Feykir - 25.09.2014, Blaðsíða 4
4 36/2014
Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri
Lumarðu
á frétt?
Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra
Aflatölur 14. - 20. september
Um 350 tonn að landi
Í viku 38 var rúmum 142 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var 194 tonnum landað á Sauðárkróki
og tæpum 5 tonnum á Hofsósi. Enginn afli var skráður á Hvammstanga. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KGSKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Ásdís HU-24 Handfæri 2.892
Bjarmi HU-33 Handfæri 2.453
Blær Landb.lína 1.011
Dagrún HU-121 Handfæri 4.543
Eiður ÓF-13 Handfæri 2.768
Garpur HU-58 Handfæri 1.157
Geiri Hu-69 Handfæri 713
Hafrún HU-12 Dragnót 10.781
Hansi MB-1 Handfæri 788
Margrét SU-4 Handfæri 4.340
Muggur KE-57 Landb. lína 13.148
Ólafur Magnússon Þorskfisknet 2.475
Óli Gísla HU-212 Handfæri 1.276
Sighvatur GK-57 Lína 86.205
Signý HU-13 Handfæri 1.692
Smári HU-13 Handfæri 1.256
Sæunn HU 30 Handfæri 1.592
Alls á Skagaströnd: 142.269
Drottning stóðrétta
um næstu helgi
Viðamikil dagskrá fer að
venju fram í tengslum við
Laufskálarétt, drottningu
stóðrétta landsins, en réttað
er næstkomandi laugardag,
þann 27. september. Í
bæklingi sem dreift hefur
verið um Skagafjörð má sjá
að vegleg dagskrá vegna
réttarinnar stendur yfir alla
helgina.
Á föstudagskvöldið verður
boðið upp á stórsýningu og
skagfirska gleði í Reiðhöllinni
Svaðastöðum. Þar er um að
ræða hressandi sýningu með
flinkum knöpum og góðum
hestum. Þrautakeppnin og
skeiðkeppnin eru svo á sínum
stað. Í skeiði eru vegleg verðlaun
í boði. Höllin verður opnuð kl.
20:00 og búast má við að það
verðir kátt í höllinni þetta kvöld.
Þeir sem vilja halda gleðinni
áfram á föstudagskvöldið geta
svo skellt sér á alvöru sveitaball
með Upplyftingu á Hótel
Mælifelli. Þar er aldurstakmark
18 ára og húsið opnar á
miðnætti. Sama kvöld munu
Sigvaldi, Alex Már og Jón
Gestur halda uppi stemming-
unni í Menningarhúsinu Mið-
garði í Varmahlíð, en þar verður
dansgólf og barstemming á efri
hæðinni.
Löngum fjölmennt
í Laufskálarétt
Réttardagskrá í Laufskálarétt í
Hjaltadal hefst með því að
stóðið verður rekið úr Kol-
beinsdal uppúr klukkan 11:30 á
laugardag. Réttarstörf hefjast
klukkan 13:00. Þátttakendum
við stóðrekstur úr Kolbeinsdal
er bent á að mæta við Lauf-
skálarétt eða við hesthúsið
Ástungu kl. 10:00, á laugar-
dagsmorgunn.
Að sögn Atla Más Trausta-
sonar, sem nú gegnir embætti
Líf og fjör í Laufskálarétt
Störfum skilað
Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra hefur tekið þá
góðu ákvörðun að flytja
Fiskistofu
til Akur-
eyrar. Það
hefur sýnt
sig að
flutningur
opinberra
stofnana og
starfa út á land skilar miklu
fyrir það samfélag sem tekur
við stofnuninni og
stofnanirnar dafna vel.
Dæmi um vel heppnaða
flutninga eru Landmælingar
á Akranes, Byggðastofnun
og hluti Íbúðalánasjóðs á
Sauðárkrók, Matvæla-
stofnun á Selfoss og nýjar
stofnanir má nefna
Fæðingarorlofssjóð á
Hvammstanga og Miðstöð
sekta og sakarkostnaðar á
Blönduósi. Ýmsir í
höfuðborginni finna nú
ákvörðun ráðherrans allt til
foráttu. Talsmenn
stéttarfélaga steyta hnefann
m.a. BHM sem mótmælir
harðlega.
Stöð 2 kallar til dyggan stuðn-
ingsmann Samfylkingarinnar,
stjórnsýslufræðing, sem m.a.
sat í umbótanefnd flokksins. Sá
stjórnarandstæðingur kallar
ákvörðun ráðherra skemmdar-
verk. Það er áberandi andúð
hennar á ákvörðunin en
köllum hlutina réttum nöfn-
um. Sá sem hefur setið í
ábyrgðarstöðum fyrir Samfylk-
inguna er fremur óheppilegur
álitsgjafi til að gefa faglegt álit á
pólitískum andstæðingi sínum
sérstaklega ef hann titlar sig
stjórnsýslufræðing!
