Feykir - 31.07.2014, Qupperneq 8
8 Feykir 29/2014
Norðanpaunk er ný
pönkhátíð sem
haldin verður á
Laugarbakka um
verslunarmanna-
helgina, dagana
1.-3. ágúst. Nafnið á
hátíðinni er dregið
af samnefndum
tónleikum sem
haldnir voru á
Akureyri árið 1999.
Feykir hafði
samband við Árna
Þorlák Guðnason,
einum af
skipuleggjendum
hátíðarinnar.
,,Norðanpaunk er
fyrir alla sem vilja
hlusta á skrítna,
skemmtilega og
stundum kannski
svolítið erfiða tón-
list í góðra vina
hópi, þar sem allir
geta verið þeir sjálfir
og lausir við ein-
hvern töffaraskap,”
segir Árni Þorlákur og bætir því við
að þeir hafi ekki áhuga á ruglinu sem
vill gjarnan einkenna popptónlistar-
hátíðir.
Árni Þorlákur segir hugmyndina
að hátíðinni hafa kviknað þegar hann
sat ásamt nokkrum félögum sínum
og þeir höfðu verið að klóra sér í
hausnum yfir því að það skyldi ekkert
vera í boði fyrir þennan jaðarhóp sem
hefur gaman af því að hlusta á skrítna
og erfiða tónlist. „Svo tókum við
okkur bara saman og heyrðum í fleiri
hljómsveitum og það voru allir til í að
leggjast á eitt að gera eitthvað
skemmtilegt saman um þessa helgi
og reyna að hóa saman skrítnustu og
skemmtilegustu tónlistinni á Íslandi.
Svo vatt þetta upp á sig og á endanum
vorum við líka komin með sex
erlendar hljómsveitir um borð.”
Meðal þeirra sem standa að
hátíðinni ásamt Árna Þorláki eru
hljómsveitirnar NORN, MASS,
World Narcosis, Mannvirki, Döpur,
Aria Lamia og RVNES. Árni segir þó
fljótlega fleiri hafa bæst í hópinn en
auk hans hafi Jonathan Baker, Hilmar
Kári Árnason, Krummi Björgvins-
son, Tómas Ísdal, Ægir Sindri
Bjarnason, Clyde Bradford, Malte
Cornelius Jantzen og Sveinn
Alexander Sveinsson líklega borið
mesta hitann og þungann af hátíðinni.
Norðanpaunk
Pönkhátíð á Laugarbakka um verslunarmannahelgina
,,Við höfum líka notið dyggs stuðnings
allra hljómsveitanna sem hafa hjálpað
okkur með upphitunar- og söfnunar-
tónleika og að græja það sem þurft
hefur að græja fyrir það. Einnig hafa
Regína Ólína Þórisdóttir á Löngufit og
Gunnar Ægir Björnsson og margir
fleiri hjálpað okkur mikið.”
Nafnið á hátíðinni er dregið af
samnefndum tónleikum sem haldnir
voru á Akureyri árið 1999 og segir Árni
það vera af þeim augljósu ástæðum að
þeir voru haldnir fyrir norðan og þar
var spilað paunk. ,,Allar hljómsveitirnar
sem eru að spila, spila tónlist sem á
rætur sínar að rekja til paunkhreyf-
ingarinnar þannig að okkur fannst
þetta bara gráupplagt. Það má segja að
við viljum halda við þessari Do It
Yourself menningu sem er einkennandi
fyrir paunksamfélagið þar sem tón-
leikar eru einfaldlega skipulagðir af
hljómsveitunum sjálfum.”
Fyrsta hljómsveitin mun stíga á svið
kl. 19:00 annað kvöld, föstudaginn 1.
