamla troðninga eins og er t.d.
í Gránuklauf, lagfæra þá og
gera sýnilega og auðfarna.
Einnig setja upp spjöld með
gömlum og nýjum myndum af
bænum, bæði uppi á Nöfunum
klaufunum við gönguslóðirnar.
Útsýnið af Nöfunum yfir
bæinn er fallegt og breytilegt
eftir því hvaðan horft er, auk
þess sem skokkarar og annað
útivistarfólk í bænum fær þá
val um margar nýjar og
skemmtilegar göngu- og skokk
leiðir. Ég hef séð að margir
leggja leið sína út á suðurgarð
hafnarinnar (nýja garðinn)
með stöng, og klöngrast síðan
niður í grjótið að sunnanverðu,
(að norðanverðu er lægri stall-
ur í garðinum sem nær lang-
leiðina út að miðju garðsins).
Óskastaða hefði verið að slíkur
stallur hefði einnig verið að
sunnanverðu veiðimannanna
vegna. Garðurinn býður einnig
upp á alveg nýtt sjónarhorn
fyrir ljósmyndara. Garðurinn
er annars þannig yfirferðar að
það er spurning hvort hann sé
ekki slysagildra eða jaðri við
það eins og hann er. Hann gæti
orðið ferðamanna- og veiði-
mannavænni ef sett væri ofan á
hann gróft efni til að fylla í
stærstu holurnar milli steina
ofan á honum. Tala ekki um ef
kæmi handrið helst með skörð-
um eða bilum í eftir miðju
garðsins.
Nú er verið að gera svo
margt vegna ferðaþjónustu
víða og til að laða að fólk. Held
að með bættu aðgengi megi fá
ferðafólk til að staldra aðeins
við í bænum og skoða sig um.
Ég hef tekið eftir að á
hátíðisdögum, s.s. 17. júní og
Lummudögunum, eru settir
fánar í þar til gerð statíf á
ljósastaura við Skagfirðinga-
braut og Aðalgötu, sá ysti í
bænum mun vera til móts við
Villa Nova. Þeim fer fjölgandi
sem koma yfir Þverárfjallið, og
mér fyndist að menn ættu að
láta fánaborgina enda í
hringtorginu úti á Eyri og taka
þannig einnig vel á móti öllum
sem koma þá leiðina.
Með kveðju,
Gísli J. Sigurðsson
og eða nálægt þeim stöðum
sem þær voru teknar frá, svo
fólk sjái og skynji þær
breytingar sem hafa orðið í
tímans rás. Frábært yrði að fá
borð og bekki á nokkrum
stöðum uppi á Nöfunum, eða í
einhverri klaufanna þar sem
skjólsælt er, og/eða fyrir neðan
einhverjar af klaufunum eins
og var fyrir nokkrum árum
neðan og norðan við Gránu-
klaufina (efst í gömlu aksturs-
slóðinni að kolaportinu). Ekki
var nú skjólið þar á daginn í
innlögninni, en gat verið mjög
gott snemma á morgnana og á
kvöldin. Þetta var reyndar
fjarlægt fyrir Lummudagana
eitt árið og kom ekki aftur. En
umfram allt að gera fólki
mögulegt að ganga upp allar
klaufirnar, og hafa nöfnin á
einn sá skemmtilegasti viðburð-
ur sem ég hef tekið þátt í lengi.“
Öll náðu þau sínum mark-
miðum í hlaupinu og var Selma
fimmta konan sem kom í mark
og sú þriðja í sínum aldursflokki,
á tímanum 6 klst, 12 mín. og 15
sek. sem er frábær árangur. Jón
kom í mark á tímanum 6 klst,
25 mín. og 52 sek. og endaði í 7.
sæti í sínum aldursflokki. Einar
átti einnig mjög gott hlaup og
var 18. í mark í sínum aldurs-
flokki á tímanum 6 klst., 1 mín.
og 53 sek. Í sveitakeppninni
enduðu þau, sveitin Króksar-
arnir, í 9. sæti af 28 sveitum.
/GSG
Ung stúlka gefur Selmu Barðdal blómvönd að keppni lokinni. Mynd: Ingólfur Arn.
Kærar þakkir til allra sem lögðu
hönd á plóginn við framkvæmd
tó listarhátíðinnar Gærunnar.
Sérstakar þakkir fá duglegu sjálfboðaliðarnir okkar,
öll fyrirtækin sem studdu við bakið á okkur og gestir
hátíðarinnar. Án ykkar aðkomu hefði hátíðin
ekki orði að veruleika.
Ta k fyrir okkur..
14.-16. ÁGÚST
Miðasala hafin á
midi.is
Allar upplýsingar á
gaeran.is