Feykir - 25.09.2014, Síða 2
2 36/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Eftirminnileg perla
Eyjafjarðar
Í síðasta mánuði fórum við fjölskyldan í ferðalag um
Eyjafjörðinn. Þegar lagt var af stað höfðum við ekki fyrirfram
ákveðið hvert ferðinni skildi
haldið, okkur langaði í eitt stutt
fjölskyldufrí áður en sumarið
rynni sitt skeið. Bíllinn var
lestaður og brunað af stað, með
landakort og snjallsímann í
farteskinu. Eitthvert hökt varð á
ævintýraferðinni þegar bíllinn
drap á sér þegar við renndum
niður Öxnadalinn, fararskjót-
inn sem var með bilaðan olíu-
mæli varð olíulaus. Hvað um
það, við tylltum okkur í grasið á
meðan við biðum eftir aðstoð. Eftir þónokkurn tíma, og 5000
störtum síðar, fór gamli í gang og för var haldið áfram á
Akureyri.
Þetta var um Verslunarmannahelgina og því nóg að gera í
bænum, farið var í sund, Listigarðinn og loks í tívolí í
blíðskapar veðri. Næsta dag var gripið til landakortsins og
snjallsímans og athugað hvert gaman væri fara næst. Ákveðið
var að dorga á Dalvík, grilla þar og gista yfir nótt. Daginn eftir
tækjum við ferju til Hríseyjar frá Árskógsandi. Það var ákveðið
eftir smá netleit en á heimasíðu eyjunnar sáum við að það væri
hægt að fara í leiðsögn um eyjuna í heyvagni, dregnum af
dráttarvél. Þar sem ég á einn ungann mann sem er einstaklega
áhugasamur um hverskyns tól og tæki var það strax niðurneglt.
Við höfðum einungis dagpart til að skoða eyjuna þar sem
þetta var síðasti dagurinn okkar á ferðalagi, því varð þetta
sannkölluð skotferð - engu að síður sú eftirminnilegasta í
ferðalaginu.
Siglingin með Sævari tekur aðeins um 15 mínútur og þegar
kemur að landi blasir við snoturt þorp með mörgum gömlum
og fallega uppgerðum húsum. Við bryggjuna beið dráttarvélin,
við hoppuðum um borð í heyvagninn og eyddum næstu
þremur korterum í að þræða þessa perlu Eyjafjarðar, á meðan
hlustuðum við á fjölmargar skemmtilegar og fróðlegar sögur
ökumannsins um mannlíf og sögu eyjunnar. Því næst var
keyptur ís í Júllabúð og var hann að hluta til borðaður á túni
skammt frá höfninni en hinn helmingurinn á hlaupum til að
ná ferjunni sem var í þann mund að sigla úr höfn.
Þegar ég kom að landi áttaði ég mig á því að trefilinn minn,
sem hefur mikið tilfinningalegt gildi, var ekki meðferðis og
hlaut því að hafa orðið eftir á Hrísey. Mér datt í hug að prófa að
senda tölvupóst á netfangið hrisey@hrisey.net sem er netfang
Ferðamálafélagsins í eyjunni. Um hæl kom svar frá Lindu
Maríu nokkurri sem sagðist ætla að athuga málið fyrir mig. Til
að gera langa sögu stutta þá fann hún trefilinn minn á túninu
í Hrísey og nokkrum dögum síðar var hann komin í mínar
hendur með pósti.
Þessi einstaka greiðasemi var alveg til að toppa áður frá-
bæra upplifun af Hrísey, takk fyrir mig!
Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri
Byggðasafn Skagfirðinga
Hátt í 40
þúsund gestir
Sumarið hjá Byggðasafni
Skagfirðinga var
gestkvæmt en samkvæmt
vef safnsins var tekið á
móti 38.480 gestum. Nú
hefur vetraropnunartími
tekið við en en starfs-
maður verður á vakt í
Glaumbæ alla daga milli
10 og 16 til 19. október.
Frá 20. til 31. október
verður hægt að skoða safn-
sýningar í Glaumbæ alla
daga, aðra en sunnudaga, frá
og með 1. nóvember verður
hægt að skoða þær eftir sam-
komulagi, eins og í Minja-
húsinu á Sauðárkróki. /BÞ
Rotaryklúbbur
Sauðárkróks
Byggðaráð Svf.
Skagafjarðar samþykkti á
fundi sínum sl. fimmtudag
að veita Rotaryklúbb
Sauðárkróks 320 þúsund
kr. styrk fyrir útgáfu
Króksbókar II, sem kom út
í júlí sl.
Í fundargerð kemur fram
að það var Króksbókarnefnd
Rotaryklúbbsins sem sótti um
styrkinn. Stefán Vagn Stefáns-
son vék af fundi við afgreiðslu
þessa dagskrárliðar. /BÞ
Króksbók
II fær
útgáfustyrk
SO2 mælum stórfjölgað um allt land
Mælar væntanlegir á
Krókinn og Hvammstanga
Á allra næstu dögum mun
Umhverfisstofnun í samstarfi
við Almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra auka
stórlega vöktun á styrk
brennisteinsdíoxíðs (SO2) frá
eldgosinu í Holuhrauni.