ágúst og sú síðasta aðfaranótt sunnu-
dags, en alls munu 35 hljómsveitir spila
á hátíðinni. Hægt er að kaupa miða hjá
Lucky Records í Reykjavík en einnig er
hægt að kaupa miða með því að senda
skilaboð á netfangið nordanpaunk@
gmail.com. 18 ára aldurstakmark er inn
á alla tónleikana. /GSG
Það hljóta margir að koma við sögu
þegar svona verk er unnið? -Já, svo
sannarlega. Ég er með langan þakkar-
lista í bókarlok til allra þeirra fjöl-
mörgu sem studdu mig með ráðum og
dáð; eiginmaður minn og fjölskylda,
félagar í ReykjavíkurAkademíunni,
Hólastaður, ritstjórar mínir og einstak-
ir fræðimenn og jafnvel vandalausir
velunnarar.
Ferðu mikið um sögustaðina sem þú
skrifar um? -Já. Það er mér mjög
mikilvægt. Ég hef notað það sem
aðferð við öll mín verk sem hafa ein-
hverja sögulega tengingu, leikrit eins
og Ferðalok og Heim Guðríðar, Sögu
Halldóru Briem og ekki síst Reisubók
Guðríðar. Þar er aðferðin hreinlega sú
að rekja slóð Guðríðar um öll þau lönd
og borgir sem vitað er að hún kynntist,
fyrst í ánauðinni og síðan á reisunni
löngu aftur heim. Fyrir Heimanfylgju
þurfti ég náttúrlega fyrst og fremst að
gerast heimakomin á Hólastað, Höfða-
strönd og í Fljótaumboðinu hinu forna.
En ég fór líka í eina mikilvæga utan-
landsreisu, svokallaða Lúter-reisu, milli
þeirra borga í Þýskalandi sem Lúther
nam og starfaði í. Það var mjög lær-
dómsríkt. Í þeirri ferð gerði ég mér
meðal annars grein fyrir hinu mikil-
væga hlutverki sem kona Lúthers,
Katarína af Bora, gegndi fyrir starf
manns síns og siðaskiptin. Halldóra
Guðbrandsdóttir varð svipaður skör-
ungur á Hólum.
En hvernig kviknaði áhugi þinn á
Guðríði? -Eigum við að segja að
örlögin hafi ráðið því. Ég var leikkona í
Þjóðleikhúsinu og valin til þess að leika
Guðríði í leikriti Jakobs Jónssonar,
Tyrkja-Gudda. Benedikt Árnason var
leikstjóri og ég hef stundum gert hann
ábyrgan fyrir því sem á eftir fór, því
miklu veldur sá sem upphafinu veldur.
Um svipað leyti kynntist ég þáverandi
sóknarpresti í Hallgrímskirkju, séra
Karli Sigurbjörnssyni og Kristínu
Guðjónsdóttur konu hans, þegar
örlögin (aftur!) stilltu því svo til að við
fórum að byggja hús saman. Í fram-
haldinu fór ég að sækja kirkjuna og
dróst inn í það merkilega safnaðarstarf
og listalíf sem þróast hefur í þessu
mikla guðshúsi og þar leiddi eitt af
öðru. Ég var t.d. fengin til þess að skrifa
leikrit um Guðríði og Hallgrím til
sýningar í Hallgrímskirkju á Kirkju-
listahátíð 1995. Það var fyrsta alvarlega
tilhlaup mitt að því að endurskapa líf
þessara mögnuðu einstaklinga og sér-
stæðu hjóna. Sýningin varð vinsæl og
við sýndum hana í kirkjum um allt
Ísland, m.a. á Hólum, fram á haustið
2000.
Hvað reiknarðu með að upplestur-
inn taki langan tíma? -Lesturinn hefst
laugardaginn 9. ágúst í Grafarkirkju
klukkan tvö eftir hádegi og þar mun ég
lesa fyrsta hluta bókarinnar, Dreng-
urinn í Gröf. Ég geri tvö hlé á lestrinum,
annað korters langt og hitt í hálftíma
og reikna með að ljúka dagsverkinu
upp úr klukkan hálfsex.
