Feykir - 31.07.2014, Page 5
29/2014 Feykir 5
Upphaflega var Króksbók gefin
út sem kynningarrit í tilefni af
umdæmisþingi Rótarý sem
haldið var á Sauðárkróki 1993.
Eins og segir í formála
Króksbókar II var tilgangurinn
að fræða en líka bæta um-
ræðuna um gamla bæinn sem
átti undir högg að sækja. Brot
bókarinnar var miðað við að
hún færi vel í vasa á göngutúr
um gamla bæinn. Þegar bókin
var tilbúin þótti upplagt að setja
hana í almenna dreifingu, auk
þess að dreifa henni til þing-
fulltrúa. Skemmst er frá að
segja að undirtektir voru góðar
og bókin er uppseld fyrir löngu.
Þrátt fyrir að upphaflega hafi
aðeins verið stefnt að þessari
einu útgáfu ákváðu klúbbfélag-
ar, vegna mikillar eftirspurnar,
að ráðast í endurútgáfu.
Árni segir glettilega margt
hafa breyst síðan fyrri bókin
kom út. „Það eru 20 ár síðan
Króksbók kom út og þar voru
upplýsingar sem eru orðnar
úreltar. Hús hafa verið rifin og
hús hafa brunnið og götur hafa
færst úr stað og hvaðeina.
Þannig að það var tímabært að
uppfæra bókina.“ Binni skýtur
því inn í að þeir rit-
stjórnarmenn hafi þó lítið
breyst. Nefndin taldi þó upp-
haflega sex menn, en þrír eru
eftir búsettir á Sauðárkróki,
grónir og gamlir Króksarar. Eru
þeir sammála um að það
markmið að vekja gamla bæinn
til vegs og virðingar hafi að
einhverju leyti náðst með fyrri
bókinni.
Víða leitað fanga
Árni og Binni eru sammála um
að bókin eigi ekki síst erindi við
heimamenn. „Það er mikil
hreyfing á fólki, miklir flutn-
ingar til og frá og margt fólk
sem veit ekki mikið um bæinn,
sérstaklega gamla bæinn, sem á
fullt af sögu. Þetta er svona
hjálpartæki til þess að kynnast
bænum. Þarna er bæði gaman
og alvara sem á erindi til heima-
manna og þeirra ferðamanna
sem vilja skoða gamla bæinn
og vita eitthvað um húsin, t.d.
hvar Guðrún frá Lundi sat og
skrifaði eða hvar Jón Þorfinns-
son bjó.“
Bókin er 84 blaðsíður og
sem nærri má geta er víða leitað
fanga varðandi heimildir.
„Sauðárkrókssaga Kristmund-
ar er góð heimild, en með
henni braut hann blað í byggða-
söguritun. Við höfum leitað
fanga víða í ævisögum og ritum
og hjá fólki í bænum. Við
ljúgum ekki mikið,“ segir Árni
og Brynjar tekur heils hugar
undir það. Vegna tímaskorts
við fyrri bókina var heimilda
ekki getið þar en það er gert í
nýju bókinni.
Blaðamaður ýjar að því að
það sé undirliggjandi dálítill
„grobbtónn“ í bókinni. „Það á
að vera,“ svarar Binni að bragði
og Árni segir að menn verði að
vera ánægðir með sitt. „Það er
engin ástæða til annars en að
vera stoltur af samfélaginu sínu.
„Menn eiga
að vera stoltir af
samfélaginu sínu“
Rótarýklúbbur Sauðárkróks gefur út Króksbók II
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Árni Ragnarsson og Brynjar Pálsson sem skipa ritnefnd Króksbókar í félagi við Ágúst Guðmundsson sem var fjarri góðu gamni.
Út er komin Króksbók II, aukin og endurbætt útgáfa af
Króksbókinni sem Rótarýklúbbur Sauðárkróks gaf út árið
1993 og er fyrir löngu uppseld. Bókin inniheldur sem fyrr
feikna fróðleik um Sauðárkrók, einkum gamla bæinn. Auk
fróðleiks sem byggir á sögulegum heimildum er í bókinni
að finna margt merkilegt sem ekki hefur endilega verið sett
á prent áður. Í Króksbók II má til dæmis lesa um af hverju
Króksarar fara „yfrum“ og eru „fyrir handan,“ það sem
Króksurum þykir „pínu rosalega gott“ og frægar persónur
eins og Steina putt og Mundi Valda Garðs. Einnig segir af
því hvers vegna Króksarar hafa styttu af hesti þar sem aðrir
bæir hafa kónga og fyrirfólk. Þrátt fyrir að mikil og merk
heimildavinna liggi að baki er léttleikinn í fyrirrúmi og
glens og gaman á milli lína. Á slíkum nótum var líka viðtal
sem blaðamaður Feykis átti við ritnefndarmennina Árna
Ragnarsson og Brynjar Pálsson.