Hvar hafa þessir varðmenn
borgarstarfanna og álitsgjafar
verið þegar við sem búum útiá
landi bendum á þá gríðarlegu
starfa og fólksflutninga sem átt
hafa sér stað frá landsbyggðinni
til Reykjavíkur?
Hvar voru þessir varðmenn
þegar tugir starfa og stöðugilda
hafa verið lögð niður eða flutt
frá Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki? Störf á vegum
Vinnumálastofnunar, Vinnu-
eftirlitsins, Nýsköpunarmið-
stöðvar, Veiðimálastofnunar,
Vegagerðarinnar o.s.frv. o.s.frv.
Hvar var þá BHM! Er þá ekki
búið að vinna skemmdarverk á
landsbyggðinni, líkt og Sam-
fylkingarráðgjafinn lýsti því?
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra er einfaldlega að byrja
að skila því sem burtu var
tekið.
Landsbyggðarfólk afhendir
tvær af hverjum þremur
krónum sem það framleiðir til
höfuðborgarinnar þar sem
þær krónur eru m.a. nýttar til
að ráða opinbera starfsmenn
til vinnu. Ein króna af þessum
þremur verður eftir úti landi.
Fleiri störfum þarf að skila.
Gunnar Bragi Sveinsson
Utanríkisráðherra og
fyrsti þingmaður
Norðvesturkjördæmis.
AÐSENT GUNNAR BRAGI SVEINSSON SKRIFAR fjallskilastjóra í fyrsta sinn,
koma um 400 fullorðin hross til
réttar en hann hefur ekki tölu á
fjölda folalda sem þeim fylgja.
Hrossin hafa í sumar verið á
afréttinum í Kolbeinsdal og
dölunum þar inn af en á
sunnudag var afrétturinn
smalaður og rekið í hólf.
Að sögn Atla hefur gesta-
fjöldi í Laufskálarétt verið
svipaður í nokkur ár, um 3000
manns. Hann sagði að sér væri
ekki kunnugt um hvenær og
hvers vegna Laufskálarétt varð
að þeim ferðamannaviðburði
sem hún er orðin. „En þetta
hefur verið svona síðan ég fór
fyrst að byrja að þvælast þarna
kringum 1980, þá var reyndar
ekki svona margt fólk en samt
þó nokkuð,“ segir Atli. Hann
segir að um tíma hafi verið
mikil hrossasala kringum
Laufskálaréttina en hún hafi
dregist saman eins og sala á
hrossum almennt.
Stærsta réttarball
norðan heiða
Laufskálaréttarballið verður
haldið í Reiðhöllinni Svaða-
stöðum og hefst það kl. 23 á
laugardagskvöldið. Hljómsveit-
in Von ætlar að stíga á svið
ásamt landsliði söngvara: Matti
Matt, Ingó veðurguð og Ernu
Hrönn. Einnig kemur fram
unga og efnilega hljómsveit
kvöldsins, með Sigvalda Gunn-
ars í broddi fylkingar. Forsala
aðgöngumiða er hjá N1 á
Sauðárkróki. Aldurstakmark er
16 ár og tekið er fram að engin
bjórsala verður á staðnum.
Annað ball verður á Hótel
Varmahlíð á laugardagskvöldið,
þar sem hljómsveitin Einnog-
sjötíu frá Akureyri heldur uppi
fjörinu kl. 23-03. /KSE
Feykir.is
Smá í Feyki :: Síminn er 455 7171
smáAUGLÝSINGAR
Sauðfjárkvóti til sölu
Sauðfjárkvóti 173,5 ærgildi er til sölu, selst að hluta eða í heild.
Tilboð óskast send á kvoti@simnet.is fyrir 20. október.
Athugið!
Er farin að klippa á hárgreiðslustofu Margrétar á miðvikudögum.
Tímapantanir í síma 847-0580
kveðja, Agnes (Móðins)
Úr Laufskálarétt haustið 2008. MYND: PIB
Fannar SK-11 Handfæri 1.990
Farsæll SH-30 Botnvarpa 42.959
Gammur SK-12 Þorskfisknet 2.636
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 3.614
Helga Guðm. SK-24 Handfæri 743
Klakkur SK-5 Botnvarpa 129.119
Már SK-90 Handfæri 625
Óskar SK-13 Handfæri 685
Steini Sk-14 Handfæri 1.881
Vinur SK-22 Handfæri 380
Ösp SK-135 Handfæri 709
Alls á Sauðárkróki 194.783
Ásmundur SK-123 Landb. lína 2.234
Geisli SK-66 Línutrekt 2.476
Alls á Hofsósi 4.710