Feykir - 31.07.2014, Page 11
29/2014 Feykir 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar getur nú einbeitt
sér að því að æfa sig í að klappa með annarri hendinni.
Spakmæli vikunnar
-Sá sem tapar peningum tapar litlu, sá sem tapar heilsunni tapar
miklu, en sá sem tapar hugrekkinu tapar öllu.
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... snigill getur sofið í þrjú ár?
... býflugur hafa þrjú augnlok?
... ef öll dýr í heiminum væru sett á vigt saman myndu maurar vera
tíu prósent af heildarþyngdinni?
... uppáhaldslitur flestra er rauður?
FEYKIFÍN AFÞREYING gudrun@feykir.is
Hahahahaha...
Böddi var að keyra leigubíl heim til sín úr borginni, þegar hann var
stoppaður af lögreglunni fyrir að vera ekki með sætisbeltið spennt.
Tveimur dögum síðar var hann stoppaður aftur, sama vandamál og
síðast, sama löggan. Svo jæja sagði löggan, hefur þú ekkert lært vinur?
Já, jú sagði Böddi, ég þarf greinilega að fara aðra leið heim úr vinnunni.
Krossgáta
Helena Magnúsdóttir og Jón Hörður Elíasson
á Sauðárkróki kokka
Ekki alveg
eftir bókinni
AÐALRÉTTUR
Piparostagúllasréttur
Gúllas (folalda, lamba, nauta)
– mér finnst best folalda
Piparostur heill
Sveppasmurostur heil dós
Matreiðslurjómi eða
rjómi eða mjólk
Paprika
Sveppir
Rauðlaukur
Gulrætur
Eitthvað annað sem
til er í ísskápnum!
Aðferð: Skera kjötið niður í litla
bita, steikja það í potti og
teningur settur út í. Það síðan
soðið í 1 til 1½ klukkustund
þannig að það sé orðið mjúkt
undir tönn.
Á meðan kjötið mallar er
grænmetið skorið og mýkt á
pönnu, ekki of mikið því það á í
raun að halda í smá ferskleika í
meðlætinu. Svo er sósan græjuð
en hún er gerð þannig að ½ lítri
af vökva er settur í pott,
piparosturinn svo og bræddur í
vökvanum, smurosturinn settur
útí síðastur. Það má alveg leika
sér með hvaða ostar notaðir eru,
t.d. hægt að nota tvo piparosta og
engan smurost ef rétturinn á að
vera sterkari.
Kjötið sett í eldfast mót,
grænmeti yfir og svo sósan.
Þessu hent inní ofn í ca 15-20
mínútur. Gott að hafa hrísgrjón,
ferskt salat og smábrauð með.
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
„Með gleði í hjarta þökkum
við Lydíu frænku fyrir góða
áskorun og hlökkum mikið til
að smakka á lærinu sem bíður okkar hjá henni,“ segja þau
Helena og Jón Hörður á Sauðárkróki, sem eru matgæðingar
vikunnar og tóku áskorun frá Lydíu og Gísla.
„Réttirnir sem við leggjum fram eru ekki alveg eftir bókinni
heldur búið að betrumbæta þá og vonandi eru þeir bara miklu
betri.“
Feykir spyr...
[SPURT Á
FACEBOOK]
Ætlar þú að
keppa á ULM
um helgina?
UNNUR RÚN
SIGURPÁLSDÓTTIR
-Já, ég ætla að keppa í fótbolta
og hestum.
ELÍNBORG MARGRÉT
SIGFÚSDÓTTIR
-Já, ég ætla að keppa i fótbolta.
ÖRVAR PÁLMI
ÖRVARSSON
-Nei, því miður
má ég ekki keppa.
EINAR FRIÐFINNUR
ALFREÐSSON
-Nei, ég get ekki tekið þátt
vegna vinnu, langaði samt að
taka þátt . Þetta er seinasta árið
áður en ég verð of gamall.
EFTIRRÉTTUR
Sumarlega
súkkulaðikakan
100 gr suðusúkkulaði
100 gr rjómasúkkulaði, hægt að
leika sér með bragðtegundir eftir
því hvaða bragð á að vera af
kökunni.
3 dl sykur
1 dl hveiti
4 egg
200 gr smjör
„Kakan hentar við öll tækifæri,
eftirréttur, í kaffitímanum og
einnig í saumaklúbbinn.“
Aðferð: Þeytið saman sykur og
egg uns það verður létt og ljóst,
bræðið smjör og súkkulaði
saman og kælið, súkkulaði-
blandan sett útí hrærivélarskál-
ina ásamt hveitinu og hrært í
smástund.
Sett í eldfast mót bakað í 35-
40 mínútur við 175,° það fer að
vísu eftir ofninum, best er ef hún
er í blautari kantinum.
Til að kóróna kökuna er hægt
að hafa með henni sósu að eigin
vali, ís, jarðarber, bláber, hindber
eða bara það sem hugmynda-
flugið leyfir.
„Viljum við henda boltanum
til okkar yndislegu Fanneyjar
Ísfold sem er höfðingi í alla staði,
sérstaklega hvað varðar mat og
vináttu.“
Verði ykkur að góðu!
Helena og Jón Hörður ásamt börnum sínum og hundi.