Feykir - 25.09.2014, Blaðsíða 7
36/2014 7
blótið gerði góða lukku, þó svo
að ekki treystu allir sér að
smakka allt,“ segir Jóhanna.
„Sigurður kláraði frásögnina í
skálanum og Kvennakórinn Sól-
dís söng svo að það hefði mátt
heyra saumnál detta á milli
atriða - fólk sat agndofa yfir
fallega söngnum. Í lokin spruttu
allir upp sem einn maður í
fagnaðarvímu. Guðrún Hadda,
Lena Zakaríasen og Guðrún Á.
Steingrímsdóttir komu frá
Akureyri og sýndu búninga sem
vöktu mikla athygli, sérstaklega
gamall handofinn búningur
sem er eftirmynd af 1000 ára
gömlum búningi sem fannst á
Grænlandi. Frábær matur, söng-
ur, frásagnir og móttökur í
Kakalaskála.“
Á mánudagsmorgun var
haldið suður á við yfir Kjöl en
áður komið við í fjárhúsunum í
Stóradal og segir Jóhanna að þar
hafi mátt sjá athyglina skína úr
Grænlendingar stýrðu fjöldasöng. MYND: JÓN PÁLMASON
Grænlendingar fjölmenntu til Íslands á ráðstefnuna. MYND: JÓN PÁLMASON
hverju andliti þegar Kristján
Jónsson bóndi sagði frá bú-
skapnum í Stóradal og nýju
fjárhúsunum þar. Á Auðkúlu-
heiði sagði Ólafur m.a. frá af-
réttarnýtingunni með tilvís-
unum í fjallskilaseðilinn. Loks
segir Jóhanna ferðina hafa
endað í handverkshúsinu í
Þingborg í Flóa þar sem hand-
verksvörur voru skoðaðar og
boðið var upp á veitingar.
Ullin ómetanlegt
hráefni
Aðspurð hvort eitthvað hafi
staðið uppúr á ráðstefnunni að
hennar mati svarar Jóhanna að
erfitt sé að velja eitthvert eitt
ákveðið atriði. Þó segir hún að
með því að fá alla þessa gesti í
heimsókn hafi hún áttað sig
betur á því hvað við eigum það
gott hér á Íslandi. „Einnig að
upplifa virðingu fólksins, frá
öllum þessum löndum, fyrir
sauðfénu og ullinni. Til dæmis
meðhöndla bændur ullina sem
ómetanlegt hráefni en ekki
eitthvert vandamál sem lítið er
greitt fyrir, eins og stundum
heyrist hér á landi. Í sumum
löndum fá bændur nánast
ekkert fyrir ullina en þá leita þeir
annarra leiða til að koma henni í
verð en meðhöndlunin versnar
ekki þrátt fyrir það. Þarna
megum við bæta okkur,“
útskýrir hún.
Jóhanna segist hafa verið
mjög ánægð með ráðstefnuna
og í heildina virtist allt ganga
upp. Hún segist þakklát þeim
sem lögðu hönd á plóg við
undirbúning og framkvæmd
ráðstefnunnar, s.s. Ólafi Dýr-
mundssyni BÍ, Pálma Gunnars-
syni verkefnisstjóra, Kristínu
Gunnarsdóttur og Ágústu Þor-
valdsdóttur í Ullarselinu, Katha-
rínu Schneider Þekkingasetrinu
á Blönduósi og Emmu Eyþórs-
dóttur LBHÍ. Einnig Marianne
Skovsgård þýðanda og Jón
Pálmasyni sem kom að ýmsum
tækni- og úrlausnarmálum.
„Þau lögðu okkur mikið lið sem
gerði ráðstefnuna betri. Án
Bændasamtakanna sem bak-
hjarls hefði verið erfitt að halda
svona stóra ráðstefnu og þökk-
um við þeim sérstaklega fyrir
það. Landssamtökum sauðfjár-
bænda, Ístex, Menningarráði
Norðurlands vestra og Þekk-
ingarsetrinu á Blönduósi þakka
ég fyrir þeirra ómetanlega
stuðning. Eins öllum þeim
aðilum sem studdu við ráð-
stefnuna með styrkjum og
vinnu, með einum eða öðrum
hætti,“ segir hún að lokum.
Unnið að vefstað. MYND: JÓN PÁLMASON
Fjölmennt var á laugardagskvöldinu. MYND: JÓN PÁLMASON
Maríanna Margeirsdóttir er
fædd í Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks þann 5. febrúar
1997. Hún er dóttir Margeirs
Friðrikssonar og Sigurlaugar
Hrannar Valgarðsdóttur.
Maríanna á tvö systkini, Völu
Hrönn og Helga Frey.
Deild í FNV: Félagsfræðibraut,
félagsfræðistígur.
Þrjú lýsingarorð sem lýsa þér
best: Frek, hress, drífandi.
Hvar finnst þér best að vera:
Mér líður mjög vel í íþróttahúsinu,
uppi rúmi og svo auðvitað á
sólarströndinni þegar tækifæri
gefst!
Hvernig líkar þér að vera í FNV:
Mér líkar mjög vel í FNV.
Hvað finnst þér best við skólann:
Það sem mér finnst best við
skólann er félagslífið, hann er mjög
vel staðsettur fyrir mér, þarf ekki
að labba langt, það er mjög góður
kostur.
Hvaða viðburður í skólanum
finnst þér skemmtilegastur:
Menningarkvöldið stendur alltaf
uppúr, en það eru samt mjög
margir viðburðir sem eru ótrúlega
skemmtilegir eins og árshátíðin og
Metakvöld.
Helstu áhugamál: Íþróttir, félagslíf
og að borða mat, ekki að elda
hann.
Uppáhalds matur: Kjöt í karrý og
steiktur fiskur í raspi, það er það
besta.
Besta kvikmyndin: Stella í orlofi er
alltaf góð!
Hvaða þekktri persónu vildirðu
helst kynnast: Kim Kardashian.
Hvað er það versta sem gæti
komið fyrir þig: Það versta er
örugglega að missa einhvern
náinn.
Hvað gleður þig mest: Það sem
gleður mig mest er að vera í
útlöndum, mér finnst það alltaf
voða gaman, haha.
Uppáhalds félag í íþróttum:
Tindastóll allan daginn!
Skrítnasti félaginn: Þær eru allar
svo skrítnar get ekki valið á milli.
Hver er helsta fyrirmyndin: Helsta
fyrirmyndin myndi ég segja amma
á Hóló, ég held að allir myndu vilja
líkjast henni, eðalkona!
Uppáhalds tónlist: Mér finnst
mjög gaman að hlusta á gömlu
góðu lögin eins og Litla flugan, en
poppið er líka í uppáhaldi, haha.
Uppáhalds teiknimyndapersóna:
Olav í Frozen, hann er í uppáhaldi
núna.
Uppáhalds stjórnmálamaðurinn:
Villi Árnason er í uppáhaldi en það
er nú bara útaf ég þekki hann og
treysti!
Lífsregla: Skópar á dag kemur
skapinu í lag!
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti: Ég myndi
gefa eitthvað í gott málefni, gefa
eitthvað til fjölskyldunnar og
fara svo með alla fjölskylduna til
útlanda!
Draumatakmark: Lifa vel og lengi.
Maríanna skorar á Hugrúnu
Pálsdóttur að svara spurningum
Feykis næst.
Maríanna Margeirsdóttir
Amma á
Hóló helsta
fyrirmyndin
( FJÖR Í FJÖLBRAUT ) berglind@feykir.is