Feykir - 25.09.2014, Side 11
36/2014 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
á skilið rúgbrauð með kæfu.
Spakmæli vikunnar
Ef þú vilt láta minnast þín,
þá gerðu eitt verk afburðarvel.
- Saunders Norwell
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... 111,111,111 x 111,111,111 = 12,345,678,987,654,321 ?
... þú dregur andann um það bil 23 þúsund sinnum á dag?
... lengsti mögulegi sólmyrkvinn varir í 7,31 mínútu?
... það er 1792 þrep í Eiffel-turninum?
... tennis var upprunalega spilaður með berum höndum?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
Einu sinni voru þrír menn á eyðieyju og hittu anda sem gaf þeim eina
ósk hverjum. Sá fyrsti óskaði sér þess að finna bát til að geta siglt
heim til sín og varð honum að ósk sinni. Sá næsti óskaði sér þess
að það kæmi þyrla að sækja hann. Þá varð sá þriðji og síðasti svo
einmana að hann óskaði að hinir tveir mennirnir kæmu aftur til hans.
Krossgáta
Feykir spyr...
[SPURT Á
SAUÐÁRKRÓKI]
Ætlar þú í
Laufskála-
rétt?
EVA KATARZYNA:
-Ég held ég fari ekki núna.
SIGURDRÍF
JÓNATANSDÓTTIR
-Nei.
BRYNDÍS BRÁ
GUÐMUNDSDÓTTIR
OG SANDRA
VALDIMARSDÓTTIR:
-Bara á ballið.
GUNNAR GEIRSSON
-Nei, ég er bara á ferðalagi hérna.
Reykt gæsabringa
og grillaður selur
FORRÉTTUR
Reykt gæsabringa með
vínberjasósu
Reykt gæsabringa
2 dl sýrður rjómi
2 dl vínber
2 dl þeyttur rjómi
Aðferð: Gæsabringan er himnu-
hreinsuð, snyrt og sneydd niður
í þunnar sneiðar. Sneiðunum
raðað fallega á forréttardiska.
Best er að búa til sósuna að hluta
til kvöldið áður. Vínberin skorin
í frekar smáa bita, steinhreinsuð
og þeim blandað saman við sýrða
rjómann. Blandan geymd í kæli.
Þeytta rjómanum er blandað
varlega saman við stuttu áður en
sósan er borin fram.
AÐALRÉTTUR
Grillaður selur
með rjómasósu og
grilluðu grænmeti
1 kg hryggvöðvi af sel
Heiðmerkurblanda - krydd
Sósa:
6 dl vatn
2 kjúklingateningar
1 msk villibráðakraftur –
fljótandi
malaður pipar
sósujafnari
1-2 msk púðursykur
2 dl rjómi
Grænmeti:
kartöflur
sætar kartöflur
rauðlaukur
paprika
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Við fengum áskorun frá
Fanney Ísfold að koma fram
með uppskriftir sem hafa
runnið ljúflega ofan í okkar gesti. Í framhaldi viljum við skora
á Jón Sigurjónsson í Garði að gefa upp gómsætar uppskriftir
eins og honum er einum lagið.
Við sækjum hráefnið í þetta sinn í nánasta umhverfi. Grípum
gæsina þegar hún gefst, veiðum sel í sjó og tínum ber í firði Skaga.
Skagafjörður hefur oft á tíðum verið rómaður sem matarkista enda
af nógu af taka í þessum víðfeðmna firði. Þessar uppskriftir miðast
við fjórar til sex manneskjur.“
sveppir
olía
salt og pipar
Aðferð: Mikilvægt er að selkjötið
sé vel fituhreinsað og allar
himnur fjarlægðar. Heiðmerkur-
kryddblöndunni er nuddað í
kjötið og því pakkað inn í
álpappír. Best er að geyma það í
kæli yfir nótt en láta það ná
stofuhita áður en það er sett á
grillið. Kjötið er síðan grillað í
álpappírnum í um 10 mínútur á
hvorri hlið (fer eftir þykkt
kjötbitans). Að lokum er álpapp-
írinn fjarlægður og kjötið grillað
í 1-2 mínútur á hvorri hlið.
Sósan: 6 dl af vatni settir í pott
ásamt 2 teningum af kjúklinga-
krafti, 1 msk af villibráðakrafti og
möluðum pipar. Sjóðið við
vægan hita í 3 -5 mínútur.
Þykkið blönduna með sósujafn-
ara og bætið púðursykrinum út í.
Að lokum er rjómanum bætt við.
Sósulitur eftir smekk.
Grillað grænmeti: Kartöflurnar
og laukur skorið niður í hæfilega
Guðjón Sigmar og Elín.
Elín Jónsdóttir og Guðjón Sigmar Karlsson
frá Sauðárkróki matreiða
bita, sett á álbakka, olíu hellt yfir
og kryddað eftir smekk með salti
og pipar. Sett á grillið í ca 20-30
mínútur. Þá er niðurskornum
sveppum og paprikku bætt út á
bakkann og haft í um 10 mínútur.
Mikilvægt að hræra í grænmetinu
svo það brenni ekki. Kjötið skor-
ið í þunnar sneiðar og borið fram
með sósunni og grænmetinu.
EFTIRRÉTTUR
Créme Brúlée með
bláberjum og ís
5 dl rjómi
6 eggjarauður
100 gr sykur
1 vanillustöng
bláber
ís að eigin vali
Aðferð: Hitið ofninn í 150 C°.
Hellið rjómanum í pott, skerið
vanillustöngina í tvennt, hreinsið
fræin úr og setjið út í rjómann.
Skerið stöngina í bita og bætið
líka út í rjómann. Hitið rjómann
að suðu, lækkið þá hitann og
látið malla í 5 mínútur. Þeytið
eggjarauður saman við sykurinn
þar til blandan er orðin að ljósu
kremi. Þegar rjóminn er búinn
að malla í 5 mín., hækkið hitann
aftur að suðu og hellið saman við
eggjablönduna. Pískið vel saman,
síið vanillustangirnar frá og
hellið í mót. Bakið í vatnsbaði,
sem nær ¾ að dýpt mótsins, í 40-
50 mínútur. Kælið. Stráið vel af
sykri yfir og brennið með brenn-
ara. Berið fram með bláberjum
og ís.
Verði ykkur að góðu!