Hólastrákur, sem skiptist í tvo hluta,
verður svo allur lesinn í Auðunarstofu
á Hólum. Lestur hefst þar að kvöldi 10.
ágúst klukkan 20:00 og verður haldið
áfram fram undir klukkan 22. Eitt hlé.
Næstu fjóra daga mun ég svo lesa frá
klukkan 16:00-18:00 og 20.00-22:00,
með einu hléi í hverri lotu.
Og röddin, kemur hún til með að
endast allan þennan tíma? -Ég vona
það. En ég veit að þetta verður erfitt og
er með aðstoðarmann mér til halds og
trausts. Maðurinn minn, Einar Karl
Haraldsson, er mjög góður lesari, og
hann mun leysa mig af í nokkrum
köflum. Svo verð ég bara að vona að ég
kvefist ekki meðan á þessu stendur.
Upplesturinn er í tengslum við
Hólahátíð í ár? -Já. Nú þegar þess er
minnst að 400 ár eru frá fæðingu Hall-
gríms er aðaltema Hólahátíðar uppruni
skáldsins í Skagafirði og uppvaxtar-
skilyrðin á Hólum. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir vígslubiskup er yfirlýstur
aðdáandi Heimanfylgju og það er í
samráði við hana og séra Gylfa Jónsson
sem lestrinum er valinn þessi tími sem
upptaktur að Hólahátíð. Þar mun ég
síðan flytja fyrirlestur.
Bænhúsið í Gröf er merkilegt
mannvirki og tengist fjölskyldu
Hallgríms á ýmsan hátt? -Kirkjan í
Gröf er elsta torfkirkja á Íslandi og í
umsjá Þjóðminjasafnsins. Sennilega
hefur bænhús staðið á þessum stað frá
því á fyrstu öldum kristni í landinu. En
eftir siðaskiptin var reynt að fækka
bænhúsum og hálfkirkjum og því er
ósennilegt að hún hafi verið í notkun
sem slík þegar Hallgrímur var að alast
upp í Gröf. Í Heimanfylgju geri ég ráð
fyrir að hún hafi verið notuð sem
skemma. En síðar á 17. öld eignaðist
afkomandi Guðbrands jörðina, Gísli
Þorláksson Hólabiskup, og hann og
kona hans, Ragnheiður Jónsdóttir
(konan á fimmþúsundkallinum),
endurreistu kirkjuna og fengu mesta
útskurðarmeistara landsins, Guðmund
Guðmundsson frá Bjarnastaðahlíð, til
þess að skreyta hana með sama hætti
og einkennir hana enn í dag þótt
altarisskápurinn einn sé upprunaleg-
ur. Kirkjan er mesta gersemi eins og
allir vita sem hafa skoðað hana.
Ég vil þó benda komandi gestum
mínum á að kirkjan er óupphituð,
þannig að rétt er að vera hlýlega
klæddur ef fólk staldrar eitthvað að
ráði við til að hlusta. Við verðum líka
með teppi á staðnum.“
Síðan er væntanleg barnabók um
Hallgrím? -Já. Mig langaði líka til
þessa að skrifa um barnið Hallgrím
fyrir börn. Og í haust kemur út saga
fyrir alla fjölskylduna, Jólin hans
Hallgríms, sem gerist á aðventunni
þegar hann er 7-8 ára og segir frá
honum, systkinum hans, fjölskyldu og
vinnufólki í Gröf við undirbúning
jólanna. Þá var í mörgu að snúast eins
og gengur og gerist enn í dag, börnin
eru full eftirvæntingar og svo verður
dálítið kraftaverk þarna í vetrar-
myrkrinu, sem fangar hugann. Bókin
er prýdd fjölda yndislegra mynda eftir
einn okkar allra besta myndskreyti,
Önnu Cynthiu Leplar. Jólasýning Þjóð-
minjasafnsins mun í ár byggja á sögunni
og myndum Önnu, sem verða settar
upp í safninu.