Feykir - 25.09.2014, Blaðsíða 6
6 36/2014
Ráðstefnan, sem kallast North
Atlantic Native Sheep and Wool
Conference á ensku, er haldin á
hverju ári en aðildarlöndin sem
skiptast á að halda hana eru
Noregur, Orkneyjar, Hjaltland,
Suðureyjar, Ísland, Færeyjar,
Grænland og nú kemur Mön
inn sem nýtt land. Næsta ráð-
stefna verður haldin í Færeyjum
árið 2015.
Í ár var komið að Íslandi og
ráðstefnan var byggð þannig
upp að fyrir hádegi voru
fyrirlestrar og eftir hádegi var
farið í ferðir og heimsóknir á
svæðinu. Fjölbreytt val sérfræð-
inga var fengið til að halda
fyrirlestra, m.a. Karin Svarstad
sem gerði grein fyrir hugmynd
sinni um að það fólk sem væri
að vinna við stuttrófukyn sauð-
fjár við Norður Atlandshaf,
hittist, deildi reynslu sinni og
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Fjölsótt ráðstefna um stuttrófukyn sauðfjár
Fjórða ráðstefnan um stuttrófukyn sauðfjár við Norður Atlantshaf var haldin á
Blönduósi dagana 4.-8. september sl. Ráðstefnan var mjög vel heppnuð og fjölsótt
en þátttakendur voru um 100 talsins, þar af yfir 60 erlendir gestir frá 13 löndum,
en þeir sem komu lengst að voru frá Ástralíu og Suður-Afríku. Feykir ræddi við
Jóhönnu Pálmadóttur, frkvstj. Textílseturs Íslands og einn skipuleggjanda
ráðstefnunnar, en hún segir það hafa verið einstaklega ánægjulegt að upplifa
undrun, gleði og þakklæti ráðstefnugesta. Að horfa á fólkið á öllum þeim stöðum
sem voru heimsóttir var að hennar sögn ógleymanlegt.
„Aldrei séð svo margt fé renna
eins og rjóma niður brekkurnar“
á kjötsúpu og söng. Sigurgeir
Sindri Sigurgeirsson formaður
Bændasamtakanna bauð fólkið
velkomið og flutti ávarp og
Sveinn Hallgrímsson sagði frá
stofnun Ullarselsins á sínum
tíma.
Föstudagurinn var frábær
dagur að mati gesta. Farið var í
Þingeyrakirkju, í Undirfellsrétt,
Vatnsdalshringinn, í kvenfélags-
kaffi hjá Kvenfélaginu Voninni á
Húnavöllum og endað á að sjá
fjársafnið koma niður í Auð-
kúlurétt. „Talið er að Orkneyinga
saga sé skrifuð í klaustrinu á
Þingeyrum og fannst því gestum
okkar magnað að koma í
kirkjuna og heyra frásögn Pálma
Gunnarssonar um kirkjuna og
kirkjustaðinn. Þau höfðu aldrei
upplifað réttir, né réttarstörf eins
og við þekkjum þau. Sannarlega
eiga nokkur þeirra margt fé, en
hvergi er rekið sameiginlega á
afrétt eins og hér á Íslandi. Fyrir
Grænlendinga sem eiga fé sem á
ættir að rekja af þessu svæði var
einstök upplifun að hitta bræð-
urna á Sveinsstöðum en þaðan
kom flest af fénu. Ekta kven-
félagskaffi eins og við Íslendingar
þekkjum, var þeim mjög fram-
andi og héldu sumir að þeir
væru að nálgast himnaríki!“
segir Jóhanna og heldur áfram:
„Þegar upp í Auðkúlurétt var
komið veitti félag Sauðfjárbænda
í A-Hún þeim smá hressingu
fyrir hjartað og kom það sér vel í
súldinni. Þegar féð kom niður
stóðu margir með tárin í
augunum yfir þeirri sjón, því
þeir höfðu aldrei séð „svo margt
fé renna eins og rjóma niður
brekkurnar“ eins og einn sagði.“
Jóhanna segir gestina hafa dáðst
að samvinnu fólksins og í heild-
ina var allur dagurinn ótrúlegur
í þeirra augum. Í rútunni notaði
Ólafur tækifærið til að segja frá
mörkum, markaskrám og
merkingum sauðfjár.
Laugardeginum var varið á
Blönduósi þar sem heimsótt
voru SAH Afurðir, Minjastofa
Kvennaskólans, Heimilisiðn-
aðarsafnið og Vatnsdæla á refli.