Við meinum að menn eigi að
vera stoltir af staðnum og
menningunni og samfélaginu
og ganga um það eftir því.
Gamli bærinn er auðvitað
mikilvægur í því sambandi.“
Kvöld, helgar og páskar
Árni, sem að sögn Binna, átti
upphaflegu hugmyndina að
bókinni, viðurkennir að mikil
vinna sé að baki. „Þetta eru
kvöld og helgar og páskar.“
Þarna nægir að nefna sem
dæmi kort á miðopnu bókar-
innar sem merkt eru inn á 130
hús í gamla bænum og nöfn
þeirra og upplýsingar um flest
þeirra. Var kortið sérstaklega
gert fyrir fyrri bókina og
uppfært fyrir þessa útgáfu.
Annað sem Króksbók II
hefur að geyma og ekki hefur
verið aðgengilegt almenningi
áður eru kort og greinar úr
húsakönnun fyrir gamla bæinn
á Króknum. Lauk umræddri
könnun árið 2001 en hún var
framkvæmd af þáverandi fyrir-
tæki Árna, ARKITEKTÁRNI
og naut Árni aðstoðar Áslaugar
S. Árnadóttur. Þar var byggðin
undir Nöfunum greind í sögu-
legu ljósi, einstök hús, húsa-
þyrpingar og götumyndir. Er
fjallað um ráðandi þætti í
landslagi og bæjarbyggingu
sem einkenna svæðið, bæjar-
og göturými, húsagerðir, aldur
húsa og bæjarmyndir, varð-
veisluþætti og varðveislugildi.
Að „fara í bæinn“
Talið berst að verslunum og því
að fara „í bæinn“, en þeir félagar
eru sammála um að það
orðatiltæki hafi verið fundið
upp á Króknum og síðan
yfirfærst á það að fara til
Reykjavíkur. „Hér áður fyrr var
bærinn allur á litlu svæði, 20 til
30 verslanir og menn fóru í
bæinn.“ Þannig hafi Sauðár-
krókur misst miðbæinn, eftir
að verslanirnar fóru úr Aðalgöt-
unni og teygðist á bænum. Ekki
síst þess vegna er telja þeir
ástæðu til að vekja athygli á
gamla bænum.
Í hinni nýju útgáfu Króks-
bókar eru ekki auglýsingar en
við útgáfuna njóta Rótarý-
menn styrkja nokkurra fyrir-
tækja á Króknum sem eru
Króksbókinni hliðholl. Sveitar-
félagið Skagafjörður hefur
einnig komið að útgáfunni með
hvatningu og stuðningi. Bókin
kemur út í 2500 eintökum og
verður til sölu á litlar þúsund
krónur. Gengið verður í hús á
Króknum eftir miðjan ágúst. Þá
verður hægt að nálgast ritið,
fyrir brottflutta og aðra áhuga-
sama með því að bregða sér í
Pennann-Eymundsson en á
Króknum verða útsölustaðirnir
sex; Rafsjá, N1, Skagfirðinga-
búð, Bláfell, Hlíðarkaup og
Verslun Haraldar Júlíussonar
(Bjarni Har).
Rótarýmenn á Sauðárkróki,
sem og annars staðar, hafa látið
margt gott af sér leiða í bænum
og má þar nefna fjölmennt
jólahlaðborð fyrir síðustu jól í
boði þeirra, hringsjá uppi á
Nöfum og Rótarýklukkuna við
sundlaugina. Árni segir að verði
ágóði af bókinni verði það eitt
fyrsta verkið að laga hitamælinn
á klukkunni, svo það skeiki ekki
einni til tveimur gráðum eftir
því úr hvaða átt er horft – eða
hvort menn eru staddir fyrir
utan eða framan Flæðarnar,
eins og Króksarar myndu
líklega orða það.
Króksbók II
Útgáfu- og ritstjórn
Króksbókar skipa
þeir Árni Ragnarsson,
Ágúst Guðmundsson
og Brynjar Pálsson.
Auk Árna og
Ágústs eru skrif
eftir Árni Blöndal og
Erling Örn Péturs-
son úr fyrri Króksbók sem standa óhögguð. Nýja
húsheitakortið og kort og greinar úr bæjar- og húsa-
könnun fyrir gamla bæinn frá 2001 eru unnin af Árna
og Áslaugu S. Árnadóttur.
Heimilda er getið í bókinni en um ritvinnslu og
próförk sá Ásdís Hermannsdóttir. Ljósmyndir eru úr
Ljósmyndasafni Héraðsskjalasafns Skagfirðinga og
myndasöfnum þeirra Björns Jónssonar og Gunnars
Helgasonar. Flestar nýrri myndir hafa þeir Óli Arnar
Brynjarsson og Hjalti Árnason tekið. Óli Arnar sá jafn-
framt um umbrot, setningu og útlit bókarinnar. Um
litgreiningu og prentun sá Nýprent á Sauðárkróki.