Feykir - 25.09.2014, Page 1
á
BLS. 6-7
BLS. 5
Jón Þorsteinn svarar fyrir
sig í Tón-lystinni
Sperrir eyrun
yfir Bach
BLS. 8
Jóhanna Pálmadóttir í
opnuviðtali Feykis
Fjölsótt ráðstefna
um stuttrófukyn
sauðfjár
Höskuldur B. Erlingsson
heldur með Manchester
United
„Aðeins eitt lið!“
36
TBL
25. september 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
www.riverrafting.is - s: 453 8245
Paintball
River rafting
Wipeout
Tjaldstæði
Heitir pottar
Fjárlög næsta árs
reiðarslag fyrir skólann
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar
fyrir árið 2015 er gert ráð fyrir
verulegri fækkun á nemendaígildum
við FNV. „Ef þetta verður niðurstaðan
í fjárlögunum þýðir það að við fáum
greitt fyrir færri nemendur þrátt fyrir
að nemendum við skólann hafi ekki
fækkað,“ segir Ingileif Oddsdóttir
skólameistari í samtali við Feyki.
„Það er spurning hvað við gerum í
framhaldinu, ég er búin að óska eftir
fundi í ráðuneytinu til að fara yfir
stöðuna og sjá hvernig þeir fá þessa
tölu út,“ segir Ingileif. En hún segir að
þetta sé væntanlega gert á þeim
forsendum að nú eigi framhaldsskól-
inn að breytast og 25 ára og eldri
nemendur hafi ekki sama rétt til
innritunar og þeir sem yngri eru.
„Ráðherrann segir að þetta eigi ekki
að bitna á 25 ára og eldri sem eru í
starfsnámi. Við erum búin að aldurs-
greina nemendahópinn hjá okkur og
þær niðurstöður eru engan veginn í
samræmi við niðurskurðinn. Hún
segist vilja að skólameistarar í Norð-
vesturkjördæmi taki höndum saman
og fari fram á fund með alþingis-
mönnum kjördæmisins um þetta mál.
Munu leita allra leiða til að
tryggja áframhaldandi dreifnám
Í fjárlagafrumvarpinu kemur jafn-
framt fram að framlag til dreifnáms á
Hvammstanga verði fellt niður, sem
Uppskera með besta móti
Kornþresking í Vatnsdal
Nokkrir bændur í Vatnsdal hafa verið með byggræktun á
10 ha kornakri í Þórormstungu um árabil og fór þresking
fram sl. mánudag. Uppskera var með besta móti að sögn
Eline Manon Schrijver frá Hofi.
„Við erum búin að vera með byggræktun þar í nokkur ár og
alltaf náð þokkalegri uppskeru, þrátt fyrir misjafnt tíðarfar
undanfarin ár,“ segir Eline í samtali við Feyki en bæirnir sem
umræðir eru Hof, Hjallaland, Hólabak og Steinnes. „Fengum
núna um 6 tonn af hverjum hektara, sem er með besta móti.“
/BÞ
Fallegt veður var í Vatnsdalnum þegar bændur þresktu korn í upphafi vikunnar. MYND: ELINE MANON SCHRIJVER
þýðir að óbreyttu að ekki verði hægt að
halda út námi haustið 2015. „Það er til
samningur um dreifnám í Húnaþingi
vestra þar sem fram kemur að framlag
ríkisins árið 2015 skuli vera 6,75
milljónir. Því kemur boðaður niður-
skurður á fjárlögum okkur óþægilega á
óvart,“ segir Guðný Hrund Karlsdóttir
sveitarstjóri Húnaþings vestra. Hún
segir að leitað verði allra leiða til að
tryggja áframhaldandi dreifnám á
Hvammstanga.
„Mikil ánægja er meðal heima-
manna með fjarnámið og skiptir það
sköpum í samfélaginu. Rætt hefur
verið við þingmenn og sveitarstjórnar-
menn á svæðinu sem og fulltrúa
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Allir eru sammála um mikilvægi dreif-
námsins, ekki aðeins fyrir Hvamms-
tanga heldur fyrir svæðið allt. Það
hefur sýnt sig að með dreifnáminu
skila nemendur sér frekar í áfram-
haldandi nám í FNV en áður,“ segir
Guðný að lokum. /BÞ