Seinni partinn var opin sýning á
handverki frá aðildarlöndunum
og gerði hún góða lukku að sögn
Jóhönnu. „Gestirnir voru hrifnir
af þrifalegu sláturhúsinu og
starfseminni þar. Einnig fannst
þeim mikið til koma hvað textíl-
hefðin er rótgróinn á svæðinu
og starfsemi tengd textíl öflug í
þessum litla bæ.“
Um kvöldið var slegið upp
veislu í umsjón Pottsins á
Blönduósi. Arnar Þór Sævars-
son bæjarstjóri var veislustjóri
en að sögn Jóhönnu fór allt vel
fram undir hans styrku stjórn.
„Sigurður Sigurðarson og frú
Ólöf kváðu stemmur með
aðstoð Hildar Hákonardóttur.
Vöktu þessar gömlu stemmur
mikla athygli og fengu gestir að
kveða með í einni slíkri.
Þórarinn Pétursson, formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda,
flutti ógleymanlega ræðu um
störf íslenskra bænda. Ræður
voru fluttar og Grænlendingar
stýrðu fjöldasöng. Tók hver
undir sem betur gat,“ segir hún.
Veislugestir skemmtu sér vel og
segir Jóhanna alla hafa farið
sæla í náttstað – en þeir allra
hörðustu fóru á réttarball í
Húnaveri þar sem Trukkarnir
spiluðu fyrir dansi fram á nótt.
Agndofa yfir
fallega söngnum
Á sunnudeginum var haldið yfir
Þverárfjall og Gestastofa sútar-
ans á Sauðárkróki heimsótt.
Jóhanna segir fólkinu hafa þótt
það mögnuð heimsókn og
eftirminnileg. Eyþór Einarsson
ráðunautur kom inn í rútuna og
sagði frá búskaparháttum og
lífinu í Skagafirði. Því næst var
stefnan tekin að Kringlumýri
þar sem Sigurður Hansen var
heimsóttur. „Hann fræddi hóp-
inn um Haugsnesbardaga og
fleiri bardaga ásamt því hvað
varð til þess að hann byrjaði að
raða steinunum upp eftir þeim
heimildum um Haugsnesbar-
daga sem hann hafði. Vakti þetta
mikla aðdáun á drifkrafti Sig-
urðar. Einn gesturinn hafði á
orði að við værum lánsöm að
ekki hefðu verið háðir fleiri bar-
dagar hér á landi og að við vær-
um friðsemdarþjóð. Í Kakala-
skála fannst fólki gott að koma.
Fallegt handverkshús sem á
varla sinn líka og Ásbirninga-
skoðunum, væri fólk sem kæmi
bæði að sauðfjárræktinni, ull-
inni sem og úrvinnslu hennar.
Hildur Hákonardóttir listakona
ásamt Martha Kløve frá Noregi
og Elizabeth Johnston frá
Hjaltlandi voru með fróðlegt
erindi um kljásteinavefnað. Á
meðan ein talaði unnu hinar að
vefstaðnum og ýmsu því tengdu.
Emma Eyþórsdóttir dósent,
fjallaði um íslenskt sauðfé og
sauðfjárrækt og dr. Jenny
Shephard sagði frá ferhyrnda
fénu á Mön sem á ættir sínar að
rekja til Víkingatímans. Makkak
Nielsen frá Grænlandi og
Dorthea Joensen frá Færeyjum
sögðu frá sauðfjárbúskap og
vinnslu á ull. Að lokum hélt
Scott Sinclair frá Ronaldsey tölu
um starf sitt sem bæði bóndi og
verkfræðingur á eyjunni en hún
er nyrsta eyja Orkneyja. Erindi
héldu einnig Heidi Greb
fíltlistamaður frá Þýskalandi og
dr. Spoonenberg frá Bandaríkj-
unum, en hinn síðarnefndi er
annar af tveimur helstu sérfræð-
ingum í heiminum í litum
búfjár. „Allt voru þetta fræðandi
og skemmtilegir fyrirlestrar sem
seint gleymast. Dr. Ólafur Dýr-
mundsson var fundarstjóri og
leiðsögumaður alla ferðina og
fórst það vel úr hendi eins og
hans var von og vísa,“ segir
Jóhanna um fyrirlestra ráðstefn-
unnar.
Stemmur,
fjöldasöngur og
réttarball fyrir þá
allra hörðustu
Ráðstefnugestir komu til lands-
ins þann 4. september en áður
en leið lá norður yfir heiðar var
tekið á móti hópnum í Ístex í
Mosfellsbæ og segir Jóhanna
það hafa vakið mikla hrifningu
gesta að sjá svo fallega og
þrifalega verksmiðju, sem og
mikið af fallegu bandi. Einnig
var komið við í Ullarselinu á
Hvanneyri en þar var boðið upp
Frá réttarstörfum í Auðkúlurétt. MYND: MAGNEA RUT GUNNARSDÓTTIR LITLADAL