Keyptir hafa verið 40 mælar
og verður mælingin í höndum
þeirra sem starfa að
almannavörnum á hverjum
stað. Hvammstangi og
Sauðárkrókur eru meðal
þeirra stæða sem mælum
verður komið fyrir á.
Við kaup á mælum var lögð
höfuðáhersla á að kaupa mæla
sem auðveldlega mætti koma
fyrir á sem flestum stöðum um
land allt til að tryggja sem þéttast
mælinet á sem stystum tíma og
kosturinn við að hafa þá hreyf-
anlega auðveldar einnig við-
bragðsteymum að bregðast
skjótt við ófyrirséðum aðstæð-
um. Við venjubundnar aðstæður
hefur hefur SO2 nær eingöngu
verið mælt í nágrenni stóriðju-
fyrirtækja. Eftir að eldgosið
hófst og mengun frá brenni-
steinsdíoxíði er orðin raunveru-
legt vandamál í byggð skapaðist
þörf fyrir að þétta mælinetið
verulega og gera það hratt. Á
næstunni verða því alls 20
mælar, sem eru á vegum ýmissa
stofnana og fyrirtækja, með
rauntímaupplýsingar um styrk
SO2. Við það bætast síðan
fljótlega 23 hreyfanlegir mælar
sem dreift verður um allt land.
Einnig verður Almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra með 17
mæla á sínum snærum. Alls
verða því 60 mælar í notkun um
land allt og er áhersla lögð á að
geta upplýst landsmenn um
hver gildin eru í þeirra heima-
byggð. /BÞ
Húnaþing vestra
Vegum ekki verið skilað
í viðunandi ástandi
Vegagerðin hyggst framvegis
sjálf sjá um vetrarþjónustu á
þjóðvegum í þéttbýli í Húna-
þingi vestra, vegum 72 og 711.
Sveitarstjóra hefur verið falið
að kanna stöðu sveitarfélagsins
gangvart samningi við núverandi
verktaka um snjómokstur á
þessum vegum. Þetta kemur
fram í fundargerð byggðarráðs
Svf. Húnaþings vestra frá því sl.
mánudag.
Byggðarráð gerir jafnframt
athugasemdir við að vegunum
Klapparstígur frá Hvammstanga-
braut að Strandgötu, Strandgata
frá Klapparstíg að Smiðjugötu og
Smiðjugötu frá Strandgötu að
Hafnarbraut hafi ekki verið
skilað í viðunandi ástandi þegar
þeir voru teknir af vegaskrá og fer
fram á að úr því verði bætt hið
fyrsta. /BÞ
Raunveruleikasjónvarp
á Kaffi Krók
Þessa dagana er hópur á
vegum þýskrar sjónvarps-
stöðvar staddur í Skaga-
firði við gerð raunveruleika-
þátta þar sem fjórir
kokkanemar spreyta sig í
matargerð. Þeir hafa séð
um veitingastaðinn Kaffi
Krók í vikunni og eldað fyrir
gesti og gangandi.
Kv i k my n d at öku l i ð i ð
kemur frá Kelvin film í
Þýskalandi en þættirnir eru
gerðir fyrir sjónvarpsstöðina
ZDF, sem er nokkurs konar
RÚV þeirra Þjóðverja. Síðasti
dagur hópsins á Kaffi Krók
verður á morgun, föstudag, og
vonast hópurinn eftir að sjá
sem flesta bæjarbúa. Opið
verður frá kl. 18-22. /KSE
Þýskir
kokkar elda
Kvartað vegna loftmengunar úr skipi í Sauðárkrókshöfn
Svartur reykur á Króknum
Umhverfisstofnun hefur borist
kvörtun vegna loftmengunar
frá flutningaskipi sem kom
við á Sauðárkróki í síðustu
viku. Ekkert verður aðhafst í
málinu þar sem Ísland á ekki
aðild að alþjóðlegum
samningi um loftmengun frá
skipum. Rúv.is greinir frá
þessu.
Flutningaskipið Horst B lá við
bryggju á Sauðárkróki í síðustu
viku en Samskip tók skipið á
leigu eftir að Akrafell strandaði í
Reyðarfirði 6. september, en
Horst B var áður gert út af
Eimskipum. Mikinn og dökkan
reyk lagði frá skipinu og var
reykurinn rakinn til ljósavélar
skipsins. Talið er líklegt að um
bilun hafi verið að ræða, því þótt
aðalvélar skipsins séu að jafnaði
drifnar með svartolíu þykir afar
ólíklegt að það eldsneyti hafi
verið á ljósavélinni í þessu tilfelli.
Sigurjón Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Norðurlands vestra, tilkynnti
skipið til Umhverfisstofnunar
eftir svartur reykur hafði staðið
upp af skipinu í langan tíma og
lagt yfir hafnarsvæðið og bæinn.
„Hjá Umhverfisstofnun fengust
þær upplýsingar að ekkert yrði
aðhafst frekar í málinu. Ísland
væri ekki aðili að Marpol,
alþjóðlegum sáttmála sem meðal
annars tekur á loftmengun frá
skipum. Því gildi í raun engar
reglur um loftmengun frá
skipum við Ísland,“ segir loks á
Rúv.is. /BÞ